Vikan


Vikan - 03.07.1986, Page 11

Vikan - 03.07.1986, Page 11
Ólafur Jónsson er forstöðumaður félags- miðstöðvarinnar Tónabæjar. Hann var og annar framkvæmdastjóri Listapopps sem haldið var dagana 16. og 17. júní. Við tókum hann í stutt spjall á dögunum. Ólafur, hvað gerir forstöðumaður félags- miðstöðvar? „Mitt hlutverk er að stjórna rekstri mið- stöðvarinnar og sjá um undirbúning og framkvæmd á þvi starfi sem þar fer fram á vegum æskulýðsráðs." Nú hefur maður alltaf sett félagsmiðstöðv- ar í samband við unglingastarf. Áttu þá við að fleiri hafi aðgang að stöðinni? „Já, í Tónabæ fer fram mjög fjölbreytt starf. Yfir vetrarmánuðina er stöðin í notkun svo að segja frá átta á morgnana til tólf á kvöldin. Kostur Tónabæjar er sá hversu stórt húsið er. Hér getur farið fram þrenns konar starfsemi í einu. I kjallaranum er salur og þar eru stereogræjur. Þá er tölvuver Tónabæjar einnig í kjallaranum. Á efri hæðinni er svo stóri salurinn sem er notaður undir alla mögulega starfsemi, meðal annars dansleikja- hald. Þetta gerir það að verkum að við getum leigt félagasamtökum hluta af húsinu.“ Þú talaðir um tölvuver Tónabæjar. Hvað er það? „Þar er unglingunum boðið upp á kennslu í meðferð tölva og verið er leigt út hópum unglinga sem hafa áhuga á þessum tækjum.“ Og hver er önnur starfsemi sem fram fer á vegum ykkar? „Hér eru starfræktir klúbbar. Þá eru í gangi diskótek á þriðjudags- og föstudags- kvöldum ásamt ýmsu fleiru sem tengist unglingum á einn eða annan hátt.“ Nú geri ég ráð fyrir að það dragi nokkuð úr aðsókn að stöðinni yfir sumarmánuðina? Hverjar eru meginlínurnar í sumarstarfinu hjá ykkur? „Jú, það dregur nokkuð úr aðsókn, hér eru þó diskótek eins og venjulega en klúbbastarf- semin leggst niður. Á móti koma svo leikja- námskeið sem ætluð eru börnum og vinnuhópur Tónabæjar.“ Svo við snúum okkur að öðru, nú varst þú annar framkvæmdastjóri Listapopps, einnar mestu popphátíðar sem haldin hefur verið hér á landi. Hvaða hluta hátíðarinnar sástu um? „Ég sá um undirbúninginn að tónleikunum í Höllinni. Hinn framkvæmdastjórinn, Stein- ar Berg, sá aftur á móti um að fá hljómsveit- irnar til landsins og aðstoðaði þær meðan á dvöl þeirra stóð.“ Hversu langan tíma tók að undirbúa svona stórhátíð? „Þetta tók í allt um það bil einn og hálfan mánuð. Við urðum að skipuleggja þetta alveg feikilega vel. Taka varð tillit til allra atriða því svona hljómleikahald er mjög viðkvæmur hlutur og það þarf mjög lítið til þess að allt fari í bál og brand." Nú var markmið þessara tónleika að menn skemmtu sér án vímuefna. Náðist það? „Já, að vísu var þarna hópur sem bar nokk- uð á sökum drykkju en hann var mjög lítill. Það má gera ráð fyrir að ölvun hafi verið um það bil 30 prósent, en er venjulega allt upp í 70 prósent. Því má vel segja að þetta takmark hafi náðst." Hverjir sáu um gæslu á tónleikunum? „Það gerði vinnuhópur Tónabæjar, félagar úr klúbbum félagsmiðstöðvanna, 4. flokkur Fram í handbolta og starfsmenn íþrótta- og tómstundaráðs. Þetta voru í allt um það bil eitt hundrað manns. Og gæslan gekk vel? „Já, gæsla gekk feikilega vel. Gæslumenn féllu fyllilega inn í fjöldann svo menn gátu skemmt sér á mjög afslappaðan hátt. Það var enginn valdsmannsbragur á hlutunum. En gæslumenn voru alltaf til staðar ef eitthvað kom upp á. “ Hvernig var umgengni á tónleikunum? „Hún var mjög góð. Gæslan sá um að hirða upp rusl jafnharðan enda var Höllin mjög hreinleg að hljómleikunum loknum. Þó voru brotnar tíu rúður en það gerði fólk sem ekki var með miða og ætlaði sér með frekju og yfirgangi að komast inn “ Nú voru þarna notaðar í fyrsta skipti mjög fullkomnar græjur sem Reykjavíkurborg hef- ur fest kaup á. Hvernig reyndust þær? „Þær voru í einu orði sagt frábærar. Hljóm- gæði voru slík að það þarf að leita langt til þess að finna raunhæfan samanburð." „Voru popphljómsveitirnar ánægðar með tónleikana? „Já, þær voru mjög hressar með þetta og einstaklega hrifnar af Islandi. Þeir í Fine Young Cannibals ákváðu til dæmis að lengja dvöl sína um einn dag, svo ánægðir voru þeir með landið." Er í bígerð að gera svona popphátíð að föstum viðburði? „Já, ætlunin er að gera hátíð á þessum standard að árlegum viðburði. Við væntum þess að geta haldið áfram samstarfi við Stein- ar Berg enda er sá maður í miklum tengslum við hinn erlenda poppheim." Þú sást um framkvæmd á útihátíðarhöldum 17. júní, eða er ekki svo? „Jú, ásamt fleirum. Við breyttum nokkuð um stefnu í þeim málum. Það hefur lengi tíðk- ast að hrúga öllum þorra fólks á einn stað. Þar stóðu menn kannski svo tímum skipti með barn á öxlum og annað við hlið sér sem sá ekki hvað fór fram á sviði sem staðsett var í mílu fjarlægð. Nú var atriðum aftur á móti dreift á stórt svæði og áhersla lögð á að menn væru virkir í hátíðarhöldunum. Mannlífið blómstraði þennan dag og menn hittu í mann- hafinu kunningja og vini sem þeir höfðu ekki séð í langan tíma. Að sjálfsögðu höfðum við allt með okkur, jafnvel veðurguðina. Að lokum, hafa félagsmiðstöðvarnar eitt- hvert sérstakt hlutverk í afmælishátíðar- höldunum? „Það hefur nú ekki verið ákveðið neitt endanlegt í því sambandi. Ég geri þó ráð fyr- ir að okkur falli einhver verkefni í skaut.“ 27. TBL VI KAN 11

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.