Vikan - 03.07.1986, Qupperneq 19
Konungsfjölskyldan samankomin.
Friðrik krónprins er til hægriá mynd-
inni og Jóakim til vinstri.
Árið 1967 giftist Margrét Henrik
prinsi og árisíðar fæddist fyrsta barn
þeirra. Friðrik krónprins.
Margrét sex ára gömul á Lúcíuhátíð.
Um þessar mundir er vænt-
anleg hingað til lands
Margrét II. Danadrottn-
ing ásamt eiginmanni
sínum, Henrik prinsi, í
boði forseta íslands, Vigdísar
Finnbogadóttur. Að þessu sinni
er um óopinbera heimsókn að
ræða en í slíkum tilfellum er
minna haft umleikis en gengur
og gerist í opinberum heimsókn-
um þjóðhöfðingja. Heimsóknin
mun standa yfir í þrjá daga eða
frá 4.-7. júlí. Á meðan á dvöl
Margrétar drottningar og Hen-
riks prins stendur er fyrirhugað
að þau heimsæki Vestmannaeyj-
ar, Skaftafell og Austurland í
fylgd forseta íslands. Þetta er í
annað skipti sem Margrét
drottning og Henrik prins heim-
sækja okkur Islendinga en þau
komu hingað fyrst í opinbera
heimsókn árið 1973 í boði fyrr-
verandi forsetahjóna, dr. Kristj-
áns og Halldóru Eldjárn.
Margrét drottning hefur átt
miklum vinsældum að fagna í
þau 14 ár sem hún hefur verið
þjóðhöfðingi Danmerkur og sér-
stakrar hylli hefur hún ávallt
notið meðal þegna sinna. Drottn-
ingin heitir fullu nafni Margrét
Alexandrína Þórhildur Ingiríður
og er elst dætra Friðriks konungs
IX. (1899-1972) og Ingiríðar
drottningar (f. 1910). Hún fæddist
þann 16. apríl árið 1940. Prinsess-
an var 13 ára gömid þegar það
varð ljóst að hún yrði næsti ríkis-
arftaki þjóðarinnar og táeki við
af föður sínum. Það sama ár eða
1953 var samþykkt í þjóðarat-
kvæðagreiðslu sú breyting á
dönskum lögum að konur gætu
einnig orðið ríkiserfingjar. En
fram að þeim tíma gátu aðeins
karlmenn tekið við dönsku krún-
unni.
Foreldrar Margrétar lögðu
allt kapp á að hún hlyti
góða menntun' í þeim til-
gangi að búa hana sem best
undir framtíðarhlutverkið.
Margrét tók stúdentspróf í Dan-
mörku árið 1959. Síðan stundaði
hún nám við hina ýmsu háskóla
í Danmörku, Englandi og
Frakklandi. í London lauk hún
prófi í sögu, stjórnmálafræði og
hagfræði árið 1965. Margrét
drottning hefur alla tíð haft mik-
inn áhuga á fornleifafræði og
hefur hún nokkrum sinnum verið
við uppgröft, meðal annars í Súd-
an og á Ítalíu. Drottningin hefur
mikla hæfileika á sviði myndlist-
ar og hefur hún látið mikið að
sér kveða í þeim efnum og hlotið
lof gagnrýnenda fyrir. Hún hefur
meðal annars myndskreytt verk
breska rithöfundarins John Ron-
ald Tolkien, The Lord of the
Rings, Sögur um Ragnar Loð-
brók og danska hetjukvæðið
Bjarkarmál.
Margrét drottning giftist Hen-
rik prinsi árið 1967 og eiga þau
tvo syni, Friðrik, sem er fæddur
1968, og Jóakim, fæddan 1969.
Margrét tók við embætti föður
síns þann 15. janúar 1972, daginn
eftir lát hans. Sem þjóðhöfðingi
Dana hefur Margrét ávallt notið
mikillar virðingar enda ber hún
óvenjulega persónu. Hún er
listamaður í eðli sínu en gerir sér
jafnframt ljósáþá ábyrgð og þær
skyldur sem embættina'fylgja.
27. TBL VIKAN 19