Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 03.07.1986, Qupperneq 54

Vikan - 03.07.1986, Qupperneq 54
Tóbakið er upprunnið frá Ameríku. Áður en Spán- verjar stigu á land í Vest- ur-Indíum var tóbakið óþekkt í Evrópu en barst þangað með sjómönnum á heimleið og breiddist eftir það hratt út. Eftir 1600 var tó- baksneysla orðin alvanaleg í Evrópu, meðal yfírstéttanna var tóbakið tuggið eða notað í nef en lægri stéttirnar reyktu pípur. Sir Walter Raleigh mun hafa innleitt pípureykingar við hirð Elísabetar drottningar og það var hann sem byrjaði að rækta tóbak í Virginíu í sambandi við nýlenduveldi Breta í Norður- Ameríku. Pípureykingar urðu eftir þetta vanalegar í öllum þjóðfélagsstéttum og við hirð Vilhjálms Prússakeisara urðu allir að eiga pípur til að geta tek- ið þátt í pólitískum umræðum með keisaranum og ráðherrum hans. Vindlar skutu upp kollinum á Spáni á 18. öld og þaðan breidd- ust þeir út til Þýskalands, Hollands og Danmerkur. Sígar- ettur komu upphaflega frá Suð- ur-Ameríku og komu fram með vindlunum á Spáni á sama hátt og vindlarnir og urðu fyrst vin- sælir í Rússlandi og Tyrklandi en eftir Krímstríðið 1850 breidd- ust sígarettur út um heiminn. Tóbaksneyslan hefur þannig breyst með tímanum, frá 16. öld til þeirra 19. tóku menn aðallega í nef og vör og reyktu pípu. 19. öldin einkenndist auk þess af vindlareykingum en 20. öldin er tímabil sígarettnanna. Tóbakið var í upphafi álitið gott til lyfjagerðar og gagn- legt gegn fjölda kvilla. Jean Nicot, sem var franskur sendiherra í Portúgal, ræktaði tóbak í garðinum sínum til lækninga og sendi tóbaksfræ og blöð til Katrínar frá Medici sem reyndi að lækna son sinn, Frans II, af slæmum höfuðverk með tókbaki. Bráð- lega eftir þetta var öll hirðin í Versölum með neftóbaksdósir. Spánski læknirinn Nicolo Mond- ardes skrifaði 1571 í læknisfræði- legu riti að tóbakið væri hið besta lyf við höfuðverkjum, garnaflækju, hægðatregðu, hósta og gikt. Thomas Hariot, sem uppi var í lok 16. aldar, lýsti reykingum meðal indíána í Norður-Ameríku og hann áleit að reykurinn hreinsaði magann og höfuðið af slími og opnaði alla ganga og op líkamans og þannig héldu menn heilsu sinni. En tóbaksneyslan var ávallt umdeild allt frá upphafi, Urban VIII páfi bannfærði þannig hvern þann sem tók í nefið í kirkjunni 1624, rússneski tsarinn bannaði allar tóbaksreykingar 1634 og í Svíþjóð var allur innflutningur á tóbaki bannaður 1687. Andstað- an gegn tóbaki á þessum árum var fyrst og fremst vegna eld- hættunnar en auk þess var hún siðferðileg. Eldhættan af tóbaki var sérlega mikil fyrr á tímum þegar menn notuðu aðallega eld- færi til að kveikja í tóbakinu en eldspýtur komu fyrst til sögunn- ar á 19. öld. Enn þann dag í dag deyr ár- lega fjöldi fólks vegna elds af völdum tóbaksreykinga og ófáir hafa fengið slæm brunasár vegna þeirra og þá sérstaklega á tímum nælonklæðanna sem oft- lega fuðruðu upp ef á þau féll neisti. Á 19. öldinni var lungna- krabbamein sjaldgæfur sjúk- dómur en jókst mikið á þeirri 20. Þannig er talið að tíðni lungna- krabbameins hafi fimmfaldast frá aldamótum til 1940 og síðan hef- ur aukningin haldið áfram. Eftir 1950 fóru læknar víða um heim að leiða að því líkur að þessi mikla aukning lungnakrabba væri vegna reykinga. Á síðari áratugum hefur svo athygli lækna beinst að skaðlegum áhrifum tóbaksreykinga á hjarta og æðar. Einhver áhrifamesta rannsókn, sem gerð hefur verið um þetta efni, er eftir Bretana Doll og Peto frá 1976 en þeir fylgdu eftir 34.440 læknum frá 1951 og rannsökuðu banamein þeirra sem létust og báru saman við reykingavenjur. Reykinga- menn dóu fyrr en þeir sem ekki reyktu. Þannig var dánartíðni reykingamanna miðað við þá sem ekki reyktu í hlutfallinu 2:1 undir sjötugu og 1,5:1 eftir sjö- tugt. Helstu dánarorsakir þeirra sem reyktu voru lungnakrabba- mein, aðrir lungnasjúkdómar og hjarta- og æðasjúkdómar. Tíðni hjarta- og æðasjúkdóma var um það bil helmingi hærri meðal þeirra sem reyktu en hinna. Fleiri rannsóknir hafa birst sem sýna á ótvíræðan hátt að samband er milli reykinga og hjarta- og æðasjúkdóma og líf- slíkur reykingamanna þannig minni en þeirra sem ekki reykja og lífsnautn þeirra og lífsgæði verulega skert vegna sífellds hósta og brjóstverkja við áreynslu þegar æðakölkun er byrjuð í einhverjum mæli. Það er athyglisvert að reykingamenn loka enn augunum fyrir þessum staðreyndum en þó virðist sem reykingar séu eitthvað að minnka í þjóðfélaginu og er það vel. vað sögu tóbaksreykinga viðvíkur má segia að fyrstu 400 árin, sem reykt var, hafi menn að mestu leyti verið óvitandi um skaðsemi reykinga. Þó má benda á að sennilega hef- ur skaðsemi reykinga ekki verið ýkja mikil fyrir síðustu aldamót en eftir það breyttust reykinga- venjur og skaðsemi reykinga óx. Reykingar voru tímafrekar og erfiðar áður en eldspýtur og sígarettur komu til sögunnar. Það var erfiðleikum bundið að halda eldinum logandi í pípunum og keðjureykingar hafa sennileg- ast verið afar fáséðar. Löng pípusköftin hafa auk þess minnkað skaðleg áhrif reyking- anna og minnkað tjöruna í reyknum. Ef draga ætti einhvern lærdóm af sögu tóbaksins og skaðsemi þess þá ættu auðvitað aliir að hætta að reykja. Þeir sem ekki geta það ættu að hætta sígar- ettureykingum en reykja þess í stað vindla eða pípu og þá helst með löngu skafti. Menn ættu auk þess að fleygja á brott bæði eld- spýtum og kveikjurum og taka upp eldfæri og glóðarker. Þá eru líkur á því að halda heilsu og kröftum á borð við þá sem ekki reykja. 54 VIKAN 27. TBL EFTIR DR. ÚTTAR GUÐMUNDSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.