Vikan - 03.07.1986, Qupperneq 60
LÍFIHEIÐ
TEXTI: FREYR
MYNDIR: VALDÍS
Það tekur íbúa höfuðborgarsvæðisins innan við hálf-
tíma að aka út í óspillta náttúru friðlandsins í Heiðmörk.
Gróður og fuglalíf er með eindæmum fjölskrúðugt á
þessu 2700 hektara landflæmi, þar sem á fimmtu milljón
trjáplantna hafa verið gróðursettar síðan 1949. Sá skóg-
ur, sem síðan hefur dafnað, veitir öðrum plöntum og
ekki siður dýralífi skjól og næði til vaxtar.
Heiðmörkin er opin öllum sem stunda vilja hressandi
útivist en jeppagæjum er ráðlagt að velja sér annað
athafnasvæði.
Skógræktarfélag Reykjavíkur sér um landrækt og
allt eftirlit í Heiðmörk. Á sumrin starfa þar tugir manna
við uppgræðslustörf. Skógræktarfélagið hefur gefið út
geysigott kort af svæðinu með merktum gönguleiðum
og athyglisverðum stöðum. Einnig eru til bæklingar um
lífríkið, jarðfræði og sögu Heiðmerkur.
Heiðmerkurferð er tilvalin í stað sunnudagsbíltúrs,
leggja bílnum og rölta um, týnast í skógarrjóðri, hlusta
á fjölbreyttan fuglasöng og þefa gróðurilminn. Útsýnið
er Qölbreytt úr Heiðmörkinni, Esjan, Snæfellsjökull,
ReykjanesQöllin, Bláfjöll og í norður- og vesturátt vell-
ur borgin í allar áttir og nálgast ótrúlega hratt.
Helgarferð! Sniðug hugmynd. Með tjald og grill og
allt. Það er leyfilegt að tjalda nánast hvar sem er í
Heiðmörk, að gefnu leyfi Vignis Sigurðssonar, landvarð-
ar í Þingnesi við Elliðavatn. Þar var áður þingstaður
Gullbringu- og Kjósarbænda.
NÁTTÚRULÍF
Sumir treysta sér til að lifa og nærast sumarlangt í
Heiðmörkinni á gæðum landsins eingöngu. Við skrupp-
um uppeftir og könnuðum málið.
Heiðmörkin er auðugur garður fyrir grasætur. Úrval
ætisveppa er mikið frá miðju sumri og fram á haust,
enda fylgja þeir ætíð skóglendi. Kúalubbar, birki- og
lerkisveppir eru algengastir, sveppatínsluferð í Heið-
mörk að hausti er óvitlaus hugmynd.
Rætur geithvannar eru næringarmikið lostæti, þær
finnast helst í kjarrgróðri. Sögur fara af einstöku pipar-
rót sem slæðst hefur með mönnum og numið land.
Síðsumars er krökkt af krækiberjum og einnig nokkuð
af bláberjum og hrútaberjalyngi.