Vikan


Vikan - 04.09.1986, Page 5

Vikan - 04.09.1986, Page 5
Kaffistofa, þar er framreiddur morgunverður. BlflPI- geti notið þessarar miklu feg- urðar. Rúmgóð sétustofa kemur til með að verða á fjórðu hæð hótelsins og síðar kemst kjallarinn í gagnið. Þar verð- ur meðal annars aðstaða til heilsuræktar. Á Hótel Keflavík er ekki boðinn matur en morgun- matur er framreiddur í kaffi- stofu sem er á jarðhæð. Spölkom frá hótelinu er veit- ingahúsið Glóðin. Náið samstarf er milli þessara staða. Á Glóðinni gefst gest- um kostur á fjölbreyttum matseðli. Staðurinn hefur vínveitingaleyfi. Hótel Keflavík er mið- svæðis í bænum, þangað er stutt í helstu þjónustumið- stöðvar svo sem verslanir og simdlaug. Steinþór Jónsson er hótel- stjóri á Hótel Keflavík. Hann kvaðst mjög ánægður með aðsókn. Nýting hefur verið um 90% og ekkert lát virðist vera á pöntunum. Gestir eru jafht erlendir sem innlendir. Steinþór sagði nálægðina við flugvöllinn setja mark á starfsemi hótelsins. Er það síðasti áfangi margra gesta á leið þeirra úr landi. Að sögn Steinþórs er mjög algengt að þama komi og gisti fólk sem fer snemma í flug. Starfs- menn hótelsins sjá um að vekja gesti sem þess óska. Þá er gestum boðinn akstur til og frá flugvellinum, þeim að kostnaðarlausu. Steinþór sagði fólk ekki svikið sem heimsækir Suður- nes og er ýmis þjónusta í boði fyrir ferðamenn. Má þar nefha golfvöll, hestaleigu, íþróttasvæði og skipulagðar vettvangsferðir um Reykja- nesskaga. Hótelið veitir allar upplýsingar um þessa þjón- ustu. Þá em Suðumes stórkostlegt svæði fyrir alla þá sem áhuga hafa á fuglum og skoðun þeirra. I sumar dvaldi á hótelinu stór hópur sjóstangaveiði- manna frá Bretlandi, en sjóstangaveiði er ný íþrótt sem nýtur vaxandi vinsælda og Suðumes em einkar hent- ugt svæði til iðkunar þessara greinar. Steinþór kvað það mark- mið eigendanna að hótelið tæki sem virkastan þátt í allri ofangreindri starfsemi og reyndi jafhvel að skapa nýja möguleika fyrir ferða- menn á Suðumesjum. Á Hótel Keflavík starfa nú fimm manns. Sem fyrr segir em öll herbergi tveggja manna en næturgisting fyrir einn kostar 1900 krónur. Verð fyrir tvo er 2300 krónur fyrir nóttina. Úr setustofu á fyrstu hæö. Útsýnið af svölunum er ægifagurt. 36. TBL VI KAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.