Vikan - 04.09.1986, Page 12
Myndir: Arna Kristjánsdóttir
Fastan hefur fylgt flestum trúarbrögðum
mannkynsins frá örófi alda. Gyðingar
fasta á Yom Kippur hátíð sinni og einnig
fyrir páska. Fasta múhameðstrúarmanna
stendur í nokkrar vikur á Ramadan hátíð-
inni og er ætluð til að hreinsa líkama og
sál af illum efiium, öndum og hugsunum.
Fasta hefur skipað fastan sess innan heim-
speki Austurlanda, jógar telja hana
hreinsa bæði hug og líkama auk þess að
hjálpa til við að gera persónuleika manna
sterkari og auka sjálfrstjóm þeirra. Vestr
rænar lækningaraðferðir mæla með föstu
í ákveðnum tilfellum, til dæmis fyrir upp-
skurði eða vegna innvortis særinda. Því
má segja að fasta skipi mjög stóran sess
um gjörvallan heim, hvort sem þar eru á
ferðinni trúarbrögð, lækningar eða hrein-
lega lífsmáti.
Föstur geta verið mjög mislangar. Fé-
lagar í Ananda Marga trúarsöfhuðinum
fasta yfirleitt í einn sólarhring og þá oft>
ast við fullt tungl eða nýtt. Á fullu tungli
toga ákveðnir kraftar í ýmis efrd lík-
amans, því fær líkaminn umframorku utan
frá án neyslu. Lækningarföstur geta varað
frá tólf tímum upp í viku, en heunsmetið
í föstu á indverskur jógi frá Madhya Pra-
desh, en hann bragðaði hvorki vott né
þurrt í 65 daga. Hann lá reyndar undir
grænni torfu á meðan á þessu stöð og
tókst að stöðva nánast alla líkamsstarf-
semina.
Hvað sem öllum öfgum líður eru margir
lærðir og leikir sammála um gildi föstu,
hverjum og einum er nauðsyn á líkam-
legri hreinsun með ákveðnu millibili, gefa
líkamanum tækifæri á að losna við úr-
gangsefni sem ætíð safnast fyrir í frumum
hans. Sjúku fólki, bömum og bamshaf-
andi konum er þó alls ekki ráðlagt að
fasta. Vel þarf að passa upp á fæðið, bæði
fyrir og eftir föstu, of mikið át strax eftir
föstu er mjög óhollt. Ákveðin fæða er betri
en önnur þegar fastað er; bananar og
mjólk em mjúk og næringarrík fæða auk
þess að brenna geysilega vel. Létt fæði,
líkt og grænmeti og súpur, er gott, vatn
í hófi er hreinsandi og gott en í óhófi get-
ur það kostað hættulega þenslu melting-
arfæranna. Margir mæla með tómatsafa
en hann er einkar næringarríkur og auð-
meltur. Jógar mæla með jafhvægisblöndu
eftir uppskrift yin/yang, en hún sam-
anstendur af vatni, sítrónusafa og salti og
vinnur með togkröftum fulla tunglsins.
Ying/Yeng blandan á að mæta orkuþörf
líkamans að miklu leyti. Ekki er ráðlegt
að fasta nema undir leiðsögn og eftirliti
kunnugra og óhóflega löng fasta er verri
en engin.
En hvað er fasta raunverulega? Hvemig
tilfinning er það að vera nánast matarlaus
í marga daga? Hvaða áhrif hefur fastan á
líkama og sál. Ég fékk þau svör að þessu
væri ómögulegt að lýsa, tilfinninguna
þekktu einungis þeir sem það hefðu reynt.
Ég varð því að reyna föstu upp á eigin
spýtur. Ég ákvað að fasta samkvæmt
formúlu austurlenskrar læknisfræði.
Fastan stendur í átta daga með minnk-
andi og vaxandi áti, en eiginlegir föstu-
dagar em tveir, sá fjórði og fimmti. Þann
fimmta var fullt tungl svo allar aðstæður
vom samkvæmt kenninguhni.
MATSEÐILL:
Fyrsti dagur:
2 heilhveitibrauðsneiðar með osti
2 mjólkurglös
1 banani
1 diskm- grænmetissúpa
2 vatnsglös
Annar dagur:
1 mjólkurglas
1 banani
1 diskur grænmetissúpa
1 glas af tómatsafa
2 vatnsglös
Þriðji dagur:
3 vatnsglös
1 diskur grænmetissúpa
1 glas af tómatsafa
Fjórði dagur:
3 vatnsglös með sítrónu og salti
1 glas af tómatsafa
Fimmti dagur:
3 vatnsglös með sítrónu og salti
1 glas af tómatsafa
12 VIKAN 36. TBL