Vikan - 25.02.1988, Síða 22
Nýi salurinn. Hann tekur 70 manns í sæti og er innréttaður í stíl
við gamla salinn. Mikið verk var að halda þessum stíl en að sögn
Jónasar hefur hann verið sérstaklega heppinn með iðnaðarmenn
og heiðurinn af útskurðinum í tréverkinu á Erlendur Magnús-
son.
Hér sést yflr hluta af gamla salnum og inn í nýja salinn.
ár og hefur því dreift kröftum
sínum á tvær vígstöðvar. Nú hef-
ur hann þó selt Veislumiðstöð-
ina en það þýðir ekki aldeilis að
hann ætli að hætta að útbúa
veislur í heimahús, öðru nær,
því verið er að innrétta nýtt
veislueldhús í Skíðaskálanum og
þaðan ætlar Jónas að bjóða upp
á veislur ;if öllum stærðum og
gerðum.
Vikan fór á stúfana á dögun-
um til að sjá framkvæmdirnar
með eigin augum og spjalla við
þennan unga athafnamann. Tek-
ið var á móti blaðamanni og
ljósmyndara með miklum
myndarskap og þeim strax boð-
ið upp á kafíi og glæsilegt með-
læti. Eftir að búið var að skola
niður einum bolla og koma sér
vel fyrir var Jónas spurður
spjörunum úr.
- Hvers vegna seldir þú
Veislumiðstöðina?
„Ég vildi færa allan rekstur
minn hingað uppeftir, sameina
hann til að geta nýtt betur
tækjakost og starfsfólk. Ég er
búinn að vera með Veislumið-
stöðina í átta ár og vissulega er
eftirsjá í fyrirtækinu, en ég ótt-
ast ekki að við fáum ekki nóg að
gera hérna. Ég hef trú á því að
það góða orð sem við höfum
skapað okkur í Veislumiðstöð-
inni fylgi okkur hingað og að
margir eigi eftir að láta okkur sjá
um veislurnar fyrir sig.“
— Verðið þið betur búin en
áður til að sjá um veislur?
„Ég held að það sé óhætt að
fúllyrða það. Nýja eldhúsið
verður mjög stórt og búið fúll-
komnustu tækjum þannig að við
getum tekið að okkur allar
stærðir af veislum, bæði hér í
skálanum og eins í heimahús-
um. Við höfum alltaf lagt mikla
áherslu á að besta auglýsing
okkar séu ánægðir viðskiptavin-
ir og svo verður áfram. Við spör-
um ekki hráefnið ofan í fólk og
leggjum allt upp úr vönduðum
22 VIKAN
Ekki vantar náttúrufegurðina í nágrenni Skiðaskálans.
og góðum mat á verði sem fólk
ræður við.
Við stefnum að því að opna
nýja eldhúsið fyrri partinn í
mars og þá er okkur ekkert að
vanbúnaði að hefja undirbún-
inginn við fermingarveislurnar.
Vissulega er samkeppnin á
þessu sviði hörð og við verðum
í baráttu við fyrirtæki á höfúð-
borgarsvæðinu, en ég held að
staðsetningin ætti ekkert að
hefta okkur í því að vera sam-
keppnishæf. Við erum með
skrifstofu að Ármúla 7 þaðan
sem veislur eru skipulagðar en
maturinn kemur svo héðan og
eins og tæknin er orðin í flutn-
ingi á tilbúnum mat verða engin
vandræði að dreifa honum
héðan.“
Þurfa bara að
opna dyrnar
— Sjáið þið um eitthvað fleira
en matinn sjálfan?
„Ef þess er óskað getum við
séð um allt sem veislunni við-
kemur. Fólk þarf bara að panta
það sem það vill og svo ekki að
gera meira. Við sjáum um af-
ganginn. Við getum lagt til þjón-
ustufólk, leirtau, skreytingar,
tónlist, allt sem þarf. Ef til dæm-
is um brúðkaup er að ræða tök-
um við að okkur að skreyta
kirkjuna að innan, útvega og
skreyta bíl brúðhjónanna, salinn
og útvegum meira að segja fólk
til að aðstoða við að taka á móti
gestum. Það má segja að fólk
sem pantar veislu hjá okkur
þurfí ekki að gera annað en að
opna dyrnar og bjóða svo gest-
unum að gera svo vel.“
— Svo við snúum okkur að
Skíðaskálanm sjálfum, hvernig
gengur reksturinn?
„Ég get ekki kvartað undan
honum sem slíkum. Viðskiptin
eru alltaf að aukast og það hefúr
reyndar verið 100% aukning á
milli ára frá því að ég hóf rekst-