Vikan - 15.09.1988, Side 11
„Lúxus að starfa
að áhugamálinu"
- segir Þórunn
Gestsdóttir ritstjóri Farvís I viðtali við Vikuna
TEXTI: GUÐRÚN ALFREÐSDÓTTIR
UÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
Hún er blaðaútgefandi
og ritstjóri. Hún er á kafi í
pólitík og öðru félagsstarfi
og situr í ótal nefndum og
ráðum. Áður hefur hún
m.a. starfað sem dagskrár-
gerðarmaður hjá Ríkisút-
varpinu, blaðamaður Vísis
og DV og ritstjóri Vikunnar.
Þórunn Gestsdóttir á þó
ekki ýkja langan starfsferil
að baki. Hún eignaðist
fimm böm á tíu ámm og
var heimavinnandi hús-
móðir í átján ár áður en
hún fór út að vinna. Og nú,
tíu ámm síðar, réðst Þór-
unn í útgáfú nýs ferðatíma-
rits, hins fýrsta sinnar teg-
undar hérlendis. Farvís er
vandað blað og fjölbreytt,
upp á heilar 104 síður.
„Ég hef líklega alltaf verið að
leita að mínu óskastarfi," segir
Þórunn aðspurð um aðdrag-
anda hins nýja tímarits. „Ég var
ritstjóri Vikunnar í rúmt ár eða
þar til hún skipti um eigendur
sl. haust, en þá fór ég aftur á
minn gamla vinnustað, DV,
sem blaðamaður. Þar fékk ég
að velja mér viðfangsefni og
kaus að skrifa um ferðamál,
sem er eitt af mínum áhuga-
málum, en um þau hafði ég
reyndar skrifað áður sem og
um flest alla málaflokka ffá
neytendamálum til þingskrifa.
Ég komst fljótt að raun um að
mér hafði nú líkað betur í rit-
stjórastólnum þar sem við-
fangsefnin voru enn fjölbreytt-
ari og starfið mjög lifandi.
Kannski er ég líka dálítið
stjórnsöm í mér og hef þörf
fyrir að ráða mér meira sjálf.
Ég fékk því mjög fljótlega þá
hugmynd að gefa út tímarit
um ferðamál. Að vísu er gefið
út eitt slíkt tímarit hér en það
fjallar nær eingöngu um ferða-
mál innanlands þannig að mér
fannst vanta tímarit sem gæfi
heildarmynd af ferðamögu-
leikum út um allan heim.
Ferðamál eru mjög vaxandi at-
vinnugrein allsstaðar í heimin-
um; fólk hefur meiri tíma til að
ferðast, meiri fjárráð og er orð-
ið ferðavant. Ferðavenjur okk-
ar íslendinga hafa líka mikið
breyst frá því sem áður var.
Fólk ferðast nú meira upp á
eigin spítur í stað hópferðanna
og þá geta upplýsingar ferða-
tímarits komið sér vel eða jafn-
vel orðið til að vekja áhuga á
ókunnum slóðum. Ég hef þá
trú að svona tímarit eigi fúllt
erindi hér hjá okkur ekki síður
en hjá öðrum ferðaglöðum
þjóðum, en gróska í útgáfunni
er sérstaklega mikil í Banda-
ríkjunum og Þýskalandi. Úr-
töluraddir vantaði samt ekki,
en ég þrjóskaðist við og
kannski er þetta eitthvert sér-
íslenskt fyrirbrigði að fara út í
óvissuna af tómri bjartsýni.
Sumt gengur svo og annað
ekki, en meðan maður hangir í
bjartsýninni og skaðar engan
þá er allt í lagi.
Það var í mars, eftir að ég
hætti á DV, sem ég fór af al-
vöru að undirbúa útgáfú
Farvís. Ég byrjaði á að fara á
mjög umfangsmikla ferðamála-
VIKAN 11