Vikan


Vikan - 15.09.1988, Blaðsíða 64

Vikan - 15.09.1988, Blaðsíða 64
því sem ég upplifði. Þetta heitir víst að tengja reynslu sína við ímyndunaraflið." Hver ekur síðasta bílnum? Frh af bls. 57 Þetta voru broslegir draumar því ég var mjög lélegur í fót- bolta og hef alltaf verið. En það var snemma í mennta- skóla sem ég ákvað að gerast rithöfundur. Fyrir utan próf- lestur stöku sinnum fór þessi tími í bókmenntalestur og broslegar tilraunir við skáldskap. Ég og vinur minn, sem nú er orðinn þekktur á öðrum vettvangi, eyddum löngum stundum í bókaversl- unum og á bókasöfhum og rák- um ómeðvitað tveggja manna lestrarfélag. Okkur varð brátt ljóst að hann hefði hæfileika á nokkuð mörgum sviðum en ég gæti líklega ekki gert neitt af viti annað en að skrifa, sem er nú kannski ekki svo lítið. En þetta sem ég var að skrifa í menntaskóla, smásögur og ljóð, var afskaplega misheppn- að sem von er. Á þessum árum (það er nú reyndar stutt síðan en núorðið líður tíminn hratt á ýmsum sviðum) tíðkaðist varla að skólaskáld færu með skrif sín út fyrir skólann. Mað- ur gerði sér grein fyrir því að þetta dót manns var bara byrj- endaæfmg og það hvarflaði ekki að manni að gefa þetta út. En nú eru menntaskólanemar farnir að gefa út eftir sig ljóða- bækur og ljúga því í blöðum að þeir séu skáld. Ef þeir verða alvöruhöfúndar seinna munu þeir sjá eftir því að hafa birt þetta rusl sitt. Ég hélt auðvitað áfram að reyna að skrifa eftir mennta- skóla og smám saman fór þetta batnandi og afköstin jukust. Það má segja að þessi bók, Síð- asti bíllinn, hafi byrjað að verða til haustið 1986. Síðan þá má segja að þetta hafi verið ástríðufullt tómstundagaman því ég hef orðið að vinna fúlla vinnu með skriftunum sem kannski er ekki svo slæmt meðan maður er enn mjög ungur og þarf á lífsreynslu að halda. Á þessum tveimur árum hafa fæðst hjá mér margar sög- ur sem ekki reyndust nothæfar 62 VIKAN í bókina og haugur af mis- heppnuðum uppköstum. Það er ennþá til mikið af fólki sem heldur að rithöfundar séu gæddir einhverjum töframætti sem geri þeim kleift að ryðja úr sér textanum í einum rykk, síðan sé farið yfir og leiðréttar nokkrar villur og textinn hreinskrifaður. Ef þetta væri svona auðvelt væri hægt að skrifa smásagnasafn eða skáld- sögu á einni viku eða svo. En staðreyndin er auðvitað sú að það liggja langar og margar krókaleiðir að velheppnaðri sögu, ótal uppköst, útstrikanir og pappírseyðsla. Rithöfundar eru skæðir liðsmenn í eyðingu skóga í heiminum. Og þrátt fyrir allt puðið getur höfúnd- urinn engu að síður staðið uppi með misheppnað verk og þurft að byrja upp á nýtt. Engu að síður getur verið um góðan rithöfund að ræða. Þó fúrðulegt sé þá er til fólk sem á að heita menntað en lít- ur á framangreinda lýsingu á rithöfundarstarfinu sem píp. Og það lítur ekki á skriftir sem vinnu heldur dútl.“ Með ómenningar- leg áhugamál — Hvað með áhugamál fýrir utan skáldskapinn? ,/Etli þau séu ekki eins og gengur og gerist hjá ungu fólki. Fótbolti, bíó, sund og popptónlist og þetta dót. Dag- blaðalestur. Öll þessi venju- lega afþreying. Ég er í sambúð og eyði miklum tíma með kær- ustunni en það er varla viðeig- andi að flokka það sem hobbí. í rauninni hef ég mjög ómenn- ingarleg áhugamál fýrir utan bókmenntirnar. Og er ótrú- lega fáfróður á mörgum sviðum. Ég hef t.d. ekkert vit á myndlist og almennilegri tónlist svo dæmi séu tekin. En þetta breytist kannski til batn- aðar. Ég stefúi a.m.k. að því ef skriftirnar verða einhvern tíma Iifibrauð og maður hefúr meiri tíma.“ — En hvað viltu þá segja um uppáhaldshöfunda og áhrif á eigin verk? „Það er nú það. Ég tel mig hafa Iesið afskaplega mikið af skáldskap bæði íslenskum og erlendum en um Ieið eiga óskaplega mikið ólesið. Þessa dagana hef ég mestan áhuga á ungum breskum rithöfundum, mönnum eins og Martin Amis, Iain Mcewan og Iain Banks. Það kannast kannski einhverjir lesendur Vikunnar við þá, ég veit það ekki. En eina bók- menntatímabilið sem ég hef al- mennilega yflrsýn yfir eru ís- lenskar nútímabókmenntir. Ég las Laxness og Þórberg af mikilli áfergju þegar ég var yngri en auk þess hef ég kynnt mér allt það markverðasta sem hefur verið að gerast hér síð- ustu 20 árin í bókmenntunum. mér flnnast sífellt fleiri góðir höfundar koma ffam, af báðum kynjum. En að öðrum ólöstuð- um hef ég líklega Iesið Guð- berg Bergsson af hvað mestri áfergju og hlýt að hafa orðið fýrir einhverjum áhrifúm af honum. Síðustu misserin hefur mað- ur borið sig meira eftir smá- sögum en áður og þá í því skyni að reyna að læra af öðrum. í því sambandi langar mig að nefúa þrjá höfunda sem ég hef haft ánægju af að lesa burtséð frá hvaða áhrifúm ég hef orðið fyrir af þeim: Halldór Stefánsson, Fríða Sigurðardótt- ir og Ólafur Jóhann Sigurðs- son. Þetta eru höfundar sem auk annars hafa skrifað úrvals smásögur.“ 30 kílómefra göngutúr leiddi til smásögu — Geturðu sagt eitthvað um það hvernig þitt eigið líf endurspeglast í því sem þú skrifar? „Ég veit ekki hvernig það verður í framtíðinni en hingað til hefur það verið með mjög óbeinum hætti. f þessari bók er ég alls ekki að segja sögur af sjálfum mér enda flestar per- sónurnar nijög ólíkar höfundi sínum. Hins vegar eru ákveðn- ir hlutir sem ég hef kynnst undirstaða að söguhugmynd- unum. Ef við rifjum upp það sem ég hef verið að gera eftir stúdentspróf þá má segja að dvölin í Þýskalandi hafl geflð mér þessa margumtöluðu fjar- lægð á föðurlandið sem gerði mér kleift að lýsa því í skáldskap. í sögunum birtist hins vegar eigin reynsla af því að búa erlendis og umhverfi þeirra er alíslenskt. Veturinn úti á landi og starflð á Klepps- spítalanum leita hins vegar með beinni hætti inn í bókina. Ég gæti t.d. ekki lýst geðsjúkl- ingum eins og ég geri þarna án þess að hafa kynnst hlutskipti þeirra af eigin raun. Samt fjall- ar engin af sögunum um nein sérstök atvik sem ég upplifði þar. Sem dæmi um hvað tengslin milli lífsreynslu og skáldskapar eru óbein og ruglingsleg vil ég nefna söguna „Gildran" og hvernig hún varð til. Þegar ég var úti á landi varð ég ekki vitni að neinum voveif- legum atburði en þurfti einu sinni að fara fótgangandi 30 km leið. Um helgar fór ég á puttanum milli tveggja þorpa því á staðnum sem ég bjó á gerðist aldrei neitt og maður vildi skemmta sér á þessum árum. Ég var vanur að fara „heimleiðina" á puttanum og hafði alltaf fengið far allt þar til þessi nótt rann upp. Þegar ég gerði mér ljóst að engan bíl var að fá var ég kominn of langt af stað til að stætt væri á því að snúa við. Seint um nótt- ina kom ég örmagna að sveita- byggð sem liggur miðja vegu milli þorpanna tveggja, hafði þá gengið 30 km með vindinn í fangið. Þá var ég orðinn svo ringlaður og hvekktur af ferða- laginu að ég áræddi ekki að banka upp á neins staðar held- ur skreið inn í eitthvert hús- skrifii þarna þar sem enginn bjó og svaf fram undir morgun. Um morguninn fékk ég síðan far með skólabílnum á leiðarenda. Þessa nótt upplifði ég án efa leiðinlegustu stundir lífs míns og fannst mér þetta bæði tilgangslaus og ódrama- tískur atburður. En minning- unni fylgdi einhver djúp og óskilgreinanleg tilfinning sem síðan gaf mér hugmyndina að sögunni „Gildran". Þeir sem lesa söguna sjá að atburðir hennar eru harla ólík- ir því sem ég upplifði. Þetta heitir víst að tengja reynslu sína við ímyndunaraflið." □
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.