Vikan


Vikan - 15.09.1988, Blaðsíða 13

Vikan - 15.09.1988, Blaðsíða 13
það er krafa kjósenda að fleiri konur taki þátt í stjórnmálum. Það er ekkert eðlilegra, helm- ingur heimsins er okkar og því eigum við að deila ábyrgð og völdum. Jafhrétti er ávinning- ur fyrir bæði kynin og að því þurfa þau að vinna hlið við hlið. Við eigum að forðast að stilla karlmanninum upp sem einhverjum erkióvini, það er ekki vænlegt til árangurs. Það er mjög brýnt að konur sæki í sig veðrið og hætti að vantreysta sér til þeirra hluta sem þær langar til að gera. Hvort sem það er til dæmis að fara út að vinna eftir eitthvert hlé, gefa sig að stjórnmálum eða taka að sér ábyrgðarstöð- ur. En auðvitað vitum við að til að fjölskyldukonur geti með góðu móti sinnt kröfuhörðu starfi, þarf viss verkaskipting að vera á heimilinu. Það sinnir enginn slíku starfl sem þarf einn að burðast með áhyggjur og samviskubit yfir börnum og búi. Sem betur fer er ágætis samstarf á mínu heimili, ann- ars gæti ég víst ekki verið að vasast í þessu öllu. En það að konur verði virk- ari í samfélaginu er nauðsyn- legt, bæði vegna þess að ég held að það sé hverri mann- eskju þörf og svo sú staðreynd að helmingur mannkyns eru konur. Það veitir ekki af að koma á meira jafnvægi í heim- inum með breyttu gildismati. Ég er svo hjartanlega sammála þeirri rnerku konu, Astrid Nöklebye Heiberg sem er for- maður Landssambands hægri kvenna í Noregi, en hún segir að lífssýn kvenna sem ala af sér börnin, halda heimilunum saman og treysta fjölskyldu- bönd, sé óneitanlega meira í tengslum við raunveruleikann en lífssýn karla almennt. Vissu- lega hafa karlar og konur oft skiptar meiningar um for- gangsmál og áherslupunkta í stjórnmálum, þar bítast á hin svokölluðu hörðu og mjúku gildi. Og því gat ég ekki varist að velta því fyrir mér, úti í Osló um daginn, hvernig yflr- bragðið hefði nú verið ef tíu þúsund karlar hefðu verið þar samankomnir á ráðstefnu. Um hvað hefðu þeir rætt? Það læðist að mér sá grunur að efnahagsmál og vopnafram- leiðsla hefðu verið ofarjega á blaði. En hefðu þeir rætt um Ktirlmanninn og fjölskylduna eða vandamál innfleytjenda eða kynferðisglæpi gagnvart börnum eða jafnréttismál á Norðurlöndum? Hefðu þeir sýnt þar listmuni sína eða haldið listahátíð?? Er ekki kominn tími til að fara að líta sér nær og huga meir að manneskjunni og mannlegum samskiptum....? □ Að loknum laxveiðum 3AFII Landakotsmálið svo- nefnda hefur vakið mikla athygli á undan- V förnum vikum, þó ýmislegt fleira hafi orðið uppi á teningnum. Það sem almenn- ingi þótti þó alvarlegast var að hægt væri að greiða einum manni árslaun upp á 15 millj- ónir samkvæmt athugasemd- um ríkisendurskoðanda. Snarpasta yflrlýsingin kom þó úr munni Jóns Baldvins fjármálaráðherra þegar hann sagðist gefa stjórn Landakots- spítala núll í einkunn fyrir fjár- málastjórn. Þá vekur það athygli að í einhvers konar stjórnunarráði spítalans bregður fyrir nöfnum eins og Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri, Höskuldur Ólafs- son bankastjóri Verslunar- bankans og Óttar Möller fyrr- verandi forstjóri Eimskips ásamt fjölda annarra fjár- málajöfra í íslensku þjóðlífl. Það er sárt að allir þessir góðu menn skuli fá falleinkunn hjá Jóni Baldvin þó engin hætta sé á því að þessir ágætu synir þjóðarinnar þurfi að bera nokkra ábyrgð á þessum spítalarekstri. Annars er fólk farið að trúa því að þarna hafl enginn ósónii verið á ferðinni enda hefur ólygnasta blað landsins, Morg- unblaðið, þegar spanderað einum leiðara til að draga fjöð- ur yfir rnálið og ýjað að því að jafhvel hafi verið staðið rangt að þessari endurskoðun. Það má því búast við því að ef nokkur sökudólgur frnnst í þessu tilþrifamáli þá verði það ríkisendurskoðandi. Vonandi fer ríkisendurskoð- andi ekki að kukla í bækur ann- arra fyrirtækja þar sem sumir þessara fjármálasnillinga eru við stjórn. Ósjálfrátt kentur upp í hugann Landsvirkjun. Lfnahagsmál eru annars mikið í brennidepli og hefúr forstjóranefndin svokallaða verið í sviðsljósinu og í frétt- um daglega og hefur ekki enn fengið falleinkunn. Fjölmiðlar hafa tíundað á hverjum degi að ekkert sé að frétta af störfúm nefndarinnar og yfirlýsingar því engar enn. Þetta kann þó snarlega að hafa breyst þegar þessi skrif komast á þrykk. En almennt er búist við niðurfærsluleið, það er að segja að kaup verði lækk- að jafnvel um 10% sem þýðir að fiskvinnslukona sem hefur 225 krónur á tímann lækki um 22,50 og yflrlæknirinn á Landakoti um hvorki meira né rninna en eina og hálfa milljón. Þetta hlýtur að verða mjög s;irt fyrir hann. Því flýgu einnig fyrir að draga eigi úr opinberum frarn- kvæmdum, nieðal annars frarn- kvæmdum borgarinnar. Auð- vitað er það fjandi hart fyrir Davíð sem er á fúllu við að byggja ráðhús og hefur þegar pantað hvolfþak úr gleri sem á að snúast yfir hitaveitugeym- unum í Öskjuhlíð. Klóak- húsinu við Skúlagötu mun hins vegar verða lokið og Davíð verður örugglega búinn að klippa á borðinn og sturta nið- ur í fyrsta sinn. Svo hefur kvisast að for- stjóranefndin ætli að leggja til að ráðherrar og bankastjórar borgi veiðileyfl sín sjálflr. Þetta setur mikinn óhug að mönnum á æðstu stöðum. Endanlegar niðurstöður efnaliagsráðstafananna munu verða birtar þegar sá helming- ur ríkisstjórnarinnar sem er erlendis kernur heim og hinn helmingurinn frá laxveiðum sínum. Nú fer að kólna er- lendis og laxveiðivertíðinni senn að ljúka og þá mun vænt- anlega verða haldinn ríkis- stjórnarfúndur. Allavega verð- ur hann haldinn áður en Matt- liías og Birgir ísleifur fara til Seoul. Bara að forstjóranefndin leggi ekki til að farmiðarnir verði dregnir til baka. Páfl, seint í ágúst 1988. Svo hefur kvisast að forstjóranefndin œtli að leggja til að róðherrar og bankastjórar borgi veiðileyfi sín sjólfir. Þetta setur mikinn óhug að mönnum ó œðstu stöðum. VIKAN 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.