Vikan


Vikan - 15.09.1988, Blaðsíða 12

Vikan - 15.09.1988, Blaðsíða 12
sýningu í Berlín og viðaði þar að mér upplýsingum og gögn- um sem áttu eftir að koma sér mjög vel. Svo var útgáfufélagið Farvegur stofnað, af mér, nú- verandi manni mínum og þremur börnum og er starf- rækt hér á heimavelli. En það stóð lengi í mér hvað blaðið ætti að heita og mér fannst engan veginn komast mynd á þetta hugarfóstur fýrr en það væri komið. Ég held ég hafi verið búin að skrifa niður nokkur hundruð nöfh og meira að segja vakna upp um miðjar nætur með rétta nafnið á vörunum, að ég hélt, þegar ég lét verða af því að hringja í Þórhall Vilmundarson hjá Orðabók Háskólans. Hann kom síðan með nokkrar tillög- ur og ein þeirra var Farvís. Farvís vísar þér för og sá sem er farvís er öruggur í ferðum. Fyrirmynd blaðsins er þýskt ferðatímarit og þegar búið var að ákveða brot og pappír, þá var að ráða útlitshönnuð, fá greinarhöfúnda til að skrifa og auglýsingar upp í kostnaðinn. Þetta gekk allt hægt og sígandi og var engum erfiðleikum háð nema það síðastnefhda. Það var dálítið þungur róður að fá auglýsendur til að átta sig á hverskonar blað væri á ferð- inni. Þetta var mjög skemmti- leg vinna, enda alltaf gaman að byggja eitthvað upp frá grunni. Ég var líka heppin að hafa mjög góða manneskju mér við hlið, Sigrúnu Harðardóttur myndlistarkonu, en hún sá um útlit blaðsins. Sigrún hafði unnið með mér um tíma á Vik- unni og mér féll afskaplega vel hennar handbragð, hún er næmur listamaður og mikill fagurkeri og finnst mér blaðið bera þess glögg merki. Áætlað er að fjögur blöð komi út á ári og meðal efnis í þessu fyrsta tölublaði eru greinar og viðtöl við kunnuga um hina ýmsu staði hérlendis sem erlendis, ferðamálaþættir, ferðafréttir og gagnlegar upp- lýsingar um ýmis atriði, golf, mataruppskriftir og þemaefni, sem verður í hverju blaði, og er að þessu sinni um Asíulönd. Jú, ég hef víða orðið vör við jákvæðar undirtektir, bæði varðandi efhi og útlit blaðsins. Einstaka raddir hafa helst fund- ið að því að of mikið efni sé í blaðinu og má það kannski til sanns vegar færa, því ekkert létt uppfyllingarefhi er í því eins og oftast er í öðrum blöðum. Ég er byrjuð að undirbúa næsta blað sem á að koma út í október og jafnframt bíður mikil vinna við að aug- lýsa upp blaðið, fá áskrifendur og sýna fram á að svona tímarit hefur mikið safngildi. Ferða- greinar fyrnast seint og trúlega eiga margir eftir að finna það 12 VIKAN sem þeir leita að er ffam líða stundir. Ég hlakka til starfsins framundan, mér finnst algjör lúxus að geta verið að vinna við eitt af mínum stærstu áhugamálum. Ég sest við tölv- una og í næstu andrá er ég komin eitthvað út í heim!“ — Pólitíkin kom til sögunnar í lífi Þórunnar árið 1978. Þá var hún enn heima með börn- in og fannst hún standa svolít- ið til hliðar við samfélagið, ekki vera nógu virk. Hún ákvað að drífa sig í Stjórnmála- skóla Sjálfstæðisflokksins og stuttu síðar var hún beðin um að gefa kost á sér í prófkjör til svo sannarlega er hún allt í kringum okkur. Hún er það lífsmunstur sem við kjósum að lifa eftir og af henni stjórnast umhverfi okkar og aðbúnaður í einu og öllu. Stjórnmál skipta okkur því ekki svo litlu. Hins- vegar, þegar stjórnmálaum- ræður hætta að vera málefhan- legar og fara að einkennast af persónulegum kýtum, þá er stutt í leiðindin. Fjölskyldupólitíkin hér heima getur stundum verið ansi lífleg. Það tilheyra ekki all- ir sama flokki þannig að oft eru fjörug skoðanaskipti. Egill, maðurinn minn, er einlægur ■ ...hefðu þeir rœtt um karlmanninn og fjölskylduna eða vandamól innflytjenda eða kynferðisglœpi gagnvart börnum? Hefðu þeir sýnt þar listmuni sína eða haldið listahatíð?" borgarstjórnar. Hún lenti í nítjánda sæti og svo fór ýmis- legt að gerast. „Ég segi stundum að ég sé pólitíkus í hálfu starfi. Er vara- borgarfulltrúi í Reykjavík, fýrir Sjálfstæðisflokkinn, og á því sæti í nokkrum ráðum og nefhdum. Vissulega tekur slík fundarseta oft drjúgan tíma ásamt öðru sem til fellur og tengist þessu. Svo er ég for- maður Landssambands Sjálf- stæðiskvenna, þar sem ýmsu þarf að sinna líka svo segja má að samtals fari tveir til þrír dagar í viku í pólitískt starf. Ég er einnig starfandi í I.ionshreyfingunni og var fyrsti formaður Lionessuklúbbs sem stofnaður var í Reykjavík 1984. En sl. vor var stigið það merka skref að leggja hann nið- ur og stofna Lionsklúbb. Það gerðist í kjölfar breytinga á al- þjóðalögum hreyfmgarinnar, sem nú heimila inngöngu kvenna í Lionsklúbba. Og nú á ég sæti í fjölumdæmisstjórn Lionsumdæmanna hér og er eina konan á Norðurlöndum sem vermir slíkt sæti. Karla- veldið er því smám saman að láta undan. Það er mjög gefandi finnst mér, að starfa að félagsmálum og eftir að ég fór að vinna heima við er góð tilbreyting í því að fara út á fundi. Pólitíkin er mjög góður skóli, ekki ósvipaður blaðamennskunni að því leyti að maður fær góða yfirsýn yfir marga þætti þjóð- félagsins. Eiginlega skil ég ekk- ert í þeim sem sífellt þusa um hvað pólitík sé leiðinleg, því stuðningsmaður Steingríms Hermannssonar og ég Þorste- ins Pálssonar, svo það er eigin- lega farsælast fyrir heimilislífið að þeirra samstarf sé sem best....“ - Þórunn viðurkennir að það hafi verið töluverð átök fyrir 37 ára heimavinnandi húsmóður að hella sér út í störf utan heimilisins. Sjálfs- traustið hafi svo sem ekki ver- ið upp á marga fiska. „Það hefur komið sér að ég er námskeiðasjúk" segir hún hlæjandi, „þau leiddu ýmislegt af sér. Nokkrum árum áður en ég fór í Stjórnmálaskólann hafði ég sótt leiðsögumanna- námskeið og eftir það starfaði ég smá tíma sem leiðsögumað- ur. Það var mitt fyrsta starf síð- an flugfreyjustarfið áður en ég giftist. Seinna fór ég svo á námskeið í dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu, sem varð til þess að um tveggja ára skeið sá ég, ásamt fleirum, um þátta- gerð hjá útvarpinu. í framhaldi af þessu, eða 1980, hafði svo Ellert B. Schram ritstjóri sam- band við mig og bauð mér starf sem blaðamaður á Vísi. Þetta kom því svona hvað af öðru og raunar að hluta til af nauðsyn því ég skildi á þessu tímabili og varð einstæða móðir. Þetta var oft erfitt fyrst, ég var full af vantrausti á sjálfa mig og oft var ég að því komin að snúa við á tröppum Vísis og fara bara heim í skjólið. Ekki var það heldur til að efla sjálfs- traustið að vera sett á byrjend- alaun eins og óharðnaður ung- lingur, að átján ára uppeldis- og stjórnunarstarf væri einskis metið. En nú er sem betur fer farið að meta þá reynslu hús- móður sem hverja aðra starfs- reynslu." — Talið berst nú óhjákvæmi- lega að hinu sígilda umræðu- efhi, jafhréttismálum kynjanna — enda er Þórunn formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkur- borgar og er nýlega komin frá Osló, þar sem hún tók þátt í Nordisk forum ásamt hópi Sjálfstæðiskvenna. „Ég upplifði Nordisk Forum sem mjög jákvæða samkomu. Það var mjög sérstætt samfélag sem myndaðist þarna á Blind- ern þessa daga, afslappað og litríkt. Þarna hitti maður fjölda kvenna, ekki bara frá Norður- löndum heldur víðar, eina hitti ég t.d. frá Botswana. Og það er sannarlega til góðs og eykur víðsýni að ólíkar konur hittist og skiptist á skoðunum. En það er varla hægt að kalla þetta ráðstefnu, því þetta var blanda af öllu mögulegu. Þarna var einskonar námsstefha með fræðandi fyrirlestrum, ýmsar uppákomur, konur að selja handunna listmuni sína, kynn- ingarstarfsemi, listahátið og margt fleira. Við Sjálfstæðiskonur vorum með kynningarbás og vorum við ánægðar með hvað honum var sýndur mikill áhugi. Einnig vorum við með eina sjö fýrir- lestra og þrír þeirra voru í tengslum við samstarf með skoðanasystrum okkar í sam- bærilegum flokkum á hinurn Norðurlöndunum. Þema þess- ara fýrirlestra var „Konan og fjölskyldan“ og var mjög ánægjulegt að komast að raun um hversu samstíga við erum í því sem við erum að gera í þessum málum. En það er nú samt staðreynd að jafnréttismál eru töluvert lengra á veg komin í nokkrum nágrannalandanna en hér, ekki hvað síst launajafnréttið. Svíar eru komnir lengst hvað snertir félagsleg réttindi kvenna og í Noregi hefur í mörg ár verið 40% kvótaregla fýrir þátttöku kvenna í pólitík. Þetta hefur gjörbreytt stöðunni þar. Svo hitti ég konu frá Bandaríkjun- um sem hefur nokkuð aðra viðmiðun. Hún sagði áberandi að á Norðurlöndum stæðu konur framarlega í stjórnmál- um en alls ekki eins framarlega í atvinulífinu. Þessu væri öf- ugt farið í Bandaríkjunum, þar sem konur eru nú mjög ffam- arlega í atvinnulífi og stjórnun- arstörfúm en ekki í pólitíkinni. Hér á íslandi vantar enn of mikið upp á launajafhrétti og þátttöku kvenna í stjórnmál- um. En ég hef þá trú að þetta fari nú að breytast, fylgi Kvennalistans sýnir okkur að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.