Vikan - 15.09.1988, Blaðsíða 40
BODY LD'
I <jSi.iihlm.nii,
Active
BodySlimnvr
lotion
medcollJS«M
Active
BodySTimmin-
massagecrém-
Body Slimmi;
trémeshamp
Anticcllul'i
Aqticellulit
Frískur herra
SNYRTING
Hvað er nýtt og gott á
markaðnum fyrir
herra? Ýmislegt, en
við rákumst á sér-
lega ferskan ilm frá Cardin sem
heitir Bleu Marin (bláa hafið).
Ilmurinn fylgir manninum all-
an daginn og alls staðar, því
þetta er “body shampoo" sem
hann þvær sér með í morgun-
sturtunni og kemur svo frískur
og lokkandi í vinnuna. Flestir
sem byrja að nota sjampóið fá
sér fljótlega einnig raksápu,
svitalyktareyði og handsápu
með sömu lykt... til að vera alla
veg vissir um að vera ferskir
og ómótstæðilegir allan
daginn...
Baróttan við
„appelsínuhúðina"
Margir snyrtivöru-
framleiðendur eru
farnir að ffamleiða
vörur sem hjálpa
eiga í hinni eilífu baráttu við
„appelsínuhúðina" eða „cello-
lite“ og eru Danir þar með á
nótunum. í dönsku snyrtivöru-
línunni Body-Line, sem ís-
lensk-danska flytur inn, eru til
vörur sem verið hafa á mark-
aðnum í Danmörku í 6 ár sem
virka eiga á þennan „fjanda".
Þessar vörur kallast „Body-
SIim“ og eru nú fáanlegar á ís-
landi en reynslan af notkun
þeirra í Danmörku. hefur verið
mjög góð.
Það sem flestir virðast vera
sammála um varðandi „cello-
lite“ er að bandvefur húðar-
innar losar sig ekki við úr-
gangsefni sem skyldi, blóðrás-
in er ekki í nógu góðu lagi, og
að fitufrumurnar safna í sig
óeðlilega mikilli fitu. Með
notkun „Body-Slim“ varanna á
blóðrásin að batna og þær eiga
að hafa uppbyggjandi áhrif á
bandvef húðarinnar um leið
og þær losa um samansafn úr-
gangsefha í vefjunum.
„Body-Slim“ er í þrem
glösum. í því fyrsta er fljótandi
sápa sem hefúr mýkjandi og
slakandi áhrif á vöðvana, ein-
nig bætandi áhrif á blóðrásina.
í því næsta er hlaup sem
best er að nudda á „vondu“
staðina með grófum nudd-
hanska eða bursta. Best er að
nudda með hringlaga hreyfing-
um í átt að hjartanu og nudda
þar til húðin er orðin heit. Við
þetta eykst blóðrásin enn frek-
ar og vinnur þá um leið betur
að því að hreinsa burt saman-
safh úrgangsefha, fitu og vatns.
Að lokum er „Body Slimm-
ing Lotion" krem borið á húð-
ina, sem inniheldur collagen
sem hjálpar húðinni að halda
teygjanleika sínum um leið og
það vinnur gegn „cellolite". Til
að árangur komi fljótt í ljós
þarf að nota vörurnar í 15
daga, kvölds og morgna, en til
að árangurinn haldist þarf að
nota vörurnar áfram til fýrir-
byggjandi aðgerða því „cello-
lite“ flýtir fyrir öldrun band-
vefja húðarinnar — og það vilj-
um við auðvitað ekki að gerist.
□
Méthodf
BODYSL^
Méthode
bodyslim
BODYSLIM
body li
ÖODY LI
otSaaK&um
38 VIKAN
i