Vikan - 15.09.1988, Side 26
Bankaræningjjarnir drápu þau
farþegunum utan tveimur stúlk-
um og í staðinn fengu þeir grá-
an BMW. Þeir óku aftur til
Þýzkalands með þær Silke Bisc-
hofif og Ines Voitele, 18 ára
gamlar vinkonur sem verið
höfðu í vagninum og enn var
Marion Löblich með í förinni.
Numið var staðar á kafifíhúsi í
Köln. Degowski, Rösner, Lö-
blich og stúlkurnar sátu í bíln-
um og sötruðu kafifi á meðan
hundruð blaðamanna og ljós-
myndara og forvitinna áhorf-
■ enda fylgdust með þeim. Rösn-
er sagði blaðamönnunum að
hann hefði ekki haldið að lög-
reglan væri eins vitlaust og raun
bar vitni, og því hefði drengur-
inn verið skotinn. Drápið væri
því lögreglunni að kenna. Hann
sagði líka að þeir hefðu nóg af
kókaíni og snaps til þess að
halda sér gangandi lengi enn.
Peningarnir skiptu þá öllu máli,
nú ættu þeir peninga en betra
væri að vera dauður en pen-
ingalaus.
Óttaðist að einhver
yrði drepinn
Stúlkumar í bílnum fengu
líka að svara nokkrum spum-
ingum. Silke Bischofif sagðist
vera hrædd um að reyndi lög-
reglan að bjarga þeim yrði ein-
hver drepinn. Degowski stillti
sér upp fyrir ljósmyndarana og
miðaði byssu að hálsi Silke.
Þessi óvenjulegi blaðamanna-
íúndur endaði snögglega þegar
Rösner hélt sig sjá óeinkennis-
klæddan lögreglumann nálgast.
Hann stökk upp í bílinn og ók á
brott á ofsahraða.
Aðeins tveimur stundum síð-
ar varð ótti Silke að raunvem-
leika. Lögreglubílar komu þjót-
andi eftir hraðbrautinni, reyk-
sprengju var kastað að bíl ræn-
ingjanna, skothríð heyrðist og
ræningjamir vom yfirbugaðir.
Rösner hafði særst í skotárás-
inni og sömuleiðis Ines Voitle,
en Silke Bischofif var dáin. Deg-
owski hafði skotið hana í hjarta-
stað.
Þessi skelfllegi harmleikur
var á enda og þýska þjóðin var
eins og lömuð eftir að hafa
fylgst með því sem gerðist jafht
í sjónvarpi, útvarpi sem og í
blöðum. Aldrei höfðu fjölmiðlar
gengið jafhlangt og nú höfðu
þeir svo sannarlega gengið of
langt að allra mati. Lögreglan
hafði gert sig seka um vanhæfni
og henni var kennt um dauða
ungmennanna tveggja. □
Dreymdi um
að verða
útvarpsvirki [v
Emanuele fermdist í gamla þorpinu heima á Ítalíu. Hér er
hann á fermingardaginn með móður sinni og við hlið hans
stendur litla systirin Tatiana.
Emanuele, sem er 15
ára, leggur handlegg-
inn utan um litlu systur
sína, Tatiönu, sem er átta ára.
Skelflngin skín úr augum
þeirra þegar þau fylgjast með
vopnuðum ræningjunum, sem
komnir eru inn í strætisvagn-
inn. Emanuele de Giorgi er
hugrakkur drengur, en hann
veit ekki að líf hans er nær á
enda, aðeins þrjár stundir eftir.
Klukkan er átta að kvöldi mið-
vikudagsins 17. ágúst. Systkin-
in sitja í strætisvagni nr. 53 í
Bremen. Ræningjarnir standa í
samningaviðræðum við lög-
regluna og nú grípur annar
þeirra í svart hár Tatiönu og
heldur henni fram um leið og
hann miðar á hana byssunni. —
Telpan deyr ef þið farið ekki
að óskum okkar. Síðan hendir
hann telpunni aftur í sætið.
Emanuele þrýstir systur sinni
þéttar að sér eins og hann hef-
ur alltaf gert, þegar hann hefúr
þurft að hugga hana. Nú tekur
hann hana í fang sér og reynir
að vernda hana fyrir þeirri
skelflngu sem bíður. Hann hef-
ur horft í augu Rösners, fúndið
sambland af áfengisþef og
svitalykt, sem leggur af ræn-
ingjanum. Hann veit að allt
getur gerst. Lágum rómi hvísl-
ar hann í eyra hins 25 ára
gamla sessunautar síns: — Viltu
gæta systur minnar ef eitthvaði
kemur fyrir mig.
Þremur stundum síðar hefur
lögreglan náð vinkonu ræn-
ingjann og vill ekki sleppa
henni aftur. — Bölvuð svínin,
þið hafið flmrn mínútur til að
hugsa ykkur um og sleppa
konunni, annars drepum við
þann fyrsta, er hrópað. Ekkert
gerist og nú þrífur ræninginn
Tatiönu úr örmum bróður
hennar. Hún rekur upp angist-
arvein á ítölsku og Emanuele
stekkur upp úr sætinu og ætlar
að verja systur sína.
Degowski snýr sér við, skoti
er hleypt af. Blóðið spýtist úr
sári á höfði Emanueles, það
rennur niður eftir jakkanum,
hvítri skyrtunni, buxunum og
niður á hvíta íþróttaskóna.
Degowski skipar blaða-
mönnunum, sem komnir eru
inn í vagninn að draga Eman-
uele út. Enn grípur glæpamað-
urinn í hárið á Tatiönu og
dregur hana út úr bílnum um
leið og hann öskarar að lög-
relgunni, að telpan verði
drepin, sé vinkonan ekki látin
laus. Marion Löblich er komin
inn í bílinn eftir augnablik.
Emanuele, sem Tatiana kall-
aði alltaf Mano, deyr stundu
síðar í höndum læknis. Mano
hafði bjargað systur sinni.
Höfðu flúið
fátæktina á Ítalíu
í 85 fermetra íbúð í Bremen
býr de Giorgi-fjölskyldan,
hjónin Aldo og Guiseppina og
bærðurnir Fagio 12 ára og Em-
anuele 15 auk systurinnar Tat-
iönu. Þau hafa ekki átt sjö dag-
ana sæla í Þýskalandi. Þau
höfðu fyrst komið þangað frá
Ítalíu fyrir allmörgum árum.
Eftir atvinnuleysi og erfiðleika
fluttu þau aftur heim, en þar
var lífið engu léttbærara en í
Þýskalandi og nú voru þau
komin í annað sinn til að
freista gæfúnnar. Þrátt fyrir fá-
tæktina og erfiðleikana stóðu
börnin sig vel. Emanuele var
duglegur í skólanum og hafði
ákveðið að verða útvarps- og
sjónvarpsvirki og hafði meira
að segja komist að sem lærl-
ingur. Hann var búinn að
smíða feiknastóra hátalara sem
stóðu við rúmið hans og á
vegnum hékk mynd af Sylvest-
er Stallone (Rambo) átrúnað-
argoðinu. Þar var líka mynd af
ítalska fótboltalandsliðinu og í
einu horninu var sandpoki
sem Mano hafði sjálfúr útbúið
til þess að geta æft box, sem
var hans uppáhaldsíþrótt.
Drengurinn hefði orðið 16 ára
á jóladag. Hann hafði haft mik-
ið dálæti á afa sínum í Lecce í
Apulia á Ítalíu og setið tímun-
urn saman hjá honurn á tréð-
smíðaverkstæðinu hans. Hann
hafði ætlað sér að snúa aftur
heim til Ítalíu einn góðan
veðurdag. Það hefúr hann líka
gert, en aðeins til þess að
hljóta þar hinstu hvíld í kirkju-
garðinum í þorpinu heima.
í Þýskalandi sitja eftir
foreldrarnir og systkinin tvö,
bróðirinn og litla systirin sem
á honum líflð að launa. Hún
var óendalega þögul og augna-
ráðið fjarrænt þegar komið var
með hana heim eftir að ræn-
ingjarnir höfðu sleppt hend-
inni af strætisvagninum og
gíslunum. Það eina sem hún
sagði þegar móðir hennar ætl-
aði að strjúka hendinni hug-
hreystandi yflr hárið, var: -
Ekki koma við höfuðið, en það
var stokkbólgið og aumt eftir
meðferð rængingjanna.
26 VIKAN