Vikan


Vikan - 15.09.1988, Side 38

Vikan - 15.09.1988, Side 38
-iíjdsaíMiiífiíxzisimiim ' • ‘■M&'t1'r ■ ' ' !■ " • ' .■ ggj .. . | ■ | ■ míSfílB Mi/im ■ ffil Draumaferðin -sigling með skemmtiferðaskipi um Austurlönd TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON F\ Iesta dreymir um að fara einhvern tíma með skemmtiferðaskipi til fjarlægra landa. Hvers vegna? Jú, vegna þess að ein- hver spennandi ævintýraljómi virðist vera yflr skemmtiferða- skipum. Þau eru svo ótrúlega stór og tilkomumikil, yflrleitt drifhvít og glæsilega búin hús- gögnum og öðrum innanhús- munum. Þar er mannlífið mik- ið og fjölbreytilegt, enda oft rúmlega sjöhundruð farþegar um borð eða jafnvel fleiri eftir stærð skipsins, og þar er skemmtanalífið fjölbreytt að sama skapi. Ferð með skemm- tiferðaskipi er því í hugum margra óskadraumurinn. Síðustu vikuna í ágúst lá við bryggju í Sundahöfn eitt af þessum drifhvítu og glæsilegu skemmtiferðaskipum. Þetta var skip frá norska skipafélag- inu Royal Viking Line, sem reyndar hefúr aðsetur í San Fransisco og munu Samvinnu- ferðir-Landsýn bjóða upp á ferð með einu skipa félagsins í nóvember næstkomandi þar sem siglt verður um Austur- lönd fjær og „gimsteinar" Aust- ursins skoðaðir. Af þessu til- efni var blm. Vikunnar og til- vonandi farþegum boðið að skoða skipið — og því er ekki að neita að þegar komið er um borð þá ber hugurinn mann hálfa leið... Singapore, Hong Kong, Kína, Manila, Borneo... Ferðin hefst þann 8. nóv- ember með því að flogið er til Kaupmannaliafnar um eftir- miðdaginn og þar síðan gist eina nótt á góðu hóteli við Ráðhústorgið, Palace hóteli. Síðari hluta næsta dags er flog- ið með Singapore flugfélaginu, sem rómað er fyrir einstaka þjónustu um borð, beina leið til Singapore og um leið inn í annan og ólýsanlegan menn- ingarheim. Þar verður staldrað við eina nótt og gist á góðu hóteli. Þaðan liggur leiðin til Hong Kong þar sem gist er eina nótt og síðan hægt að fara að versla eða skoða sig um í borginni daginn eftir, undir leiðsögn ef vill. Flestir sem fara til Hong Kong nota tækifærið og kaupa vandaðan fatnað sem kostar offjár annars staðar, einn- ig láta margir klæðskera- sauma á sig fatnað og þar á Það er notalegt að Cá sér sundsprett og kæla slg þegar siglt er um Kínahafið... Þó ekki þurfi að taka upp peningaveskið allan tímann sem dvalið er um borð, þá er haett við að flestir falli fyrir einhverri freistingunni sem býðst í verslununum á „verslunarganginum“. s k 36 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.