Vikan


Vikan - 15.09.1988, Side 47

Vikan - 15.09.1988, Side 47
RAUPAÐ OG RISSAÐ Að finna á sér „Ef einhverjum langar í kettling..." Þannig mæltist einum „nýbylgjuþulanna" á dögunum. Undirritaður áleit að um fljót- færni, eða mismæli hefði verið að ræða hjá þulnum, en hann endurtók málvilluna vel og greinilega andartaki síðar. Það var því ekki að sökum að spyrja, þulurinn þjáðist greinilega af hinni landlægu þágufallssýki. Virtur fréttamaður Stöðvar tvö var að sýna það og sanna í fréttatíma stöðvarinn- ar á dögunum, að íslendingar væru hættir að beygja sig eftir aurum sem þeir sæju liggjandi á gangstéttinni. Landinn beygði sig ekki íyrir minna en krónu. En ffvtta- maðurinn ágæti talaði um aurinn, en ekki um eyrinn. Hann furðaði sig á því að fólk skyldi ekki taka aurinn upp af gangstétt- inni, en sumir hefðu álitið að slíkur verkn- aður væri í höndum gatnahreinsunardeild- ar. Seinna í sömu frétt talaði fréttamaður- inn um að „rökin væru sú“, í stað þess að tala um að rökin væru þau. Því miður eru fyrrnefhd dæmi um mál- villur á öldum ljósvakans mýmörg. Það versta er að málvillurnar eru jafnan flestar í þeim þáttum sem unga fólkið hlustar á og hætt er við að þær hafl áhrif til hins verra á þeim tíma sem máltilflnningin er að mót- ast hjá unga fólkinu. En látum þrasi lokið að sinni og tökum upp léttara hjal. í undanförnum raupþátt- um hafa verið teknar fyrir setningar sem byrja allar á orðinu AÐ. Teikning hefur fylgt hverri setningu. Raupari hefur bent lesandanum á að reyna að finna út setning- una sem á við hverja mynd, áður en hann hefur lesið textann. Það er því ráð að staldra við núna og líta á teikningarnar. Sem dæmi um setningar sem birst hafa í fyrri þáttum má nefna: Að líta glaðan dag, o.sv. frv. Setningarnar sem fylgja teikningunum í dag eru þessar: Að bíta úr nálinni. Að standa saman. Að snúa aftur. Að fastna sér konu. Að finna á sér. EFTIR RAGNAR LAR VIKAN 45

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.