Vikan - 15.09.1988, Síða 50
Miguel Ortigao, sölustjóri
Gallo í Evrópu, með sýnis-
hom af firamleiðslunni.
Hann var hér á landi nýlega
til að fýlgja eftir sölunni á
„Blush Chablis“.
Séð yfir verksmiðju Gallo í Fresno í Kalifomíu, en tankamir hér taka um 72 milljón gall-
on af víni. Gallo fýrirtækið er með álíka verksmiðjur í Livingston og Modesto og þetta
em þrjár stærstu vínverksmiðjur í heimi samtals taka þær um 250 milljón gallon.
kæmu auga á þær. Allra bragða
var neytt til að fa hvem sem var
til að kaupa framleiðsluna.
Enda er það nú orðið svo að
um leið og sölumaður hjá
Gallo fyrirtækinu fær stöðu-
hækkun eru hinir svokölluðu
„hcadhunters" komnir á eftir
honum. Það eru aðilar sem
fylgjast vel með á vinnumark-
aðinum og eru í því að útvega
fyrirtækjum starfskrafta. í dag
má sjá marga fyrrverandi
starfskrafta Gallo fyrirtækisins
í toppstöðum hjá stórum fyrir-
tækjum í Bandaríkjunum, enda
ef þú stendur þig vel í þeirri
samkeppni sem ríkir innan
fyrirtækisins hlýtur þér að
vegna vel á öðrum sviðum.
Gallo nœr toppnum
Sjötti áratugurinn var gæfu-
ríkur fyrir Gallo. Á því tímabili
óx starfsemin hratt og í lok
áratugarins voru þeir tvímæla-
laust orðnir meðal stærstu
ffamleiðenda Bandaríkjanna
og sá framleiðandi sem hafði
traustastar undirstöður.
Síðustu árin hefúr Gallo
fyrirtækið svo sífellt verið að
styrkja sig í sessi með jiví að
vera fyrst með nýjungar og er í
dag tvímælalaust stærst á
Bandaríkjamarkaðinum. Meðal
þeirra sviða sem Gallo hefúr
verið brautryðjandi á má nefna
framleiðslu á „win e collers"
sem eru léttvín blönduð með
ávaxtasafa og hafa slegið í gegn
í Bandaríkjunum síðalstliðin ár
en eru með svo lága alkahól-
prósentu að þau fást ekki hér á
landi! Sá drykkur frá þeim sem
hefur þó slegið mest í gegn er
ffeyðivínið André, en u.þ.b. 60
milljónir lítrar seldust af því í
Bandaríkjunum árið 1986.
Ekki einu sinni við íslend-
ingar förum varhluta af þeirri
stefnu Gallo fyrirtækisins að
fylgja vöru sinni fúllkomlega
eftir því nýlega var hér á landi
sölustjóri þeirra í Evrópu, Mi-
guel Ortigao, til að fylgja eftir
nýjustu framleiðslu þeirra á
markaðinn hér. Að hans sögn
er tilhneigingin í Bandaríkjun-
um í þá átt að fólk neytir í æ
ríkari mæli drykkja með lágri
alkahólprósentu eins og sést á
því hve „wine coolers" hafa
orðið geysilega vinsælir þar.
Ástæðan er að fólk þar er farið
að vilja geta fengið sér vín
með mat án þess að verða fyrir
áhrifúm af áfenginu.
Nýtt á markaðnum
einnig til íslands
Nýjasti leikur Gallo fyrir-
tækisins í vöruþróun svarar
einmitt þessari eftirspurn, en
það er hið svo kallaða „Blush
Chablis". Eins og nafnið gefur
til kynna er það ljósrautt á lit,
en er samt sem áður hvítvín.
Og styrkleikinn er einungis
helmingur af því sem venju-
legt er með hvítvín. Að sögn
Miguels hefur þetta vín alger-
lega slegið í gegn í Bandaríkj-
unum og þá sérstaklega hjá
kvenfólki, enda er drykkurinn
óvenju fallegur að sjá, en litur-
inn er fenginn með því að hýð-
ið af þrúgunum er látið liggja í
víninu stutta stund, en það er
einmitt það sem gefur rauð-
víninu litinn. Annað atriði sem
hefúr gert Blush Chablis svona
vinsælt er hve fjölhæft það er
vegna litarins og hins milda
bragðs. Það má nota með mat,
sem fordrykk, sem kokkteil
eða jafnvel með ostabakka eða
öðru meðlæti fýrir framan
sjónvarpið. Ekki er svo verðið
til að skemma fýrir víninu á
markaðinum, en flaskan af því
er á innan við 500 krónur í Rík-
inu eins og reyndar hvítvínið
firá Gallo, en það er með því al-
ódýrasta sem gerist og alveg
glettilega gott. Fyrir þá sem
áhuga hefðu á að panta vín frá
Gallo má geta þess að umboðs-
aðili þeirra hér er Íslensk-Am-
eríska hf. □
Gallo verksmiðjumar em sjálfar sér nægar að flestöllu
leyti. Fyrirtækið er með eigin glergerð, vínrækt, dreifing-
arkerfi og rannsóknaraðstöðu. Það eina sem er aðkeypt
em korktappamir, en þeir em keyptir firá Portúgal og em
sérstaklega valdir þar.
48 VIKAN
LJÓSM.: ADOLF ERLINGSSON