Vikan - 15.09.1988, Side 57
„Vímuefhi hirða af þér sálina," segir Brian Wilson
Brian Wilson I Beach Boys
er vaknaður til lífsins á ný
„Ég dró mig til baka um tíma, en nú
er ég kominn aftur.“ Þetta segir Brian
Wilson fyrrverandi meðlimur í Beach
Boys. Brian hefúr átt erfitt undanfar-
ið; hann hefur barist við eiturlyfja-
vandamál og geðsjúkdóma, en nú er
hann að koma undir sig fóúmum á ný
og er að gefa út plötu.
Hann er orðinn 46 ára, andlitið er tekið
og hendurnar titra, en augnaráðið er
óhvikult og hann svarar spurningum af
hreinskilni. Nú gerir hann sér grein fyrir
því hvað olli geðveiki hans og ofneyslu
vímuefna sem hófst á gullárum Beach
Boys. „Ég sé nú að ég myndi hafa gert hlut-
ina á annan hátt. Ég gerði allt sem ég hélt
að öðrum þætti flott að ég gerði. Það var
lífsspursmál fyrir mig að fá hrós frá öðrum.
Hvers vegna veit ég ekki, það var eins og
mig hafi skort eitthvað. Allt sem ég get
sagt nú er að þetta hefur verið virkilega
erfitt."
Hann hefur komið jafnvel bjartsýnustu
aðdáendum sínum verulega á óvart með
fyrstu plötu sinni Brian Wilson. Þetta er
ein mest grípandi platan sem komið hefúr
ffam á árinu og þetta er fyrsta platan sem
Brian hefur lokið við síðan árið 1970 þeg-
ar Sunfíower kom út með Beach Boys. „Ég
er dálítið kvíðinn yfir því hvernig plötunni
verður tekið á almennum markaði. Það var
erfitt að vinna hana þannig að hún yrði
eins og ég vildi. Maður verður að vera viss
um að allt virki rétt. Er allt í lagi með haus-
inn á mér í dag? Hvað með hendurnar?
Virka þær eins og hægt sé að spila með
þeim í dag?“
Svartnættið skall á fyrir Brian skömmu
eftir útkomu plötunnar Pet Sounds með
Beach Boys. Hann náði sér ekki út úr sínu
einmana helvíti fyrr en árið 1983 þegar
sálfræðingur í Los Angeles, Eugene Landy,
tók hann undir sinn verndarvæng og fylgd-
ist með honum allan sólarhringinn í lang-
an tíma, sem leiddi til þess að hann kont
smátt og smátt upp á yfirborðið á ný og
inn í okkar raunverulega heim.
Andlit hans er markað en hann er grann-
ur og kvikur, freknóttur í framan og bláu
augun skýr, þannig að hann er ótrúlega
strákalegur í útliti enn. Þó sjást enn þess
merki að hugurinn er ekki að fúllu búinn
að ná sér. Af og til starir Brian út í loftið.
Hann gnístir tönnum og ranghvolfir aug-
unum. Hann tekur daglega inn meðul og
vakað er yfir honum allan sólarhringinn;
hann vaknar þunglyndur á næstum hverj-
um morgni.
Þokunni léttir þó stundum, eins og
þennan dag sem hann er í viðtalinu. Hann
man vel eftir sársaukafullri fortíðinni. Fyrir
fimm árum var hann í hræðilegu ástandi.
Hann var um 150 kíló að þyngd, drakk
stöðugt og niikið, tók hvaða lyf og pillur
sem hann komst yfir og þekkti ekki lengur
eigin tónverk.
„Ég var algjörlega á botninum. Ég var
svo ruglaður og veikur fyrir hjarta. Svo
hugsaði ég ekki uni annað en mat og gat
ekki hætt að borða. Ég hafði ekki hugmynd
um hvað væri raunveruleikinn og hvað
ekki. Ég átti sand af peningum þannig að
ég gat keypt hvaða vímuefni sem mig lang-
aði í. Vímuefni kaffæra sál þína og þú veist
ekki hver er hinn raunverulegi þú. Það var
enginn í lífi mínu sem var mér það nákom-
inn að hann skipti sér af því hvernig ég var
að fara með líf mitt. Ég hélt ekki sambandi
við neinn þannig að enginn vissi hvað mér
leið. Það var ekki fyrr en ég var orðinn fer-
tugur að ég fór að hugsa: „Hvað er að þér
maður? Hvað hefur orðið um öll árin?“
Mér leið hræðilega yfir að hafa týnt svo
stórum hluta lífsins, en svo sagði ég við
sjálfan mig að það væri ekki of seint að
byrja núna.“
Nú lifir Brian eftir ströngum reglum og
í vernduðu umhverfi. Hann á fallegt hemili
við Malibu strönd þar sem hann eyðir
miklum tíma í nýju lögin sín. Hann hleyp-
ur á hverjum degi og lifir aðallega á græn-
meti; ekkert áfengi. Nýlega keypti hann
sér gula Corvettu og honum finnst gaman
að fara á myndir sem Debra Winger leikur
í. Ilann hittir fyrrum félaga úr Beach Boys
afar sjaldan og sér táningadætur sínar,
Carnie og Wendy, sárasjaldan en þær búa
hjá móður sinni Marilyn sem er fyrrver-
andi eiginkona Brians.
Sá eini sem Brian hefur reglulegt sam-
band við er sálfræðingurinn Landy, en
hann gerði nokkur laganna á plötunni með
Brian, auk þess sem hann gaf hana út.
Vegna þess að hann er bæði sálfræðingur
Brians og umboðsmaður þá eru yfirvöld
nú að kanna hvort hann hafi farið út fyrir
siðgæðismörkin og starfsleyfi hans er í
hættu. En Brian segir að Landy hafi bjargað
lífi sínu og það sé ekki verið að notfæra sér
ástand hans. Brian segist ekki vera tilbúinn
til að standa á eigin fótum og vera án
hjálpar Landys. „Ég er hræddur", segir
Wilson. Alla vega er framtíðin töluvert
bjartari en hún var fyrir fimm árum og nú
er bara að sjá hvernig nýju plötunni vegn-
ar á vinsældalistum víða um heim. □
Lífshlaup snillingsins
■ 1961 Brœðumir Brian, Dennis og Cari
Wilson, ásamt frændunum Mike Love og
Al Jardine stofna Beach Boys
■ Desember 1962. Fyrsta platan kemur
út Sutfifi ’Safarí.
■ Mars 1963. Fyrsta litla platan sem
kemst á 'Fopp 10 listann, Surfin’USA.
■ Maí 1964. Fyrsta platan sem verður
númer eitt; / Ge/ Around
■ Seint á árinu 1964. Brian fær tauga-
áfall í fyrsta sinn. Neitar að koma fram á
hljómleikum.
■ Maí 1966. Brian byrjar upptökur á
plötunni sem aldrei kom út Smile; seinna
reynir hann að e]’ðileggja upptökumar.
■ 1976. Brian fer í stutta meðferð hjá sál-
fræðingnum Eugene Landy.
■ Snemma árið 1983■ Brian gengst und-
irþað að fara I meðferð hjá Landyþarsem
hann er í eftirliti allan sólarhringinn, og
borgar 200 dollara á klukkutímann.
■ Desember 1983. Trommuleikarinn
Dennis Wilson dmkknar ofurölvi.
■ 1988. Plata Brian Wilsons kemur út -
fyrsta platan sem hann hefur lokið við frá
því 1970 — og hún fær góða dóma.
VIKAN 55