Vikan - 15.09.1988, Side 68
M l/ STÍfi FUUl /CVEAA /t/flFA/ tfÓKUL FKAM- KOmA STR'AKfi Hús- HRdP r 1
S/öA UT/W 1 >
VOTfi TLUUuR. >
/ r H/f&eisT t «.£> ÞELA/l KEIRÐi S TOPP PúKfi \/ HóLLTí' J NtSÍfi HEa)Dft Forar, sfi Ri- RÓmU. Zooo ESPR FJÖlúí íöohft
Föl V Z Fd&R fioRÐ- fiNbi ' v/ >
Kl'RK 5T i Ai & 3 > HiTfi- "o FUM S'i&AN > H >
TÍmA- M($Llí íbSLTl V • > / 5/MA- SSi Ð i H-R'o KEðRBi L'EST , / i/
B-i 6>AJ- ftþTU ,/ ÁÍÖU Z BiKS TORFfi V
'OLAaÍ TkRHR
SAMST. T iMft- íbi L • ,/ > uuc.fi fil/fiNfi KETSfC !o > SdbiiR. H-iTfi
/ 1 1 0 Köfini. T RlR
AF- Kt/tf-MÍ 'OTT- i ST Költ
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Pú áttir von á því að
eitthvað gerðist i þessari viku,
sem þú hefur í rauninni kviðið
fyrir lengi. Nú gerist þetta, þó
ekki eins og þú hafðir gert ráð
fyrir, því að í rauninni verður
þetta þér einungis til gleði. Þú
munt þurfa að glíma við erfitt
verkefni í vikunni - en öllum að
óvörum, munt þú leysa afar vel
úr þessu verkefni.
* Nautið
'W 20. apríl - 20. mái
Pað steðja að þér alls
kyns freistingar í þessari viku, og
yfirleitt muntu maður til að
standast þær allar - nema hvað
ein þeirra gæti orðið þér dálítið
erfið. Pú færð gjöf í vikunni, sem
kemur þér á einhvern hátt í svo-
lítinn vanda.
Tvíburarnir
Vyyi 21. maí - 21. júní
i / I þessari viku gerist ýmis-
legt, sem þú áttir ekki von á í
bráð, og verður það til þess að þú
kannt ekki fyllilega að bregðast
við öllu þessu. Pað ber dálitið á
tortyggni og jafnvel öfund í garð
náungans þessa dagana hjá þér,
en slíkt hugarfar er ekki annað
en kjánalegt og bætir hag þinn
síst af öllu. Heilladagur föstudag-
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Líklega verður þessi vika
mjög svipuð því sem þú hafðir
áformað, og yfirleitt mun þér vel
takast að ráða fram úr þeim verk-
efnum, sem liggja fyrir. Líklega
verður samt ekki af ferðalaginu,
sem þú áttirvon á, en það kemur
ekki að sök.
'*xrí\ Ljónið
23. júli - 22. ágúst
Pað segir einhver eitt-
hvað við þig í gamni og mesta
grandaleysi, en líklega tekur þú
þetta allt of alvarlega, og á þetta
eftir að draga dilk á eftir sér.
Endalokin verða þó hin skemmti-
legustu fyrir þig og þann, sem
gerði þér grikkinn. Laugardagur-
inn er dálítið varasamur. Heilla-
tala 9.
Meyjan
VjV-fy 24. ágúst - 23. sept.
v,y Pér munu gefast tvö gull-
væg tækifæri í vikunni, og er
leiðinlegt til þess að vita, að þú
getir ekki nýtt þér nema annað
þeirra - en það geturðu hins veg-
ar nýtt þér til hins ítrasta. Pú skalt
fara að öllu með gát í samskipt-
um þínum við þennan nýja kunn-
ingja þinn, einkum forðast að
lenda í nokkrum deilum við
hann.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Hætt er við einhverju ó-
samlyndi meðal félaga þinna í
þessari viku. Þú munt ekki taka
þátt í þessum deilum, en þú get-
ur hins vegar orðið til þess að
koma öllu í samt lag. Á vinnustað
gerist ýmislegt skemmtilegt -
einkum finnst þér vænt um að
kynnast nýrri hlið á einum vinnu-
félaga þínum.
,'ZrT\ Sporðdrekinn
/h 24. okt. - 21. nóv.
\w Þessi vika verður ekki
nærri eins viðburðarsnauð og lík-
ur voru á - ef til vill þvert á móti,
því ýmislegt gerist í vikunni, en
ekki verður úr því, og úr því það
ekki gerðist núna, verður vissu-
lega bið á því að svo verði. Heilla-
dagur vikunnar er laugardagur.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Petta verður hin
skemmtilegasta vika í alla staði.
Einkum munt þú skemmta þér
heima við og með einhverjum úr
fjölskyldunni. Pú eignast að lík-
indum skemmtilegan félaga í vik-
unni. Pótt þessi félagi þinn sé
ekki jafnaldri þinn, eigið þið engu
að síður ótrúlega margt sameig-
inlegt.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Pú veldur einhverjum í
fjölskyldu þinni talsverðum
áhyggjum sakir framkomu
þinnar, en í rauninni getur þú
ekki við þessu gert, og skaltu
reyna að skýra þetta fyrir þessu
skyldmenni þínu. Miðvikudagur-
inn gæti orðið mikill heilladagur,
ef þú heldur vel á spöðunum. Pú
átt dálítið erfitt með að þegja yfir
leyndarmálum þessa dagana.
Vatnsberinn
'Ji 20. janúar - 18. febrúar
■ '• Það er engu líkara en þú
viljir lifa um efni fram í vikunni og
er leiðinlegt til þess að vita, því
að innan skamms muntu mjög
þurfa á peningum þínum að
halda. Pér verður á glappaskot i
vikunni, sem kemur sér raunar
heldur illa, en þetta verður þér
dýrmæt reynsla og víti til varn-
aðar. Vinur þinn veldur þér ein-
hverjum vonbrigðum um helg-
ina.
Fiskar
V í 19. febrúar - 20. mars
Petta verða miklir sælu-
dagar og þú lifir vissulega lífi,
sem vel á við þig. Þó er eins og
fari smátt og smátt að bera á
undarlegum þætti í fari þínu -
áhyggjuleysið verður einhvern
veginn til þess að þú ferð að
skapa þér smávægilegar áhyggj-
ur, sem þú svo ýkir og svertir.
O:
so
</>
66 VIKAN