Vikan - 20.04.1989, Side 54
Kvikmyndin Þrjú andlit Evu
hefur verið sýnd hér í kvik-
myndahúsum sem og
nokkrum sinnum í sjón-
varpi. Eftirminnileg mynd
þar sem Jóhanna Wood-
ward fór með hlutverk Evu
og hlaut Óskarsverðlaun-
in fyrir. Raunir Evu, sem svo
vel er lýst í kvikmyndinni,
eru óhorfendum ógleym-
anleg. En hvað skildi hafa
ó daga Evu drifið fró því
kvikmyndasagan sagði
skilið við hana? Því lýsir
Ævar R. Kvaran í þessari
grein.
var blátt áfram skömm tengd því að vera
geðveikur — enda var farið með geðveikt
fólk eins og það væri með smitandi holds-
veiki.
„Sannleikurinn var sá, að það var ekki
einu sinni búið að lækna mig þegar kvik-
myndin var sýnd og bókin kom út, enda
þótt dr. Thigpen héldi slíku fram.“ Hann
taldi hana ekki þurfa neina frekari lækn-
ingu við sjúkdómi sínum. Síðar, þegar
doktorinn var spurður nánar um þetta,
hélt hann því fram að hann hefði aldrei
sagt að Chris hefði náð fullum bata. „Ég
vonaði til Guðs að svo væri,“ sagði hann,
„en sannleikurinn er sá að þegar um sál-
ræna sjúkdóma er að ræða getur verið
mjög erfitt að átta sig á slíku. Ég taldi að
vísu að erfiðleikar gætu komið fram með-
an hún væri að ná sér. En ég taldi þá ekki
vera mjög alvarlega. Ég hafði ekki hug-
mynd um að hún þjáðist ennþá af per-
sónuleikatruflunum. Ég er stórhrifinn af
því sem hún hefúr áorkað og finn til
mikillar vináttu til hennar.
Næstu ár reyndi Chris að leita til fjög-
urra annarra lækna, en án árangurs. Þetta
leiddi til slíkrar örvæntingar að hún reyndi
sjálfsmorð. „Mér fannst ég vera alltof mikil
byrði á fjölskyldu minni og myndi aldrei fá
lækningu," sagði hún. Það sem gerðist
næst var að fjölskylda hennar fluttist til
Fairfax í Virginíufylki, þar sem hún árið
1970 kynntist geðlækninum Tony Tsitos.
„Það fyrsta sem hann sagði við mig var:
„Þú getur orðið heilbrigð." En þetta var
einmitt það sem Chris hafði allan tímann
þráð að trúa, „og nú gerði ég það í fyrsta
skipti," sagði hún.
Eftir fjögurra ára meðferð og hjálp dr.
Frh. á bls. 54
TEXTI: ÆVAR KVARAN
s
Arið 1957 kom á markaðinn kvik-
mynd frá Hollywood sem átti eftir
L að vekja geysilega athygli. Hún
hlaut nafhið Þrjú andlit Evu. En þegar
þessi stórkostlega kvikmynd var gerð vissi
enginn hver hin raunverulega Eva var, því
hún var til. Jafnvel leikkonan ágæta, sem
lék þessa konu svo dásamlega að hún hlaut
Óskarsverðlaun fyrir, hafði ekki hugmynd
um það hver hin raunverulega Eva væri.
Ég man það að ég varð mjög glaður þegar
ég frétti að Jóhanna Woodward hefði hlot-
ið þessa miklu viðurkenningu sem lista-
maður, því mér þykir þetta ennþá með
allra merkilegustu afrekum í leiklist sem
ég hef kynnst.
Tilgangur minn í þessu erindi er að
segja ykkur í stórum dráttum sögu kon-
unnar, sem var og er hin raunverulega Eva
þessarar stórkostlegu kvikmyndar. Hún
heitir nú Christine Costner Sizemore. En
nú mun ég segja ffá því sem gerðist eftir
að þessi kvikmynd var gerð. Þetta er sagan
af því hvemig hún sigraðist á og losnaði
við þá púka sem voru að gera henni lífið
óbærilegt. Og hvernig hún þannig breytt-
ist í heilsteypta manneskju.
„Þegar kvikmyndin kom á markaðinn sá
ég hana ekki,“ segir Chris, sem nú er
yndisleg kona á sjötugsaldri. Það stafaði af
því að dr. Corbett Thigpen, sem hafði
stundað hana, sagði henni að gera það
ekki. Hann sagði mér að segja aldrei nein-
um ffá því að ég væri Eva. En hann hafði
skrifað bókina, sem kvikmyndin var byggð
á. „Hann sagði mér að ef ég gerði það þá
gætu bömin mín ekki gengið í skóla og
eiginmaður minn myndi missa vinnu sína.
Ég geri ráð fyrir að með þessu hafi læknir-
inn verið að reyna að vernda mig.“
Því má ekki gleyma að á þessum tímum
DULFRÆÐI
52 VIKAN 8. TBL 1989