Vikan - 20.04.1989, Qupperneq 60
DODO & THE DODOS
m
Ht frá því Dodo Gad sló í
#\gegn sem móöir Dan-
mörk í laginu Resepp-
m m Ten, sem gefið var út
vegna heimsmeistarakeppni í
fótbolta 1986, hefur vegur henn-
ar verið uppá við. Fyrsta plata
hljómsveitarinnar Dodo & The
Dodos hafði meðal annars að
geyma lagið Giv mig hvad du
har sem naut mikilla vinsælda
fyrjr tæpum tveimur árum. Nú
hefur sveitin sent frá sér aðra
plötu og ekki er hún af verri
endanum. Það er ekki á hverj-
um degi sem maður fær danska
plötu upp í hendurnar sem
hljómar eins og fyrir alþjóða-
markað. Allur hljómur á þessari
plötu er með ágætum. En hver
eru Dodo & The Dodos?
Hljómsveitin á rætur að rekja
til Hellerup skólans þar sem
nokkrir meðlimanna voru nem-
endur og Michael Bruun var
tónlistarkennari. Hann hefur
stjórnað upptökum á báðum
plötum þeirra. Fyrst hét hljóm-
sveitin Copyright og þá voru
það Anders Valbro gítarleikari
og Lars Thorp trommuleikari
sem fengu til liðs við sig Jens
Rud og stúlku að nafni Maria
Gad, en hún var aldrei kölluð
annað en Dodo.
Copyright vakti aldrei neina
athygli, fékk aðeins að spila
nokkrar helgar í mánuði í stutta
stund, en þetta var ómetanlegur
æfingatími fyrir þau. Það var á
þessum tíma sem Steen
Christiansen heyrði í þeim og
gekk til liðs við sveitina. Það er
athyglisvert að enginn í hljóm-
sveitinni spilar á bassa.
Ákveðið var að spila bassa-
hljóminn af hljómborðum til að
byrja með. Það er enn gert og er
eitt einkenni Dodo and The Do-
dos í dag.
Þau eyddu miklum tíma í
prufuupptökur til að kynna fyrir
hljómplötufyrirtækjum og tóku
upp um 20 lög. Krakkarnir voru
stoltir af því sem þeir voru að
gera og því kom það sem köld
gusa í andlit þeirra þegar þeim
var sagt að fimm lög væru í lagi,
en allt annað væri drasl. Hljóm-
plötufyrirtækið Reply sá þó
þarna mjög efnilega hljómsveit
og ákvað að gefa þeim tækifæri.
Michael Bruun var fenginn til
að hjálpa til við útsetningar og
stjórna upptökum. Útkoman
kom svo fyrir eyru almennings á
árið 1987 þegar lögin Giv
mig hvað du har og Go nat
komu út á smáskífum. Síðan
kom breiðskífa, sem hefurfeng-
ið mjög góðar viðtökur.
Rétt eftir áramótin kom svo
önnur breiðskífa sveitarinnar og
virðist sem hún ætli að fá enn
betri viðtökur en sú fyrri. Dansk-
ir hljómplötuframleiðendur
heldu sína fyrstu uppskeruhátíð
í byrjun mars og þar var Dodo
And The Dodos koskin besta
hljómsveit Danmerkur 1988. Á
næstu vikum kemur svo út
fyrsta plata hljómsveitarinnar
sem ætluð er alþjóðlegum
markaði og eru á henni enskir
textar. Það verður spennandi
fyrir aðdáendurna að fylgjast
með Dönunum á alþjóðavett-
vangi. □
BESTA HUOMSVEIT DANMERKUR
GRÍNARIEÐA POPPARI?
Elvis Costello er
enginn venjulegur
lagahöfundur og
flytjandi. Hann hefur
á 12 árum sent frá sér jafn-
margar breiðskífur. Þetta er
nokkuð mikil afkastageta
þegar horft er á safnið í heild.
Þarna eru plötur sem inni-
halda hvert vinsældalistalagið
á fætur öðru, svo sem Every-
day I Write The Book og Ol-
ivers Army. Einnig sendi
hann frá sér kántrýplötu og
hélt síðan tónleika með Roy-
al Philharmonic Orchestra í
Royal Albert Hall. Það er
ekki tilviljun að sagt er um
hann: Hann héti hugmynda-
ríkur að millinafni ef það væri
ekki Patrick nú þegar.
Elvis Costelo er fæddur
seinni hluta ágústmánaðar
1955 og var skírður Declan
McManus. Sonur Ross
McManus sem var söngvari
Joe Loss band á sínum
tíma. Saga Costello hófst
1976 þegar hann eftir nokkur
misheppnUð ár í poppinu fékk
hljómplötusamning hjá Stiff
útgáfunni í Bretlandi. Sam-
hliða því breytti hann um nafn
og náði strax athygli tónlistar-
unnenda.
Costello hefur aldrei farið
troðnar slóðir og því til
sönnunar má nefna kántrý-
plötuna sem hann sendi frá
sér 1981 og heitir Almost
Blue. Þar fékk hann til liðs við
sig þekkta snillinga frá Nash-
ville sem er nokkurs konar
hjarta kántrýtónlistarinnar.
Þegar platan kom út var sett-
ur á hana stór miði með að-
vörunum um að platan inni-
héldi kántrýtónlist en ekki
hefðbundna popptónlist frá
Costello. Við vinnslu þessarar
plötu var ekkert til sparað.
Fengnir voru bestu upptöku-
stjórar og útsetjarar kántrý-
tónlistarinnar og fór upptakan
að mestu leyti fram í Banda-
ríkjunum.
Elvis Costello sendi á
dögunum frá sér nýja breið-
skifu sem ber nafnið Spike.
Hún er tileinkuð Spike Jones
háðfuglinum mikla. Meðal
þeirra sem aðstoða Costello
á þessari plötu eru Paul
McCartney og Crissie
Hynde úr Pretenders. Fyrsta
smáskífan heitir Veronica og
er samin af Costello og
McCartney. Plata sem til-
einkuð er háði og spotti úr
smiðju Elvis Costello. Hún er
rós í hnappagatið. □
58 VIKAN 8. TBL. 1989