Vikan - 18.05.1989, Side 8
AF STRÖNDUM
Hró'bjartur Lúðvíksson skrifar:
Vandamál líðandi stundar
Það er margt fjaðrafok-
ið. Við dreifbýlisfólk-
ið förum ekki var-
hluta af vandamálum
líðandi stundar nema síður sé.
Ekki þýðir fyrir okkur að fara í
verkfall. Það væri líklega öllum
sama. Margir hérna tala um að
það vanti sterkari verkstjóra á
Alþingi og í ríkisstjórn.
— Við eigum sko enga Mar-
gréti Tasser í pólitíkinni, sagði
kunningi minn einn á dögun-
um þegar við fórum að tala um
þjóðfélagsmálin og öll hin
vandamálin. — Þetta eru sko
allt saman meðal-skussar á Al-
þingi, sagði hann kunningi
minn.
— öll vandamálin koma að
ofan, sagði hann og mér fannst
hann verða klökkur þegar
hann benti á kaupfélagið og
rækjuvinnsluna:
— Þetta er allt á hvínandi
hausnum. Fiskiríið á litlu bát-
ana heíur bara verið sæmilegt
en þó hafa þeir ekki getað
staðið við vexti og afborganir.
Siggi á Borg er fárinn á hausinn
með loðdýrabúið og strákarnir
með laxeldið eru líka alveg á
hvínandi kúpunni.
— Það eru nú ekki allir á
hausnum, reyndi ég að and-
mæla rólegur í fasi.
— Jæja, sagði hann með star-
andi augum á mig og rétti upp
fjóra fingur. — Það eru fjórir í
öllu héraðinu sem skrimta,
það er sýslumaðurinn, prestur-
inn, læknirinn og apótekarinn.
Það eru þeir einu á stóru svæði
sem eiga salt í grautinn. Prest-
urinn stóð meira að segja tæpt
með kaupfélagsreikninginn í
síðasta mánuði, svo að kaup-
félagsstjórinn hótaði að loka á
hann en þá hljóp á snærið hjá
presti, tvær jarðarfarir svo
hann gat borgað inn á. Ef það
verða ekki fleiri jarðarfarir á
næstunni flosnar hann upp og
flytur burtu eins og margir
aðrir.
- Það er áríðandi, og sýnir
hollustu, að menn deyi heima í
héraði, sagði ég og reyndi að
sýnast rólegur. - Ég meina
áður en þeir flytjast burtu.
— Ástandið hefur aldrei ver-
ið verra, sagði kunningi minn.
— Slæm var síðasta, en þessi er
snöktum verri. Hlustaðirðu á
eldhúsdagsumræðuna í sjón-
varpinu þar sem þeir sögðu,
ráðherrarnir, að ástandið væri
skárra en í fýrra?
- Já, ég hlustaði til að byrja
með en skipti svo yfir á
„Dauðagildruna" og „Apaplán-
etuna“ á Stöð 2. Ég viður-
kenndi að mér hefði þótt ,Apa-
plánetan" miklu betri en eld-
húsdagsumræðan og hélt að
með því gæti ég breytt um um-
ræðuefni því að mér fannst
nóg komið af pólitík í bili.
- Það hefði ég auðvitað átt
að gera líka en ég varð bara
svo æstur að horfa á þetta fólk
og hlusta á það.... og nú kom
heillöng romsa sem er alls ekki
prenthæf. En hann var ekki af
baki dottinn og bætti við:
— Og svo ætlar Alþingi að
kaupa hótel vegna aðstöðu-
leysis.
— Við- í hreppsnefndinni
sendum erindisbréf suður til
leiðbeiningar og vorum allir
sammála um að fækka þing-
fólkinu niður í 41 ogþá myndi
rýmka svo um þá sem eftir
væru að það þyrfti ekki að ráð-
ast í húsakaup. En við höfum
ekki fengið nein svör við því,
sagði ég mynduglega og með
alvörusvip þess sem reynslu
hefúr að baki.
Það var eins og hann róaðist
svolítið hann kunningi minn
þegar ég sagði honum af fram-
takssemi hreppsnefndarinnar.
Hann varð hugsi á svipinn
en sagði allt í einu:
- Annars virðast þær margar
húslegar þessar konur á
Kvennalistanum. Þær prjóna
víst mikið. Eftir nokkra þögn
bætti hann við:
Þá sagði þessi kunningi minn:
„Annars virðast þœr margar húselgar
þessar konur á Kvennalistanum. Þœr
prjóna víst mikið.“ Þá rifjaðist upp fyrir
mér að hann er búinn að vera einbúi
í nokkur ár...
— Veistu um nokkra ráðs-
konu?
Nú kviknaði á perunni hjá
mér og það rifjaðist upp að
hann var búinn að vera einbúi
í nokkur ár þessi kunningi
minn. En ég spurði varfærnis-
lega:
— Er nokkur sérstök sem þú
hefúr í huga?
— Nei, nei, mér datt þetta
bara svona í hug allt í einu. Það
er svo erfitt að vera einn hérna
norður í fásinninu.
— Þú gætir nú skrifað suður
til Alþingis og spurst fyrir. Það
er aldrei að vita nema þær séu
orðnar þreyttar á þrengslun-
um og aðstöðuleysinu. Og þó
þær hættu um tíma fá þær
biðlaun í nokkra mánuði, eins
og Sverrir og Albert, svoleiðis
að sú sem féllist á að koma til
þín væri á fullu kaupi þó að þú
getir ekki borgað henni mikið.
Nú fann ég að ég var farinn
að gerast fúll föðurlegur í ráð-
leggingum mínum.
— Þú ættir kannski frekar að
reyna að auglýsa í DV eftir
ráðskonu hjá vel stæðum
manni.
Nú varð hann kunningi
minn bara mæðulegur á
svipinn.
— Ég reyndi þetta í fýrra og
fékk eina konu með tvö börn,
sem stoppaði bara í 3 mánuði
þegar hún fann það út að ég
var alls ekkert efhaður. Svo
kunni hún lítið að elda mat og
ekkert að prjóna. Og svo þegar
ég ætlaði að fara að vera svolít-
ið heimilislegur við hana þá
hótaði hún bara að kæra mig
fyrir nauðgun þó ég hefði ekki
snert hana. Svo pakkaði hún
bara og fór.
Nú var það ég sem horfði
undrandi á hann kunningja
minn og það hvarflaði að mér
að það væri fleira en slæm
ríkisstjórn og óduglegir al-
þingismenn sem hvíldu þungt
á herðum hans.
Kvenmannsleysi getur líka
verið nógu fjandi ömurlegt. □
8 VIKAN 10. TBL1989