Vikan - 18.05.1989, Page 9
MÆ5TA VIKA
Tveir lesendur Vikunnar
til Parísar í boði Cardin
SKAFMIÐAR FYLGJA NÆSTU FJÓRUM TÖLUBLÖÐUM VIKUNNAR
Sex lesendur með Veröld
í^Vigia á Costa del Sol
HUNDRUÐ VINNINGA
■ í næstu fjórum tölublöðum Vikunnar munu skafmiðar fylgja blaðinu
líkt og í vetur. Og aftur er um hundruði vinninga að spila að verðmæti
á aðra milljón króna.
■ Ef vinningur kemur á skafmiðann þinn getur þú vitjað hans tafarlaust
á skrifstofu Vikunnar og sett jafnframt miðann í pottinn sem aðalvinn-
ingarnir verða dregnir úr.
■ Þó svo að vinningur komi ekki á miðann þinn getur þú sent hann inn að
því tilskyldu að þú hafir útfyllt lauflétta lesendakönnun sem fylgir skaf-
miðanum.
■ Aðalvinningarnir eru fjórir talsins og verður einn dreginn út í hverri
viku meðan á leiknum stendur.
■ Fyrsti vinningur er ótrúlega glæsilegur: Lúxusferð fyrir tvo á Saga-
Class farrými með Flugleiðum til Parísar þar sem dvalið verður á
glæsilegu hóteli í boði tískukóngsins heimsfræga Pierre Cardin. Hefur
Cardin þegar tekið frá borð fyrir þessa heppnu Vikulesendur á veit-
ingastaðnum sögufræga Maxims, en þann stað keypti Cardin fyrir fá-
einum árum. Annað kvöldið verður svo borðað á skemmtistaðnum
L’Expo, sem sóttur er af glæsifólki Parísarborgar. Og svo það stór-
kostlegasta: Cardin hefur tekið frá sæti fyrir þessa lesendur okkar á
tískusýningu sinni, sem haldin verður 24. júlí og er önnur tveggja stór-
sýninga tískukóngsins á árinu. Sýningar Pierre Cardin eru báðar lok-
aðar öðrum en fjölmiðlum og sérstökum boðsgestum.
■ Þrisvar drögum við svo úr pottinum ferðavinninga fyrir tvo og býðst
þeim hálfsmánaðar dvöl í Castillo de Vigia, sem er glæsileg viðbygg-
ing við hinn vinsæla gististað Santa Clara á Costa del Sol. Hér er um að
ræða nýjar íbúðir, sem verið er að taka í notkun, búnar öllum hugsan-
legum þægindum og með útsýni beint út á hafið. Og það er aðeins
þriggja mínútna gönguferð í iðandi mannlíf miðbæjar Torremolinos.
Ferðaskrifstofan Veröld hefur einkarétt á Islandi fyrir þennan nýja
og eftirsóknarverða gististað.
10. TBL 1989 VIKAN 9