Vikan - 18.05.1989, Síða 14
,,Ætli égendi ekki
í malbikinu aftur"
- segir Hugrún Linda Guðmundsdóttir
sem var kosin ungfrú Reykjavíkur 1989
í marsmánuði. Vikan hitti hana að máli
fáeinum dögum áður en hún tók þátt í
keppninni um titilinn Fegurðardrottning
íslands.
TEXTI: LINDA SALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
LITLJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
T ikan hitti Hugrúnu Lindu að máli
»/ og ræddi við hana um þátttöku
▼ hennar í fegurðarsamkeppnunum
tveimur og um hana sjálfa.
Hún er fædd 31- ágúst 1969 og er elst
þriggja systkina. Foreldrar hennar eru
Guðmundur Ottósson og Kolbrún Bald-
ursdóttir.
Við mæltum okkur mót klukkan fjögur á
heimili hennar á Tunguveginum í Reykja-
vík. Hún tók vel á móti blaðamanni, einnig
hundurinn hennar, Spori. í ffamkomu er
Hugrún Linda blátt áffam og vingjarnleg.
Hún bauð inn í stofu og talið barst að verk-
falli kennara. Hugrún Linda og unnusti
hennar, Magnús, stefha bæði á stúdents-
próf í vor ffá Menntaskólanum við Sund.
„Ef við útskrifumst þá,“ bætti hún við al-
vörugefin. „Þetta verkfall veldur miklum
óþægindum, kennararnir hætta kennsl-
unni á röngum tíma. Verkfallið bitnar
verst á þeim sem eru að ljúka námi núna í
vor. Ég hef líka talsverðar áhyggjur af að
prófin hellist yfir með litlum fyrirvara,
jafhvel öll í kringum fegurðarsamkeppni
íslands." Hugrún Linda hafði því í mörgu
að snúast, bæði próflestri og æfingum fyrir
keppnina. „Þetta er mjög erfitt og mikil
vinna. Á laugardögum mætum við t.d. kl. 8
á morgnana í líkamsrækt og erum alveg í
tvo tíma í senn. Þá taka við gönguæfingar
og annar mikilvægur undirbúningur. Við
erum ekki búnar fyrr en um fjögurleytið.
Það er ætlast til að við mætum í líkams-
rækt þrisvar í viku en ég reyni að fara á
hverjum degi. Ég hafði ekki stundað lík-
amsrækt áður — var alltaf á leiðinni en
núna er ég ákveðin í að halda áfram úr því
að ég er byrjuð á annað borð.“
Hvers vegna ákvaðstu að taka þátt í
fegurðarsamkeppni?
„Mig langaði að prófa og ég tímdi ekki
að sleppa þessu tækifæri. Það er eitthvað
spennandi við þetta allt saman. í fyrra var
ég beðin um að fara í prufú. Þá þorði ég
ekki en var samt mikið að velta því fyrir
mér. Það var í bíó sem talað var við mig