Vikan - 18.05.1989, Qupperneq 18
FYRR OC5 IÍÚ
Stúlkan sem er
Er ReykjavíkursTúlkan
þjóðfélagsfyrirbrigði?
Eða er hún kannski
ekki til þessi dœmigerða
Reykjavíkurstúlka?
Jú, sögðu þeir á Vikunni árið
1939 og vildu fá Ijóslifandi
ímynd hennar á síður blaðsins.
Þeir efndu til samkeppni um
bestu greinina um Reykjavíkur-
stúlkuna. Margir höfðu myndað
sér skoðun því þátttakan varð
mikil og sýndi að margir töldu
Reykjavíkurstúlkuna frábrugðna
öðrum dætrum íslands. En ætli
sú skoðun eða ímynd Reykja-
víkurstúlkunnar hafi breyst?
Tvær greinar þóttu bera af árið
1939; önnur var skrifuð af
stúlku, sem taldi sig nokkuð
dæmigerða Reykjavíkurstúlku,
og hin af karlmanni - kannski
hinum dæmigerða Reykjavíkur-
pilti? - þannig að þarna birtust
skoðanir beggja kynja. Við
endurtókum leikinn, nú hálfri öld
síðar, og fengum tvö reykvísk
ungmenni til að tjá skoðanir sín-
ar á þessari sömu stúlku, auk
þess sem birt er viðtal við Ung-
frú Reykjavík 1989. Skrif pilt-
anna birtast í næstu Viku.
REYKJAVÍKURSTÚLKAN
1939
TEXTI: GERÐUR MAGNÚSDÓTTIR
Sjálf er ég Reykjavíkurstúlka, og þar
sem ég held, að ég sé hvorki betri
né verri en yfirleitt gerist, datt mér
í hug að taka sjálfa mig, sem dæmi z
upp á Reykjavíkurstúlkuna almennt. Ég er §
ekki af ríkum foreldrum, en þeir geta t
kannski ekki heldur talist til þeirra allra ^
snauðustu. Þó held ég, ef farið yrði að gera ^
upp reyturnar, eignirnar, tekjurnar og m
skuldirnar, að útkoman yrði ekki fterð í z
kredit hliðina. Ég tilheyri sem sagt hvorki <
aristokratinum né öreigunum, en er ein af ^
millistéttinni, borgurunum, sem kommún- w
Frh. á bls. 20 3
18 VIKAN 10.TBL1989