Vikan - 18.05.1989, Side 23
DRAUMUR
Anný og Valdís láta líða úr sér í fallcgu umhverfi í Centtal Park.
Mg&fc ,) Á\ ri Bf •. . « 9Eí I
„Draumurínn rættist... ætli ég
endi ekki sem fíugfreyja..."
Anný náði að yfirbuga flughrœðsluna með Bylgjunni og Vikunni...
TEXTI: PÉTUR STEINN GUÐMUNDSSON
\T ið sögðum ffá því í síðasta blaði að
' Anný hefði farið til New York á
vegum Bylgjunnar og Vikunnar til að
vinna bug á flughræðslu. Anný, sem heitir
fúllu nafni Anna María Georgsdóttir, hefúr
átt við þetta vandamál að stríða síðastliðin
20 ár. Eiginmaður hennar, Óli Olsen mál-
ari og knattspyrnudómari, hefúr oft í gegn-
um árin þurft að ferðast innanlands sem
utan en alltaf fann Anný einhverja afsökun
til að þurfa ekki að fara upp t flugvél.
„Ég hélt alltaf að ég þyrfti að sinna ein-
hverju sem ekkert var,“ sagði hún þegar
hún rifjaði upp þessa tilfinningu.
Anný fór til New York ásamt Valdísi
Gunnarsdóttur á Bylgjunni, en Valdís hef-
ur einnig í nokkur ár starfað sem flugffeyja
hjá Flugleiðum.
Undir handieiðslu Valdísar
„Ég byrjaði á að sýna Anný handbók
flugfreyja og fara með henni í gegnum
helstu öryggisatriði áður en farið var af
stað út í vél. Við fengum að fara út í vél
áður en fólkið kom og þá gekk ég um og
sýndi henni útgönguleiðir, inn í flugstjórn-
arklefa og hvar öll helstu öryggistæki vél-
arinnar væru staðsett. Þá fann ég strax að
hún varð miklu rólegri. Þegar vélin fór svo
af stað skýrði ég út fyrir henni allt sem
gerðist um borð. Þegar flugtakið hófst
fann ég að gripið var mjög fast í mig og er
ég síðan með nokkra marbletti á höndum
og fótum,“ sagði Valdís Gunnarsdóttir,
sem var sérlegur aðstoðarmaður Annýar í
fluginu.
„Valdís var alveg yndisleg. Ég hefði ekki
getað þetta án hennar. Ég held að það sem
hafi hjálpað mér einna helst var að aðdrag-
andinn var ekki mjög langur. Það er erfið-
ara ef maður hefúr mjög langan tíma, þá
hugsar maður ekki um neitt annað en flug-
hræðsluna. Ég hef alltaf haft þá tilfinningu
að ég þyrfti að hjálpa flugmönnunum og
að þeir réðu ekki við það sem þeir væru að
gera. Eftir að ég fékk að sitja í flugstjórn-
arklefanum í lendingunni í New York sá ég
að mér skjátlaðist hrapallega. Þeir eru fúll-
ferir um þetta og það er unun að sjá hvað
þetta leikur allt í höndunum á þeim og
hversu öryggir þeir eru. Mér leið líka
miklu betur að sitja svona ffamarlega í vél-
eyða peningum. Allir þurfa að versla og
hér eru Anný, ÓIi og Valdís að hvíla sig á
milli verslana ...
10. TBL 1989 VIKAN 23