Vikan


Vikan - 18.05.1989, Síða 23

Vikan - 18.05.1989, Síða 23
DRAUMUR Anný og Valdís láta líða úr sér í fallcgu umhverfi í Centtal Park. Mg&fc ,) Á\ ri Bf •. . « 9Eí I „Draumurínn rættist... ætli ég endi ekki sem fíugfreyja..." Anný náði að yfirbuga flughrœðsluna með Bylgjunni og Vikunni... TEXTI: PÉTUR STEINN GUÐMUNDSSON \T ið sögðum ffá því í síðasta blaði að ' Anný hefði farið til New York á vegum Bylgjunnar og Vikunnar til að vinna bug á flughræðslu. Anný, sem heitir fúllu nafni Anna María Georgsdóttir, hefúr átt við þetta vandamál að stríða síðastliðin 20 ár. Eiginmaður hennar, Óli Olsen mál- ari og knattspyrnudómari, hefúr oft í gegn- um árin þurft að ferðast innanlands sem utan en alltaf fann Anný einhverja afsökun til að þurfa ekki að fara upp t flugvél. „Ég hélt alltaf að ég þyrfti að sinna ein- hverju sem ekkert var,“ sagði hún þegar hún rifjaði upp þessa tilfinningu. Anný fór til New York ásamt Valdísi Gunnarsdóttur á Bylgjunni, en Valdís hef- ur einnig í nokkur ár starfað sem flugffeyja hjá Flugleiðum. Undir handieiðslu Valdísar „Ég byrjaði á að sýna Anný handbók flugfreyja og fara með henni í gegnum helstu öryggisatriði áður en farið var af stað út í vél. Við fengum að fara út í vél áður en fólkið kom og þá gekk ég um og sýndi henni útgönguleiðir, inn í flugstjórn- arklefa og hvar öll helstu öryggistæki vél- arinnar væru staðsett. Þá fann ég strax að hún varð miklu rólegri. Þegar vélin fór svo af stað skýrði ég út fyrir henni allt sem gerðist um borð. Þegar flugtakið hófst fann ég að gripið var mjög fast í mig og er ég síðan með nokkra marbletti á höndum og fótum,“ sagði Valdís Gunnarsdóttir, sem var sérlegur aðstoðarmaður Annýar í fluginu. „Valdís var alveg yndisleg. Ég hefði ekki getað þetta án hennar. Ég held að það sem hafi hjálpað mér einna helst var að aðdrag- andinn var ekki mjög langur. Það er erfið- ara ef maður hefúr mjög langan tíma, þá hugsar maður ekki um neitt annað en flug- hræðsluna. Ég hef alltaf haft þá tilfinningu að ég þyrfti að hjálpa flugmönnunum og að þeir réðu ekki við það sem þeir væru að gera. Eftir að ég fékk að sitja í flugstjórn- arklefanum í lendingunni í New York sá ég að mér skjátlaðist hrapallega. Þeir eru fúll- ferir um þetta og það er unun að sjá hvað þetta leikur allt í höndunum á þeim og hversu öryggir þeir eru. Mér leið líka miklu betur að sitja svona ffamarlega í vél- eyða peningum. Allir þurfa að versla og hér eru Anný, ÓIi og Valdís að hvíla sig á milli verslana ... 10. TBL 1989 VIKAN 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.