Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 28
5J0I1VARP
halda áhorfeadur áfram að vera spenntir
yfir sambandi þeirra?" spyr Linda. „Fólk
kemur til mín úti á götu og segir: ’Ég vil að
þú kyssir hann bara.’ Ég segi fyrir mig að
ég myndi varla nenna að fylgjast með þátt-
unum ef þar yrði engin þróun og persón-
urnar breyttust ekki neitt. Ég held að
áhorfendurnir séu að bíða og vona að
þetta gerist — og það er ástæðan fyrir því
að þeir horfa á þáttinn. En ég skil vel að
höfúndarnir verði að láta þetta gerast hægt
og rólega.”
En hvernig er með samband þeirra Ron
og Lindu, koma þar fram einhver áhrif frá
„Fríðu og dýrinu"?
„Það er svo gott að létta á sér við Ron“,
viðurkennir Linda. „Einn daginn var ég svo
reið út af handritinu, út í leikstjórann eða
einhvern annan að þegar Ron kom í vinn-
una, þá flaug ég í fangið á honum og grét.
Mér fannst ekkert eðlilegra en að létta á
mér við hann. Mér hefúr alltaf fundist Ron
svo óskaplega sterkur, ljúfúr og góður.
Hann er alltaf til staðar þegar ég þarf á
honum að halda.“
Ron kinkar kolli. „Við höfúm gengið í
gegnum erfiðleika vegna álagsins á okkur.
Mér fannst gott að finna að Linda treysti
dálítið á mig, sérstaklega vegna þess að
hún virkar svo sérlega sjálfstæð mann-
eskja. Þegar jafú sterk kona og hún kýs að
tengjast annarri manneskju þá hlýtur sú
manneskja að verða upp með sér af því.“
Vinátta þeirra þróaðist fljótt, en áður en
þau voru valin í hlutverkin í þáttunum
höfðu þau aldrei hist. Ron hafði aðeins séð
meðleikara sinn í einni mynd, The Term-
inator, og Linda hafði séð Ron leika í Qu-
est for Fire.
„Við vissum ekkert um hvort annað",
segir Linda. „Ron virtist mjög indæll, stað-
fastur og jarðbundinn, sem eru eiginleikar
sem þér finnst gott að finna hjá þeim sem
þú veist að þú átt eftir að vinna náið með
í langan tíma.“
Linda er mikil
ffagmanneskja
Hver voru fýrstu áhrifin sem Linda hafði
á Ron? „Að sjálfsögðu fannst mér hún
falleg," segir hann, „en það sem hafði
sterkust áhrif á mig var hversu mikil fag-
manneskja hún er — hvernig hún bar sig
að, hvernig tökum hún tók Catherine og
þáttunum í heild.“
Linda er annar eineggja tvíbura, systir
hennar er hjúkrunarkona, og er ffá Mary-
land fylki. Að námi loknu í Maryland há-
skólanum, flutti hún til New York þar sem
hún fór í leiklistarnám. Fyrsta atvinnutæki-
færið fékk hún þegar hún fékk hlutverk í
sápuóperu og síðar fékk hún hlutverk í
Hill Street Blues og í sjónvarpskvikmynd.
Ron var í námi við háskóla New York-
borgar og tók síðan MA gráðu við háskól-
ann í Minnesota áður hann fór að vinna
með Classic Stage Company í New York.
Hann kom einnig ffam í leikritum í Broad-
wayleikhúsunum og öðrum.
Linda og Ron
eru gift...
í raunveruleikanum eru Linda og Ron
gift —öðrum. Ron býr í Los Angeles með
eiginkonu sinni, fatahönnuðnum Opal
Stone, og litlu dóttur þeirra. Linda og eig-
inmaður hennar, leikarinn Bruce Abbot,
búa í Pacific Palisades í Kaliforníu.
Beauty and the Beast þáttaröðinni hefur
verið líkt við klassísk verk eins og The
Phantom of the Opera og The Hunchback
ofNotre Dame. „í þessum sögum er sams
konar samúð að finna eins og þá sem er
svo ríkur þáttur í sambandi okkar,“ segir
Linda. Ron samþykkir að í þessum hrífandi
sögum sé þema sem stenst tímans tönn.
„Lítum bara á hversu oft myndir hafa verið
gerðar um Notre Dame kroppinbakinn.
Það tekur 4 klukkutíma að breyta hinum
geðþekka Ron í hinn ljóni líka Vincent.
Þarna er um að ræða samband á milli per-
sóna sem á alls ekki að geta gengið."
Ljóni líkur — með
ffrábæra rödd
Linda trúir því að það sé hefð að karl-
menn laðist að fegurð, en um leið jafn
mikil hefð fyrir því að konur reyni að sjá
hvað leynist að baki útlitinu hjá hinu kyn-
inu. „Þættirnir myndu ekki virka jafn vel ef
Catherine væri ekki aðalaðandi," viður-
kennir hún. „Það eru öfgarnar í útliti per-
sónanna sem hjálpa sögunni að virka. En
mér hefur aldrei dottið í hug að Vincent
myndi ekki elska Catherine ef hún væri
ekki falleg." Hún bætir því við að sér hafi
alltaf fundist Vincent aðlaðandi - ljóni
líkur, stoltur og með ffábæra rödd.
Ron brosir. „Þegar ég las handritið fýrst
þá bjóst ég við að gervið yrði mjög hrika-
legt og að Vincent væri svo afskræmdur að
hann væri óviðfelldin. Svo þegar ég sá
teikningu af gervinu þá datt mér strax í
hug að hann gæti allt eins verið rokk-
stjarna! Hann var ótrúlega segulmagnaður
og aðlaðandi, fyrirmyndin var konungur
dýraríkisins — ljónið."
Förðunarvinnan tekur
fjóra tíma
Það tekur fjóra tíma í förðunarvinnu að
breyta Ron í dýrið. Hann mætir á tökustað
á hverjum morgni klukkan hálf fimm, svo
hann verði tilbúinn á réttum tíma fyrir
tökur dagsins.
Linda og Ron eru sammála um að það
séu erfiðleikarnir í sambandi Fríðu og
dýrsins sem haldi áhorfendunum föstum.
Ætli Catherine snúi sér að lokum að öðr-
um manni til að fúllnægja þörfum sínum?
„Ef um mann væri að ræða sem þó ekki
væri nema að litlu leyti líkur Vincent þá
myndi hún velja hann,“ svarar Linda. „En
hún finnur engan slíkan rnann." Linda
heldur að Catherine gæti staðið í ástar-
sambandi með öðrum manni, þrátt fyrir
þær tilfinningar sem hún ber í brjósti til
Vincents. „Og líklega með samþykki Vinc-
ents ef hún gæti orðið hamingjusöm. Hann
hefúr margsannað hversu óeigingjarn
hann er.“
Hún bætir við: „Ég þekki enga konu sem
getur elskað mann án þess að vera stöðugt
með hann í huganum, jafhvel þó hún sé
með öðrum manni þá er hann í huga
hennar. Þetta er bara hluti af því að vera
kona.“
Platónsk ást ekki fyrir
Ron og Lindu
Gætu Linda og Ron sjálf verið í plat-
ónsku ástarsambandi, eins og þeirra Ron
og Catherine?
Linda hugsar sig lengi um. „Nei. Kannski
í stuttan tíma en síðan yrði ég að geta lifað
í eðlilegu sambandi."
Hún hlær og lítur rannsakandi á Ron.
„Ég gæti það... upp að vissu marki," segir
hann, „en ég myndi ekki vilja þurfa að þola
þannig sársauka í langan tíma. Það má
segja að ég hafi reynt eitthvað þessu líkt á
lífsleiðinni; en ég held að það myndi ekki
gerast aftur.“
Þrátt fyrir ánægjulegt samstarf og vin-
áttu, þá segjast þau Ron og Linda heldur
vilja að hætt verði við þættina en að þeir
hrapi í gæðum og að innihaldinu verði
breytt þannig að tilfinningar aðalpersón-
anna í garð hvors annars verði breytt í
eitthvað ódýrt og lélegt.
„Ég yrði mjög leið ef þáttunum yrði
aflýst," viðurkennir Ron. „En ég er sann-
færður um að við Linda yrðum nánir vinir
það sem eftir er. Því miður höfúm við ekk-
ert um það að segja hvort þættirnir halda
áfram eins og þeir eru eða ekki.“
Linda er sammála. „Missirinn yrði mikill,
en mundi samt hafa þau áhrif á mig að í
ffamtíðinni myndi ég reyna að mynda sem
allra best tengsl á milli mín og samleikara
minna."
28 VIKAN 10. TBL.1989