Vikan - 18.05.1989, Qupperneq 38
FOLK
Áfengi og eiturlyf
eyðilögðu næstum
líf Julians Lennon
Julian Lennon er nýorðinn 26 ára og virkar hvorki sérlega ungur né óöruggur, hárið
er meira að segja farið að þynnast. Þriðja plata hans er nýkomin á markaðinn.
- Álagið á mig vegna allra þeirra
sem vildu græða á mér peninga
varð mér um megn. Ég flúði á
náðir áfengis og eiturlyfja, sem
orsökuðu að oftar en einu sinni
var ég nærri búinn að drepa mig.
Síðan Julian Lennon sendi frá sér fyrstu
plötu sína, haustið 1984, hefur hann mátt
þola að vera sífellt borinn saman við sinn
fræga föður. Ekki síst vegna þess hversu lík-
ir þeir feðgar eru í útliti og hversu líkt
raddir þeirra hljóma. Nú er Julian þó ioks
orðinn viss um að hann sé að ná hylli sjálfs
sín vegna. Þriðja platan hans er nýkomin á
markaðinn, en hún ber heitið „Mr.
Jordan“. Julian er á hljómleikaferð í
Evrópu þar sem hann mun koma fram í
klúbbum og á minni stöðum, hljómleikar
með honum eru t.d. í Noregi í maí.
Hárið ffarið að þynnast
Hann er nýorðinn 26 ára og virkar
hvorki sérlega ungur né óöruggur lengur,
hárið er meira að segja farið að þynnast.
Hann er látlaus í klæðaburði, í fallegum leð-
urjakka og gallabuxum, og virðist mjög
geðþekkur. Röddin er djúp og minnir á
rödd föður hans, nema hvað Julian talar
enskuna ekki með Liverpoolhreim eins og
pabbi hans gerði. Þegar hann segir frá
„villta" árinu sínu, þá er það næstum eins
og að hlusta á gamla útvarpsupptöku af við-
tali við föður hans þar sem hann segir frá
„svarta“ árinu sínu í Los Angeles, þegar
hann og Yoko Ono voru aðskilin og hann á
stöðugu fylliríi. í viðtölum gerir Julian þó
strax ljóst að hann kærir sig ekki um að tala
um föður sinn, aðallega vegna þess að síðan
plötur með honum fóru að koma á markað-
inn þá hefur hann varla verið spurður um
annað.
Aðeins peningar
— Ég var ótrúlega barnalegur. Ég hélt að
tónlistarheimurinn snerist um tónlist, en
svo eru það peningarnir sem öllu máli
skipta. Enginn hafði áhuga á því sem ég
vildi gera. Bara að ég var nafn sem mátti
notfæra sér og ég hafði það á tilfinningunni
að eina ástæðan fyrir því að ég væri þarna
væri að ég var sonur John Lennons, en
ekki vegna þess sem ég hafði ff am að færa.
Mér var plantað í hljóðver, látinn fá
nokkur lög og mér skipað að fara í gang.
Fyrsta platan „Daydreaming" gekk líka bara
nokkuð vel. Sú næsta, „Valotte" var aftur á
móti ekki eins og ég vildi hafa hana. Ég tók
það mjög nærri mér og byrjaði upp frá því
að drekka og nota eiturlyf.
Vaknaði einn morguninn
Óhamingjuna fann hann í New York þar
sem hann hitti „vini“. Barirnir og eitur-
lyfjabúlurnar urðu hans vettvangur en svo
kom hann til sjálfs sín einn daginn og flutt-
ist til Los Angeles borgar.
— Einn morguninn þegar ég vaknaði og
leit í spegilinn, þá hrópaði ég upp yfir mig:
’Hvað hefurðu gert sjálfum þér?’ Nú hef ég
byrjað upp á nýtt og notaði síðasta ár meira
og minna til að ná tökum á lífi mínu. Ekki
aðeins á einkalífinu, heldur einnig á tónlist-
inni og peningunum. Nú finnst mér hlut-
irnir vera eins og þeir eiga að vera.
Forvitnir ferðamenn
En í glimnierborginni Los Angeles fékk
sonur John Lennons ekki heldur ffið. Fljót-
lega fóru þeir forvitnu að hópa sig saman
fyrir ffaman hús hans og rútur, fullar af
ferðamönnum, stönsuðu fyrir framan hús
hans til að fólkið gæti glápt á Julian heima
hjá sér.
— Að lokum gekk þetta ekki lengur. Hús-
ið stóð við götu á svæði í Hollywood sem
búið er að merkja inn á kort fyrir ferða-
menn þar sem þeim var sýnt hvert þeir
ættu að fara til að geta séð hvar og hvernig
„Stjörnurnar” búa. Ég flutti því lengra upp í
hæðirnar, þar sem ég fæ að vera í friði inni á
milli trjánna.
Eru engin börn eða kona inni í mynd-
inni?
— Nei. Ég hef ekki haft neinn tíma. Tón-
listin, öll ferðalögin og vinnan taka allan
minn tíma. En mig langar að eignast barn.
Ég er mikið fyrir börn! En ég hef ekki fúnd-
ið þá einu réttu ennþá, sem virðist vera
heilmikið mál.
Hafa aðstæður breyst?
- Mér finnst þær hafa gert það. Núna er
ég loks búinn að gera breiðskífú sem er al-
gjörlega eftir mínu höfði. Þetta er mín
tónlist. Mér finnst ég hafa þróað minn stíl,
án tillits til föður míns.
Góður við litla bróður
Julian heldur góðu sambandi við fjöl-
skyldu sína. Hann heimsækir móður sína,
Cynthiu, off en hún býr í London og rekur
þar veitingastað. Julian býr aftur á móti í
nýja húsinu sínu í Los Angeles, þ.e.a.s. þann
stutta tíma sem hann er ekki á ferðalögum.
Þegar hann er heima þá leggur hann
áherslu á að slappa vel af.
— Þá er ég eins og fólk er flest. Fer í út-
reiðartúr, leik á píanóið og elda mat. Ég er
góður í eldhúsinu.
Hefúrðu einhver samskipti við Yoko
Ono?
— Við erum vön að hittast þegar við
erum stödd í sömu borg. Drekkum te sam-
an og röbbum, en ég er miklu uppteknari af
litla bróður mínum, Sean sem er 13 ára. Ég
man svo vel hvað ég gekk í gegnum á hans
aldri vegna þess að ég var sonur frægs fólks.
Við Sean hittumst eins oft og við getum.
Mér finnst það skipta afar miklu máli að líf
hans verði eins gott og mögulegt er.
36 VIKAN 10.TBL. 1989