Vikan


Vikan - 18.05.1989, Page 40

Vikan - 18.05.1989, Page 40
(5ÆLUDÝRIN Kanínunum gefur fjölgað fljótt Kanínur eru falleg dýr og geta verið góður kostur fýrir þá sem vilja eiga dýr til að hugsa um, en sumum finnst þær ckki nógu mannelskar til að hægt sé að hafa af þeim mikla skemmtun. TEXTI: FRlÐA BJÖRNSDÓTTIR A Utaf af og til hefur vakn- að áhugi jafnt hjá / % börnum sem full- JL. JL orðnum á að fá sér kanínur til þess að sinna um og hafa skemmtun af. Kanínur má meðal annars kaupa í gæludýra- verslunum, og þar fékk ég þær upplýsingar að þær kost- uðu ffá 300 krónum í einni versluninni en í annarri kost- uðu þær annað hvort 600 eða 1200 og fáeri það eftir tegund og litbrigðum. Kanínur er tæpast hægt að hafa inni í stofu, þótt ég hafx reyndar séð þær í slíku um- hverfi. Þótti mér það heldur óviðfelldið því sterk lykt er af þeim, og aldrei má slá slöku við að þrífa í kringum þær séu þær hafðar inni á heimilinu. Þeim hentar ágætlega að vera úti í bílskúr eða í góðum skúr á lóðinni m.a. vegna þess að þær þurfa ekki mikinn hita, en hita þurfa þær nú samt. í rannsókn sem gerð var á kanínum í Dan- mörku kom fram að þær döfn- uðu einna best í 7-8 stiga hita, en síst þegar hitinn var kom- inn upp í 17-19 stig. Kanínubúrin verða að vera sæmilega stór — litlum afbrigð- um nægja þrír fjórðu úr fer- metra en stærstu kanínurnar þurfa að vera í helmingi stærra búri. Sumir hafa þann háttinn á að hafa vírnet í botni búrsins til þess að úrgangur geti dottið þar niður í gegn, en vírnetið særir þófa kanínanna svo það er ekki góður kostur. Betra er að hafa fastan botn í búrinu, strá á hann hefxlspónum og vera duglegur að þrífa. Vírnet er ævinlega haft í framhlið búrsins og jafnvel loki, svo auðvelt sé að fylgjast með kan- ínunni í gegn um netið. Þá þarf að hafa vatnsílát í búrinu og einnig ílát undir kraftfóður. Sumir skilja búrin sundur með vírnetum og festa hey og grænfóður í netið fyrir kanín- urnar að narta í. Loks er gott að hafa rúm fyrir hreiðurkassa í einu horninu ef reiknað er með að kanínurnar eigi eftir að fjölga sér. Fóðrun Kanínur borða grænmeti og fyrrum kanínueigandi segir mér að þeim þyki kínakál og hvítkál ffábærlega gott, en ekki séu þær eins hrifhar af gulrót- unum, sem þó eru eins konar einkennismerki þeirra. Hann gaf kanínum sínum líka mikið brauð og nýtt gras á sumrin. Á veturna fékk hann stundum heytuggu hjá velviljuðum hestamanni eða bónda og létu kanínurnar sér það vel líka. Kanínur þurfa a.m.k. fjórðung úr lítra af vatni daglega, en borði þær mikið af fersku grænfóðri, sem er að stórum hluta til vatn, þurfa þær ekki eins mikið ferkst vatn. Kanínur eru nagdýr og hafi þær ekki eitthvað að naga byrja þær að narta í búrið sitt, að minnsta kosti ef það er úr tré. Þess vegna er gott að hafa hjá þeim trjágreinar sem þær geta nagað í staðinn. Alls ekki má taka þessar greinar af trján- um rétt eftir að þau hafa verið úðuð á vorin, það gæti hrein- lega drepið kanínurnar. Hæfi- legt er að gefa kanínum að borða tvisvar á dag á sumrin, en ein máltíð nægir að vetrar- lagi. Flestum þykir skemmtilegt þcgar heimilisdýrin fjölga sér, en það getur líka orðið til vandræða eins og hjá kanínum, fjöigar mjög hratt. Þær verða kynþroska 3-4 mánaða, en ekki má láta þær fara að eignast unga fyrr en í fyrsta lagi 4-5 mánaða (smákanínur), 5-6 mánaða (millistærð) og 6-7 mánaða (stærsta tegund). Þær ganga með í 31 dag. Þær búa sér til bæli eða hreiður í einu horni búrsins og reyta sig og nota hárið til að klæða innan með hreiðrið. Rétt er að reyna að fylgjast með þegar ungarnir koma, og taka strax frá kanín- unni veikburða unga og van- skapaða eða dauða. Einnig þarf að gæta þess að setja ungana aftur upp í bælið ef þeir velta út úr því, svo þeir drepist ekki úr kulda. Eðlilegt má teljast að kanína eignist 6-7 unga í einu en þeir geta verið bæði fleiri og færri. Ungarnir eru blindir og næstum hárlausir við fæð- ingu, en pelsinn fer strax að vaxa og þeir eru orðnir vel- hærðir eftir 3 vikur. Níu daga eru ungarnir farnir að sjá en í 18-21 dag halda þeir sig í hreiðrinu. Eftir það fara þeir að hreyfa sig meira, sem er merki um að þeir fá nú ekki lengur nægilega næringu úr móðurmjólkinni. Kanínur geta mest orðið 6-7 ára gamlar. Þær eru falleg dýr og stór kostur er að þær hafa ekki hátt og trufla því ekki ná- grannana og sé þess gætt að þær fari ekki út úr búrunum sínum er heldur ekki hætta á að þær leggist út. Þær geta því verið góður kostur fýrir þá sem langar til þess að eiga dýr til að hugsa um, en sumum flnnst þær ekki nægiiega mannelskar til þess að hægt sé að hafa af þeim mikla skemmtun, en það getur þó verið eitthvað misjafnt eftir tegundum og uppeldi. 38 VIKAN 10.TBL1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.