Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 44
Pótt sá sem þetta skrifar telji eigið
k draumlíf ekki ýkja merkilegt, þá
" kemur það ekki í veg fyrir að
hann telji drauma iðulega merkileg
iyrirbæri, eins og fleiri, sem stundum hef-
ur verið gerð grein íyrir í þessum þáttum,
eins og lesendum þeirra mun kunnugt.
Ástæðan til þessara skrifa að þessu sinni er
sú, að eiginkona mín, Jóna Rúna Kvaran, er
mjög draumspök manneskja sem ekki hef-
ur látið sér nægja að dreyma merkilega
drauma, heldur hefúr skrifað marga þeirra
niður og íhugað þá ítarlega. Hún er því
heimild mín fyrir flestu sem hér verður
sagt frá.
Fátt af því sem manninn hendir reynist
honum eins torráðið og draumlíf hans á
stundum. Enda sýnist trúlega sitt hverjum
um gildi drauma.
Við íslendingar og aðrir hafa öldum
saman tekið mikið mark á draumum og
þeir stundum jafhvel getað skipt sköpum í
samskiptum manna og viðhorfum til vissra
kringumstæðna og atvika.
í Biblíu okkar kristinna manna er mikið
sagt frá stórmerkilegum draumum, og
jafrivel ráðningum þeirra einnig. Mikið af
draumum eru til dæmis tengdir fæðingu
Krists, eins og kunnugt er. í Gamla testa-
mentinu er víða sagt frá fúrðulegu draum-
lífi einstakra manna. Þannig er minnis-
stæður draumur Faraós um kýrnar sjö,
sem Jósef varð frægur fyrir að ráða. í þessu
sérstaka tilfelli kemur fram, að einn
dreymir, en annar ræður drauminn. Það er
nefnilega alltaf til fólk, sem fært er um að
ráða drauma. Fyrr á tímum þóttu þeir
menn sérstaklega eftirsóknarverðir, sem
gátu lesið í drauma og jafnvel ráðið þá, svo
ekki varð um villst. En á slíku kunnu tiltölu-
lega fáir menn full skil. Sumir þeirra höfðu
jafnvel atvinnu af draumaráðningum, og
þóttu algjörlega ómissandi þeim, sem
gegndu áhrifastöðum. Þessir draumaráðn-
ingamenn urðu því ýmsir bæði frægir og
vel efnum búnir.
íslendingar hafa alla tíð verið miklir
draumamenn, enda finnast víða frásagnir
um stórmerkilega drauma, sem ræst hafa
og ráðið miklu um örlög manna.
Sálfræðinni hefur mikið verið beitt í
sambandi við drauma og telja flestir víst,
að án drauma geti mannshugurinn ekki
þrifist rétt. Til samanburðar má geta þess,
að fýrir nokkrum árum var gerð umfangs-
mikil tilraun á draumlífi katta og voru
niðurstöður þeirra tilrauna ákaflega
skýrar.
Köttur var tengdur við mælitæki, sem
sýndu nákvæmlega hvenær draumlíf katt-
arins hófst. Síðan var hann vakinn í hvert
Frh. á bls. 44
íslendingar og aðrir hafa
öldum saman tekið mikið
mark á draumum og þeir
stundum jafnvel getað
skipt sköpum í samskipt-
um manna og viðhorfum til
vissra kringumstæðna og
atvika.
ÆVAR R. KVARAN
DULFRÆÐI
42 VIKAN 10. TBL. 1989