Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 62
FERÐALOG
Tengslin milli íslands
og Lúxemborgar elld
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR MYNDIR: LOFTUR ÁSGEIRSSON o.fl.
Tengslin milli íslands og Lúxem-
borgar hafa lengi verið sterkari en
tengslin milli margra annarra
landa. Margt kemur þar til, en án efa eiga
tíðar flugsamgöngur milli landanna sinn
þátt auk þess sem Lúxemborg er oft á tíð-
um eins konar upphafspunktur íslenskra
ferðalanga á leið þeirra í ferðalag um
Evrópu. Oft er þó staldrað nokkuð við því
Lúxemborg er mjög falleg og vinaleg borg.
Einnig hafa helgar- og vikuferðir til Lúx-
emborgar verið ákaflega vinsælar, enda er
miðborgin lítil og auðvelt að rata þannig
að lítil hætta er á að týnast - sem er eitt af
því sem margir íslenskir ferðalangar óttast
að komi íyrir þá, hætti þeir sér til erlendr-
ar stórborgar. Reyndar má segja að hafl
maður dvalið einu sinni í Lúxemborg þá
er næstum eins og að vera kominn heim í
næsta sinn. Mjög gott þykir að versla í
borginni, kannski ekki vegna þess að þar
sé allt svo ódýrt heldur vegna þess að fata-
smekkur okkar og þeirra virðist mjög
áþekkur, sem þýðir að þarna er mikið
úrval af vönduðum fatnaði á alla fjölskyld-
una.
Ný Flugleiðaskrifstofa í Lux
Flugleiðir fljúga með farþegana á milli
landanna og nýverið var skrifstofa þeirra í
Lúxemborg flutt í betra og hentugra hús-
næði, sem er við Glesener stræti, eða rue
Glesener, nr. 59, en framkvæmdastjóri
hennar er Einarr Aakrann. Skrifstofan starf-
ar einnig sem umboðsskrifstofa Ferða-
málaráðs íslands. Sama dag og nýja skrif-
stofan var opnuð við hátíðlega athöfn,
hófst íslandsvika á Hótel Pullman í Lúx-
emborg. Á opnunarhátíðina var boðið 500
manns, íslendingum og Lúxemborgar-
mönnum. Þarna voru stjórnmálamenn,
fulltrúar menningar- og viðskiptaheimsins,
að ógleymdum fjölmiðlaheiminum. ís-
lenski sendiherrann Einar Benediktsson
var þarna kominn og frá íslandi mætti eng-
in önnur en Ungfrú heimur, Linda Péturs-
dóttir, og vakti hún mikla athygli eins og
við var að búast, Samgönguráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon var einnig mættur
og að sjálfsögðu forstjóri Flugleiða, Sigurð-
ur Helgason.
f veislunni var boðið upp á margs konar
Valgeir í Cockpit Inn bauð íslensku gest-
unum til sín og ekki er annað að sjá en
öllum hafl vel líkað. F.v. Hallur Þor-
steinsson frá Morgunblaðinu, Jóhanna
Margrét á DV, fulltrúi Vikunnar, Halldóra
Sigurdórsdóttir frá Frjálsu framtaki,
Kristján Már frá Stöð 2, Steingrímur Sig-
fússon samgönguráðherra, Már Gunn-
arsson, Flugleiðum, og Árni Johnsen.
PULLMAN
Félagar i Þjóðdansafélaginu sungu og
dönsuðu fyrir gesti.
Verk listakonunnar Rikeyjar Ingimund-
ardóttur voru til sýnis á hátíðinni og
þeirra á meðal þetta.
Linda vakti mikla adiygli og hrifningu
gestanna - jafiit erlendra sem innlendra.
60 VIKAN ÍO.TBL 1989