Vikan - 18.05.1989, Síða 65
P05TURII1N
Eltir mig á
röndum og
lemur þá
sem reyna
við mig
Kæra Vika!
Mig hefor lengi langað
að skrifa í póstinn og fá
ráðleggingar og nú læt ég
loks verða af þvi. Þannig er
mál með vexti að ég er hrif-
in af strák, sem mér hefur
verið sagt að só líka hrifinn
af mér, enda virðist allt
benda til þess. Erfiðleik-
arnir eru þeir að hann hef-
ur samt aldrei reynt við
mig, en ég get aftur á móti
aldrei hreyft mig neitt fyrir
honum. Ef ég fer á hall þá
er hann mættur og fylgist
vandiega með öllum strák-
ixm sem ég dansa við. En
fyrir stuttu gerðist dálítið
sem ég veit ekki hvernig ég
á að taka á.
Ég var á balli og það var
strákur að reyna við mig,
þá vissi ég ekki fyrr til en
vinurinn hirtist allt í einu
og sló hann niður. Hann
sneri sér svo að mér og
sagði að hann vildi ekki að
ég væri að sýna öðrum
strákum einhver blíðuhót
þegar hann sæi til. Hvern1
ig líst þér á þetta vandamál
mitt, póstur minn og hvað
á ég að gera?
Systa
Hvernig væri nú að þú
talaðir við strákinn sjálf, í
stað þess að vera að híða
eftir að hann tali við þig.
Hann er húinn að sýna svo
ekki verður um villst að
hann hefur meira en lítinn
áhuga á þér, þó hann sýni
það ekki á skemmtilegan
hátt. Hann lemur þarna
hlásaklausan mann, sem er
langt í frá að vera góð
framkoma. Þú segist vera
hrifin af honum líka þann-
ig að þetta ætti allt að
smella saman hjá ykkur,
en hann virðist þó hafa þá
áráttu að vilja ráða
kannski helst til miklu vun
líf þitt. Þú þarft kannski að
gera honum ljóst strax í
upphafi sambands ykkar
að þú þurfir að fá að anda
og lifa þínu lífi líka þó þið
farið að vera saman. Um-
fram allt þarftu að láta
hann vita að þú munir ekki
þola honum að hann sé að
lemja fólk. Alla vega er
kominn tími til að þið gerið
út um hlutina.
Sj ómannslíf
Kæri póstur.
Ég er tuttugu og eins árs
og er gift sjómanmi. Við
höfum verið gift í tæp tvö
ár og erum harnlaus, sem
er ekkert skrítið því hann
er næstum aldrei heima.
Og þar erum við komin að
kjarna málsins. Vegna
þess hversu lítið við
sjáumst, hann er kannski í
landi samanlagt svona 3
mánuði á árinu, þá hef ég
beðið hann að hætta á
sjónum. Mér leiðist svo
hræðilega að vera svona
mikið ein og mig langar
svo að hann fái sér vinnu í
landi, en hann segir nei.
Hann segist alls ekki geta
hugsað sér aðra vinnu. Mér
finnst eins og að honum
þyki vænna um vinnuna
sína en mig, hvað get ég
gert.
Einmana
Þar sem af bréfi þínu er
ekki annað að ráða en að
hann hafi verið sjómaður
þegar þið kynntust, þá hef-
ur þú frá upphafi vitað
hvaða atvinnu hann stund-
aði þannig að nokkuð seint
er íyrir þig nú að vera
henni mótfallin. Einnig
getur verið að hann sé
pirraður út í þig fyrir að
vera að rexa í honum að
vera í landi í hvert sinn
sem hann er heima, þannig
að vistin þar er kannski
ekki nógu skemmtileg. Ef
þú reynir aftur á móti að
gera hverja heimkomu
eins góða og hægt er, þá
eru kannski meiri líkur á
því að hann langi að vera í
landi - og jafnvel von til
þess að hann tilkynni þér
einn daginn að nú sé hann
búinn að fá leið á að vera á
sjónum. Mundu að það þarf
tvo til að deila.
Snoöbaðir
tengda-
foreldrar
Kæra Vika.
Ég er tvítug og er trúlof-
uð strák sem er tveimur
árum eldri en óg. Paðir
hans er nokkuð háttsettur
maður í þjóðfólaginu og
mér flnnst sem bæði hann
og sórstaklega tengdamóð-
ir mín tilvonandi finnist ég
ekkl nógu góð fýrir hann.
Þau eru alltaf að segja hitt
og þetta við mig sem skilja
má sem að hann hafi tekið
niður fyrir sig með að velja
mig. Mér finnst mjög vænt
um hann en samvistirnar
við tengdafólkið eru illþol-
anlegar, auk þess sem þau
særa mig. Hvað get ég gert.
öskubuska
saman og þau verða að
sætta sig við það. Honrnn
líkar við þig eins og þú ert,
sem er aðalatriðið. Hefurðu
sagt honum hvað þér
flnnst um framkomu for-
eldranna? Kannski væri
gott að hann talaði við þau.
Nú ef þau breyta ekki fram-
komu sinni við þig, þá
skaltu bara forðast eins og
þú getur að vera nálægt
þeim.
Pennavinur
Kæra Vika!
Ég skrifa í von um hjálp.
Mig langar mjög mikið til
að eignast pennavin
(konu) í Þýskalandi. Gæt-
irðu gefið mér upp nafn
einhverra væri ég mjög
þakklát.
Herdís.
Tíminn læknar öll sár, er
sagt. Líklega er það eina
sem þú getur gert að vona
að þegar þínir leiðinlegu
tengdaforeldrar sjá að ykk-
ur er alvara, þá munu þau
breyta framkomu sinni við
þig. Þú og sonur þeirra
hafa ákveðið að eyða lífinu
* Þýsk kennslukona sem er
39 ára og hefur mörg áhuga-
mál óskar eftir pennavinum.
Hún skrifar á ensku og
þýsku.
Annegret May
Rehheide 36
4804 Gmhúlle
Germany
Finnið 6 villur eða fleiri á milli mynda.
\\ DRIVE-IN )g
JBIUBA
Bunuuninjio '9 '}sjA8jl| jnjaij uuun66aipuB|-| 'S 'JBJuba eun
-jnn 'p 'Bjjaejs ja QU|i>is 'B JBjuba Qjjisg z 'iuujuj J0 uui66n|0 • j
10. TBL 1989 VIKAN 63
VIKAN, Pósturinn, Háaleitisbraut I.Pósthólf 5344,105 Reykjavík