Vikan


Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 68

Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 68
5TJ0RMUMERKI 1---------1 FYRRI HLUTI: Þannig eru tvíburarnir Tvíburarnir verða allt- af að hafa eitthvað íyrir stafni. Þeir þurfa stöðugt að vera að þjóta úr einu í annað og varpa öndinni léttar þegar einu verk- efrii er lokið og þeir geta snúið sér að því næsta, sem ef til vill býður upp á eitthvað nýtt og spennandi. Verkefni er kannski ekki rétta orðið yfir það sem tvíburarnir taka sér fyrir hendur, því þeir takmarka sig sjaldan eða aldrei við neitt eitt. Þeir vasast í öllu í einu. Þeir skrifa bréf á meðan þeir tala í símann. Þeir eru með margar bækur í takinu samtímis í stað þess að ljúka einni af í einu og þegar þeir horfa á sjónvarpið lesa þeir um leið. Einnig þykir þeim þægilegt að hlusta á tón- list þegar þeir eru að vinna. Tvíburar eru óþreytandi og venjulegu fólki finnst þeir þreytandi í umgengni. Styrkur tvíburanna liggur ekki alltaf í líkamsburðum heldur miklu frekar í andleg- um styrk þeirra. Taugarnar halda þeim gangandi og stund- um eru þeir bæði spenntir og taugaveiklaðir. Þörf fyrir festu og styrk Eitt af vandamálum tvíbur- anna er eirðarleysið. Reyni þeir ekki að halda markvisst aitur af því endar það með því að þeir skilja eftir sig röð óleystra verkefna. Það er leiðinlegt því þá tapa þeir mörgum af sínum góðu eigin- leikum, en tvíburarnir eru yfir- leitt velgefnir. Þeir ættu að vinna markvist að því að svala framkvæmdaþörf sinni annars fer mikið starf og kraftar til spillis Tvíburar eru ósamkvæmir sjálfum sér á margan hátt. Þeir halda einu fram í dag og öðru á morgun og svo fúllyrða þeir að þeir hafi ekki skipt um skoðun. Nei, þeir skipta ekki um skoðun, að minnsta kosti halda þeir því ffam sjálfir að svo sé. Þeir eru tunguliprir og tekst því að tala áheyrendur sína til og að lokum eru þeir sann- færðir um að þeim hafi bara misheyrst í fyrra skiptið eða misskilið það sem sagt var. En sá sem er svolítið glúrinn er fljótur að sjá í gegnum tvíbur- ana og þá fer stundum svo að þótt tvíburinn hafi sýnst vita heil ósköp kemur í Ijós að hann veit harla lítið. Tvíburunum hættir til að skýra frá áætlunum annarra og skoðunum enda þótt þeir hafi alls ekki kynnt sér þær nægi- lega vel. Tvíburar vilja ekki vera leiðinlegir, og þeir þola ekki ef sagt er að þeir séu þreytandi. Þeir reyna því að komast hjá að vera nærri þeim, sem gætu átt til að segja slíkt um þá sjálfa. Tvíburarnir þurfa alltaf að vera að koma sjálfúm sér á ffamfæri. Þeir skrifa stöðugt í blöðin og reyna að komast í útvarp og sjónvarp hvenær sem færi gefist, já, og láta sér þá jafnvel nægja að hringja inn í þjóðarsálina eða aðra álíka þætti. Það er betra en ekki neitt. Tvíburar gefa sig gjarnan á tal við ókunnuga, þótt ekki sé nema til að segja við þá örfá orð, en orðin geta orðið mörg hundruð ef ekki þúsund. Gef- ist þeim ekki kostur á að koma sjálfum sér á ffamfæri á þenn- an hátt fá þeir snert af innilok- unarkennd, sem veldur þeim þjáningum. Þeir verða að fá að koma skoðunum sínum á fram- feri eða draga að sér athyglina. Þeir eru reyndar töffandi og elskulegir og virka hvetjandi á umhverfið, ekki síst í veislum og á samkomum. Hressilegheit tvíburanna stuðla að því að mönnurn finnst þeir geðugir og þægilegir. Tvíburar sem vinir Það er skemmtilegt að eiga tvíbura að vini, enda er hann skemmilegur félagi. Þeir sem ekki hafa of mörg áhugamál eignast þau þegar þeir hafa kynnst tvíburum. Vinahringur- inn stækkar líka eftir að tvíbur- inn er kominn í spilið, þar sem hann á sjálfúr fjöldann allan af vinum. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Þú ert sáttasemjari deil- andi aðila; það mun reynast þér erfitt verk. Þú leggur drög að ferðalagi. Reyndu að fá kunn- ingja þína til samstarfs. Vertu varkár á föstudaginn. dnái Nautið 20. apríl - 20. maí ^ Þú kynnist nýjung, sem þú hrífst mjög af og gætir hag- nýtt þér. Þú kaupir nokkra smá- hluti sem þú þarfnast. Nágranni þinn kemur þér í klípu. Þú verður að taka að þér verk fyrir aðra. Tvíbuarnir 21. maí - 21. júní Þú ert virkur meðlimur í stórum félagsskap. Þú ert af- kastamikil(l) og hugmyndarík(ur). Haldið verður mikið kveðjuhóf fyrir starfsfélaga þinn. Veðráttan tefur fyrir þér. Krabbinn vrJj 22. júní - 22. júlf ^ Umtal um ákveðna per- sónu hefur mikil áhrif á þig. Láttu ekki hafa áhrif á skoðanir þínar. Vertu ekki of raunsær, þá er hætt við að þú vogir ekki að tefla á tvær hættur. Ljónið 23. júlf - 22. ágúst Þú getur ekki létt undir á heimili þínu sem skyldi, þar eð ýmsir aðilar þarfnast krafta þinna. Láttu það samt ekki ganga fram úr hófi. Þú færð langþráða heimsókn á næstunni. tMeyjan 24. ágúst - 23. sept. Ræktu betur sambandið við vini þína og kunningja. Þú ættir að leita félagsskapar þeirra, það hjálpar þér til að slaka á. Þú stofnar til skuldar, en þau við- skipti verða til góðs. Vogin 23. sept. - 23. okt. Reyndu að gera kunn- ingjum þínum greiða, þótt þú hafir nóg að gera. Þú skemmtir þér vel á miðvikudag. Mikið af frístundum þínum fer í að full- komna safn þitt. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Kona í fjölskyldutengsl- um við þig gerir þér mjög hag- stætt tilboð. Reyndu að komast að sem bestu samkomulagi við sambýlismenn þína. Mikið ríður á að þú standir í skilum með verk þín. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Þú verður að þeygja þig undir vilja ættingja þinna, þótt þér sé það sárnauðugt. Þú hefur mikið gagn af ferðum nágranna þíns. Innheimtumenn hafa enga samúð með þér. Steingeitin 22. des. - 19. janúar Maður, er óbeint hefur valdið þér óþægindum, kemur nú til móts við þig. Húsnæði þitt tekur miklum breytingum til hins betra. Fágaðu framkomu þína. Ævintýri í vændum. Vatnsberinn 20. janúar - 18. febrúar Þú færð mikinn áhuga á ákveðinni persónu og eyðir mikl- um tíma ( að nálgast hana. Þú græðir óbeint á viðskiptum sem kunningi þinn gerir. Þiggðu heimboð, ef þú hefur tíma. Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars Þú átt langa ferð fyrir höndum, en hún stendur þó að- eins nokkra daga. Þú gerir hluti, sem þig hefur aðeins dreymt um að gera áður. Þú færð gjöf, sem öðlast ekki fullt gildi fyrr en eftir nokkurn tíma. 66 VIKAN 10.TBL1989 5TJORMU5PA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.