Vikan


Vikan - 01.06.1989, Blaðsíða 8

Vikan - 01.06.1989, Blaðsíða 8
TI5KA fylgi svarta mannsins í Suður-Afríku en það hefur Buthalezi höfðingi af Zulu-ættbálkn- um. Svartir hafa flykkt sér um hann og hann er talinn hafa stuðning 80% svartra. Til eru þó þeir sem hafa hátt um að hann sé aðeins strengjabrúða Bothas en Mike segir hann greindan mann sem beri hag svartra fyrir brjósti. Hagsmunaárekstrar verði þó sífellt milli hinna svörtu ættbálka og því fer sem fer. „Líttu bara á bardagana sem við sjáum í sjónvarpinu í dag. Það eru svartir að myrða svarta, ekki svartir að myrða hvíta.“ Hann segir að svarti maðurinn á götunni hafl engan áhuga á stjórnmálum því hann alist enn upp í ættarsamfélaginu og við ættarsögurnar sem hafl haldist óbreyttar kynslóð ffam af kynslóð. Það sé sama hvað verði reynt — vestrænni menningu verði aldrei komið yfir á svarta manninn í Afríku. Hún gangi hreinlega ekki upp þar. Hann bendir á hve vel gangi í Botswana og Malherbe, löndum sem þrífist á því að þau eru rekin samkvæmt gamla ættarsamfélag- inu. Sama gildi um Swaziland (sem að vísu er sjálfstætt en liggur í miðri Suður-Afríku) þar sé málum stýrt að hefðum gamla ættar- samfélagsins og að ef fólk léti svarta mann- inn í ffiði og leyfði honum að gera hlutina eins og hann vill væri mögulegt að jafn- vægi og friður kæmist á. „Affíka er villt land. Þar er þessi hráa orka sem líka fyrirfinnst hér þó að samlík- ingin endi kannski þar því Afríka verður ennþá villt land eftir 2000 ár. Leyndar- dómar Afríku verða enn til staðar þá — þá tekur enginn á brott.“ Þegar Mike kom til íslands fór hann að leita að vinnu og gekk erfiðlega. Hann tók því að sér skúringar á einum af pöbbunum í bænum. Síðan vann hann í Hampiðjunni um hríð - segist hafa unnið mikla auka- vinnu en samt ekki fengið neitt kaup. Eftir það fór hann að vinna í Fatagerð- inni FASA — kaupið var svo lágt að hann neyddist til að fara að hugsa sig um — og hóf þá sinn eigin rekstur. Hann segir að það sé erfitt að koma sér á ffamfæri hér — hann hefur reynt við íslenska fjölmiðla en ekki getað vakið áhuga þeirra. Þegar Linda (Pétursdóttir) kom til hans fyrst var það með beiðni um tvo kjóla sem hann hafði þrjá daga til að hanna og sauma. Mike vann nær samfellt í þrjá sólarhringa við þá kjóla og þóttist heppinn þegar Linda kom í mát- un og hafði með sér kjúkling og ffanskar — hann hafði engan tíma til að útbúa mat. Hann leggur áherslu á að föt Lindu séu tíguleg og svolítið eggjandi. Mike er lítið spenntur fyrir hönnun hversdagsfatnaðar, hann hannar draumakjóla fyrir sendiherra- ffúr eða aðrar konur sem þurfa að standa fyrir móttökum auk þess sem hann er með herralínu sem einnig er byggð upp á kvöldfatnaði. Hann notar fokdýr efhi, öll frá Sigríði Jóhannesdóttur í Seymu sem hefúr styrkt hann með ráðum og dáð og trúað á hann allan þennan tíma. Uppáhaldsefhin hans eru hönnuð af Svisslendingnum Jacob Schleipfer, ffemsta textílhönnuði Evrópu í dag. Mike segist allt að því verða að gefa vinnu sína - hann vandar ffágang og notar efiii sem erfitt er að vinna með, svo sem blúndu, auk þess sem efniskostnaður í suma kjólana fer upp í 40.000 krónur. Hann segir hreint út að ekki sé hægt að vænta þess að fá sömu gæði úr lélegu efhi og góðu. Ein þeirra verðlauna sem Hugrún Linda Gunnarsdóttir fær sem nýkjörin fegurðar- drottning Islands er sérhannaður kjóll að andvirði fimmtíu þúsund krónur ffá Mike. Hann er ákveðinn í því að halda áffam á þessari braut - veit ekkert skemmtilegra en að útbúa glæsilegan kvöldfatnað á ís- lenskar konur sem vilja líta vel út þegar þær gera sér dagamun. 8 VIKAN 11.TBL.1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.