Vikan - 01.06.1989, Blaðsíða 14
VIÐTAL
Með pensil í hönd hefur Sigfús málað út um allt land. Hann hefúr tekið þátt í mörgum samsýningum og sjálfur haldið margar
einkasýningar. UÓSM.: KATRlN ELVARSDÓTTIR
Sigfús Halldórsson, tónskóld og listmólari:
„Litla fíugtm kom líktog ég
helði aldrei spilað annað"
JL úrslitakvöldinu í keppninni um
/% Landslagið var kallaður upp maður
/ % sem sumir af yngstu kynslóðinni
JL. JL áttuðu sig ekki strax á að væri
einn helsti dægurlagahöfúndur íslendinga
fyrr og síðar. Aðrir klöppuðu með lotn-
ingu fyrir Sigfúsi Halldórssyni. Þama var
hann kominn, 68 ára, til að taka við heið-
ursverðlaunum, meistarastykki smíðuðu af
Sigurði Steinþórssyni gullsmið; skrautfjöð-
ur úr gulli með lítilli flugu á. Betri gjöf gat
Sigfús HaUdórsson vart fengið, lagasmiður-
inn og myndlistarmaðurinn sem samið
hefúr hátt á annað hundrað dægurlög og
sönglög auk þess kór- og hljómsveitarverk
t.d. Stjána bláa, Til sjómannsekkjunnar, og
fleiri. Nokkur þeirra eru klassísk. Þau lifa
með þjóðinni. Þar ber Litlu fluguna auðvit-
að hæst. Ef ég væri orðin lítil fluga... er
nokkuð sem allir þekkja.
„Ég á nóg til af lögum og verð illa svikinn
koml ekki út plata fyrir sjötugt,“ segir
Sigfús.
Flugan varð til I fannfergi
Fáir vita hins vegar að Litla flugan var
samin á andartaki í fánnfergi og frosthörk-
um, miklu vetrarríki vestur á Reykhólum í
Reykhólasveit í Barðastrandarsýslu.
„Ég var á Reykhólum þennan vetur
vegna lasleika. Þetta var veturinn 1951.
Þarna var tilraunabú sem Sigurður
Elíasson stýrði. Hann átti píanó sem ég
greip gjaman í. Eitt sinn þegar vetur kon-
ungur hafði sig nokkuð í frammi sagði ég
við Sigurð að mér leiddist í svona veðri.
Hann sagði mér þá sögu af því að eitt sinn
þegar honum leiddist hefði hann gengið
að sumarlagi upp í hlíðar fjallsins Reyk-
hólahymu, sem er fyrir ofan Reykhóla, og
ort þar frá sér leiðindin með vísum sem
hann langaði að segja mér ffá. Það varð úr.
En um leið og hann hafði farið með þær
fyrir mig gekk ég beint að píanóinu og
14 VIKAN ll.TBL 1989