Vikan - 01.06.1989, Page 66
5HYRTIHC5
Fegurðardísir larðaðar
Hugrún Linda Guðmundsdóttir, Fegurðardrottning Reykja-
víkur og nýkjörin Fegurðardrottning íslands, eins og hún
kom gestum Hótel fslands fyrir sjónir eftir krýninguna. Á
fingri ber hún módelgrip úr hvítagulii, skreyttan völdum
demöntum. Höfðingieg gjöf frá Sigurði Steinþórssyni í Gulli
og silfri. Armbandsúrið fékk hún að gjöf frá Ecco heildversl-
un. Þetta er Reymond Weil úr með 18 karata gullhúð. 1 skíf-
unnl eru 48 kristaisteinar. Gierið er rispufrítt safírgler.
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Hugrún Linda, Feg-
urðardrottning ís-
lands 1989, var
snyrt með Elisabeth Arden
snyrtivörum á krýningarkvöld-
inu og það voru einnig allar
hinar stúlkurnar sem tóku þátt
í keppninni.
Rúna Guðmundsdóttir
snyrtifræðingur sá um förðun-
ina og var það heljarinnar
vinna eins og gefúr að skilja,
því vel varð að vanda til á
þessu mikilvæga kvöldi. Og
það var ekki nóg með að Rúna
snyrti stúlkurnar tíu, heldur
einnig stúlkurnar sem sýndu
hárgreiðslumar hennar Sól-
veigar Leifedóttur, dansara
sem sýndu samkvæmisdansa
og herrana í Karlkór Reykja-
víkur!
Rúna hefúr starfað sem
snyrtifræðingur í 8 ár og kom-
ið víða við. Hún hefúr t.d.
kennt snyrtingu hjá Karon
skólanum, verið með eigin
snyrtinámskeið. í fimm ár hef-
ur hún haft umsjón með Elis-
abeth Arden snyrtivörunum
hér á landi, þar sem hún er
sölustjóri hjá Stefáni Thorar-
ensen sem flytur þær inn og
sér þá um sölu, þjálfún og
kennslu í meðferð þessara
snyrtivara.
Kökumeik
Við báðum Rúnu að lýsa því
hvernig hún hefði snyrt Hug-
rúnu Lindu kvöldið góða. „Ég
notaði Visible Difference lín-
una og byrjaði á því að hreinsa
húðina með hreinsimjólk og
andlitsvatni. Að því loknu var
rakakrem borið á húðina og
síðan setti ég á Hugrúnu svo-
kallað „kökumeik". Þetta er
þykkur andlitsfarði ffá Elisa-
beth Arden, sem þekur og
dekkar allan mislit í húðinni.
Þetta er eins konar grunnur
undir málningu. Þessi farði
hefúr verið einn sá alvinsælasti
á markaðnum hér og við höf-
um selt mest af honum á öllum
Norðurlöndunum. Yfir farð-
ann setti ég síðan laust púður.
Eye Fix og Lip Fix
Á augnlokin setti ég Eye Fix
sem er krem sem heldur augn-
skugganum þar sem hann er
borinn á. Þegar kremið er bor-
ið á þá myndar það litlausa
filmu á húðinni og augnskugg-
inn kemur síðan þar yfir.
Kremið sýgur þá litinn í sig og
heldur honum kyrrum allan
daginn, eða þar til hann er fjar-
lægður. Sérlega auðvelt er að
bera augnskugga á þegar Eye
Bx er notað undir.
Lip Fix gegnir svipuðu hlut-
verki og kremið á augum,
nema hvað það er notað á var-
irnar. Það gerir það að verkum
að varaliturinn smyrst auð-
veldlega á og hann helst kyrr
þar sem hann er settur og
rennur ekki út.
Bleikir tónar
og tveggja bursta
maskari
Liturinn sem ég notaði á
augun á Hugrúnu heitir „Iced
Butternut". Þetta er grunnlitur
sem gefúr fallegan gljáa þegar
hann fer að hitna á húðinni. Ég
notaði síðan fölbleikan kinna-
lit í innri augnkrók og á glóbus
línu. í ytri augnkrók setti ég
svartan augnskugga og notaði
svartan blýant til að skerpa út-
línur augnanna.
Á augnhárin notaði ég nýjan
mascara frá Arden sem mér
finnst mjög góður, sérstaklega
til að mála aðra með. Hann er
kallaður Two Brush Mascara
því hann er með tveim
burstum. Annar er venjulegur
og ætlaður á efri augnhárin,
hinn minnir á skrúfú og er fyr-
ir þau neðri, sem hann nær svo
vel að allt í einu sérðu þar
augnhár sem þú vissir ekki að
þú værir með. Kinnaliturinn
var sá sami og ég notaði á aug-
un, en á varimar notaði ég
rauðbleikan varalit sem heitir
„Red Splendor", áður hafði ég
afmarkað útlínur varanna með
varalitablýanti í „fuchsia" lit.“
Nú, fleiri orð eru i raun óþörf;
árangurinn af vinnu Rúnu sáu
mörg þúsund íslendingar á
krýningarkvöldinu og geta
skoðað hann nánar hér á
myndunum. □
Rúna Guðmundsdóttir snyrtifræðlngur setur síðasta pensil-
strikið á Oddnýju Rögnu.
64 VIKAN ll.TBL. 1989