Vikan - 19.10.1989, Síða 23
KENN5LA
Texti og músík
Textinn við myndina á að vera stuttur
og gagnorður og falla vel að þeim mynd-
skeiðum sem lýsa á. Hann á aðeins að vera
til nánari útskýringar. Ekki á að lýsa því
sem allir sjá og er augljóst, t.d. „þarna sjáið
þið ...“ Textinn má gjarnan heyrast örlítið
á undan viðkomandi myndskeiði. Músíkin
á að undirstrika þá stemmningu sem á að
vera í myndinni. Hún á helst að vera án
texta. Ef þið ætlið að sýna myndina opin-
berlega er rétt að huga að höfundarrétti ef
þið notið músík af hljómplötum. Einnig er
hægt að fá alls konar leikhljóð á plötum og
í verslunum til þess að krydda með á rétt-
um stöðum. Ekki má þó ofnota þessi hljóð.
Yfirfærsla á kvikmyndum
og skyggnum
Margir eiga gamlar 8 mm kvikmyndir
sem sjaldan eru sýndar nú í seinni tíð.
Þessar myndir er hægt að yfirfæra á mynd-
band með því að sýna þær á tjaldi af 2—3
metra færi og hafa upptökuvélina til
hliðar. Betra er að sýna myndina í gegnum
þar til gerðan spegilkassa þar sem sýning-
arvél og upptökuvél mynda 90° horn. Við
yfirfærslu á kvikmyndum getur komið
flökt í myndina ef ekki er hægt að fínstilla
hraða sýningarvélar. Ef kvikmyndin er
með hljóði þarf að tengja hljóðið beint á
milli vélanna með snúru til þess að fá sem
best hljóðgæði. Svipað er hægt að gera
með skyggnur. Ágætur árangur næst með
því að setja sleða framan á linsuna og
beina linsunni að sterku ljósi. Þar sem
rammi skyggnunnar er í hlutföllunum 3:2
næst ekki smápartur af köntum skyggn-
unnar inn á bandið. Linsan verður að vera
▲ Kvikmyndir er hægt að yfirfæra á
myndband með því að sýna myndimar í
gegnum spegilkassa.
Margs konar teikniforit fyrir tölvur, nýt-
ast við texta- og myndagerð með mynd-
böndum.
Þegar við hljóðsetjum texta, músik o.fl.
samtímis er best að blanda hljóðinu með
„mixer“.
stillt á „macro" við þessa aðgerð. Að sjálf-
sögðu er hægt að hljóðsetja myndina eftir
að yfirfærslu er lokið. Nokkur fýrirtæki
bjóða þjónustu á yfirferslu af þessu tagi.
Tölvur
Hægt er að tengja tölvur við myndbönd
og kópera inn á bandið allt sem er á
skjánum. Það býður upp á mikla mögu-
leika við að vinna með texta, ljósmyndir,
teiknaðar myndir, hreyfanlegar myndir
(animation) og músík. Alla þessa þætti
getur þú látið vinna saman, t.d. með forrit-
inu Game Maker fyrir Commodore. Það er
ekki dónaleg byrjun á mynd þar sem titill
myndar birtist í táknrænum teikningum
og með frumsaminni músík.
Frágangur
Þegar þú hefur gengið endanlega frá
myndinni þinni með titlum, texta og mús-
ík á réttum stöðum og myndin er komin
í endanlega lengd verður hún mun
eigulegri ef þú útbýrð hylki utan um hana,
svipað og við sjáum utan um átekin
myndbönd, en stingur henni ekki í iila
merkt pappabox. Hylkin er hægt að kaupa
í verslunum og hjá þeim sem fjölfalda
myndir. Þú útbýrð blað (A4 stærð) fýrir
stærri hylkin með titli myndar á kili og að
framan með límstöfum (letraset). Einnig
er gott að hafa táknræna mynd á framhlið
en á bakhlið efhisþráð og nafn höfunda.
Ekki má geyma myndbandið nálægt sterku
segulsviði svo sem rafmótorum eða hátöl-
urum. Vel varðveitt myndband í góðum
umbúðum á að geyma innan um annað
menningarefni á heimilinu. □
21.TBL1989 VIKAN 23