Vikan - 19.10.1989, Síða 32
árunum, aðeins 16% af þeim nemendum
sem hefja nám ljúka fyrsta hluta námsins á
tveimur árum. í fyrsta hluta námsins eru
aðeins próf en engin verkefni. Engin upp-
tökupróf eru haldin sérstaklega og verða
þeir nemendur sem ekki ná prófum því að
bíða í heilt ár með að taka upp fallpróf.
Háskólinn er frekar ný stofhun. Hann var
stofhaður árið 1970 og hefur fengið gott
orð á sig og þá einkum í sambandi við hag-
lræði. Reynt hefur verið ffá upphafi að
brjóta upp hefðbundið kennsluform með
því að leggja áherslu á hópvinnu. Hins
vegar hefur verið erfitt að standa við þetta
vegna mikils fjölda nemenda en oft eru
um fimm hundruð nemendur á fyrirlestr-
um. Nemendur háskólans eru um tíu þús-
und og við skólann eru kennd ýmis önnur
fög en hagffæði, svo sem guðffæði, lög-
fræði, íþróttaffæði, tónlistarfræði, lista-
saga, uppeldisffæði, samfélagsfræði, saga,
landafræði, þýska, spænska, málvísindi,
fjölmiðlafræði sem aukafag og ýmislegt
fleira. í Þýskalandi eru bæði svokallaðir
Universitát eða háskólar eins og skólinn
sem Arni nemur við en svo einnig svokall-
aðir fagháskólar þar sem námið tengist
mjög mikið atvinnulífinu. Nám við þá
skóla er þar af leiðandi að miklu leyti verk-
legt og tekur oft skemmri tíma.
Árni segir að einn af kostum háskólans í
Augsburg sé að þar er mikil og góð að-
staða til íþróttaiðkana og geta nemendur
notfært sér hana ókeypis. Er hægt að
stunda allar boltaíþróttir, fá kennslu í leik-
fimi, djassdansi og samkvæmisdönsum,
karate, reiðmennsku, ýmsum vatnaíþrótt-
um, svo sem kajakróðri og öðrum báta-
íþróttum. Ennig er hægt að stunda frjálsar
íþróttir og reyndar yfirleitt allt sem hægt
er að hugsa sér, jafhvel er hægt að fá
kennslu í frisbíkasti.
Árni hafði aldrei komið til Augsburg
áður en hann hóf þar nám en honum leist
strax mjög vel á borgina, finnst hún vina-
leg og enginn stórborgarbragur á henni.
Augsburg er mjög gömul borg, átti tvö
þúsund ára affnæli 1985. Vegna þessa er
mikið af söfnum í borginni. Þar er ekki svo
mjög dýrt að búa, miklu ódýrara en í
Munchen til dæmis. Meðalleiga fýrir litla
íbúð er um 350—400 mörk en Árni mun
leigja á stúdentagarði næsta vetur og það
kostar 170 mörk á mánuði. Síðan er hægt
að borða í hádeginu í mötuneyti skólans
fýrir aðeins 120 krónur íslenskar. Árna
finnst mikill kostur að Augsburg er rétt hjá
Ölpunum því að hann er mikið fyrir að
fara á skíði. Ennffemur segir hann að
félagslíf í bænum og í háskólanum sé mik-
ið allan ársins hring, þó sérstaklega á
sumrin. Ekki eru margir íslendingar bú-
settir á þessum stað en þau voru þó þrjú
við háskólann þetta árið.
Árni segist telja ffekar auðvelt að kynn-
ast Þjóðverjum, honum finnst þeir vera
ffekar opnir og hlýlegir, alla vega þeir sem
búa þarna í Suður-Þýskalandi. Einnig bætti
hann því við að lokum að honum líkaði vel
að búa í Þýskalandi og væri spenntur fýrir
því að búa þar áfram næstu árin.
Þessi mynd var tekin af Áma einn góðviðrisdaginn við Elliðaámar. Hann heldur á
afrakstri sínum eftir hagffæðilegar veiðar en hann hefur í sumar lagt stund á rann-
sóknlr á möguleikum slíkra veiða.
„Gott að læra hagfræði
við Augsborgarháskóla"
Ámi Gunnarsson, fæddur 9. des. 1969.
Hagfræði í Augsburg, Þýskalandi.
Lauk stúdentsprófi af viðskipta- og
tölvufræðibraut í Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ í júni 1988.
MYND OG TEXTI:
ÞÓRDlS E. ÁGÚSTSDÓTTIR
rni Gunnarsson er nú að hefja
annað námsár sitt í hagffæði við
háskólann í borginni Augsburg
(der Universitat Augsburg) en
Augsburg er 250 þúsund manna borg í
héraðinu Bayern í Suður-Þýskalandi.
Árni tók inntökupróf í háskólann í lok
október 1988. Þetta var próf í þýsku sem
haldið er fýrir alla útlendinga sem vilja
nema í Þýskalandi. Árni hafði lært þýsku
bæði í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í
þrjú ár og einnig hafði hann dvalið á þýsk-
um bóndabæ í þrjá mánuði sumarið 1986.
Árni segir að próf þetta sé nokkuð þungt
en að hann hafi farið til Þýskalands einum
mánuði áður en hann átti að taka það til að
komast aftur inn í tungumáhð. Hann náði
svo prófinu í heild sinni og hóf nám í hag-
fræði.
Hagfræðinám við háskólann í Augsburg
tekur fjögur til fimm ár og skólaárið stend-
ur yfir frá enduðum október til loka júlí-
mánaðar. Námið er þannig uppbyggt að
fýrstu tvö árin fer ffam grunnnám í al-
mennri hagfræði en síðan velja nemendur
milli þriggja faga, velja annaðhvort rekstr-
arhagfræði, þjóðhagfræði eða hagffæðilega
félagsfræði. Fyrstu tvö árin læra nemendur
hin ýmsu fög, svo sem stærðfræði, rekstr-
ar- og þjóðhagsfræði, bókfærslu, tölfræði,
tölvufræði, félagsffæði, sálfræði, markaðs-
fræði og inngang að lögfræði, þá til dæmis
ýmislegt í sambandi við atvinnuréttindi og
atvinnuhagræðingu en einnig lögfræði er
tengist viðskiptum sérstaklega.
Árni ætlar að fara í rekstrarhagffæði eftir
fýrstu tvö árin. Hann mun þá læra almenna
rekstrarhagffæði en velur sér auk þess
þrjú sérfög. Valið stendur um sjö fög: opna
hagffæði, markaðsffæði, skattffæði, endur-
skoðun, fjármögnun og bankaviðskipti,
rannsóknir á fyrirtækjarekstri og svo
stjórnun og skipulag fýrirtækja. Á síðasta
ári velja nemendur síðan sérgrein sína og
í tengslum við hana skrifa þeir lokaritgerð-
ina. Þeir velja þá lögffæði, stærðffæði, sér-
nám í þjóðhagffæði, sérnám í félagslegri
hagffæði eða almenna félagslega hagffæði.
Þeir nemendur sem velja þjóðhagffæði
eða félagslega hagfræði ganga í gegnum
svipað nám, sum fögin eru gegnum gang-
andi þau sömu í öllum þremur deildunum
en svo eru sérstök fög fýrir hverja deild.
Tímasókn er ekki mjög mikil í háskólan-
um eða um tuttugu tímar á viku. Hvert fag
er kennt nokkrum sinnum á viku á mis-
munandi tímum og af mismunandi kenn-
urum þannig að nemendur geta hannað
sína stundaskrá sjálfir. Árni segir námið
vera nokkuð strangt og mikla síun vera
milli ára og þá sérstaklega á fyrstu tveimur
32 VIKAN 21.TBL. 1989