Vikan - 19.10.1989, Side 36
Fyllt kartöfluhýði
Smáréttur
Fyr!r 1
Áætlaður vinnutími 50 mín.
Höfundur: Snorri B. Snorrason
INNKAUP:
AÐFERD:
2 stórar kartöflur
100 gr ostur (Mozzarella)
40 gr beikon
salt og pipar
80 gr lceberg salat
1 msk sýrður rjómi
ólífuolía
olía til djúpsteikingar
Ódýr s Erfiður □ Heitur m
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
■ Kartöflurnar eru bakaðar í 180° heitum ofni í um 45 mínútur (8-10 mín.
í örbylgju) og í þennan rétt er tilvalið að nota bökuðu kartöflur sem verða
afgangs.
■ Kartöflurnar eru þvínæst skornar í tvennt og skafið innan úr hýðinu þar
til það er næstum tómt. Þá eru hýðin djúpsteikt í 2-3 mínútur, eða þar til
þau eru orðin gullinbrún. Mesta fitan látin síga af þeim og þerruð innan úr
hýðunum.
■ Salti og pipari stráð yfir og hýðin fyllt með osti.
■ Um 40 gr af beikoni er skorið í litla teninga og þeir steiktir þar til stökkir.
z Þá er þeim stráð yfir ostinn, hýðin sett inn í ofn sem stilltur er á grill og ost-
§ urinn látinn bráðna vel (2-3 mínútur).
□ ■ lceberg kál rifið smátt og sett á matardisk, nokkrum ólífuolíudropum
öo hellt yfir. Kartöfluhýðunum raðað á diskinn, sýrður rjómi settur þar með og
5 skreytt með ferskri steinselju.
Có
■z>
z
o
<
5 °Plð alla da§a Vlkannar Stakkahlíð 17, sími 38121
3 Grundarkjör \Gkj) Furusrund 3<sími 46955
■' n;—-y Reykjavíkurvegi 72, sími 53100
Pastaréttur með humri
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 20 mín.
Höfundur: Sturla Birgisson
Smáréttur
INNKAUP:
AÐFERÐ:
200 gr pastaslaufur
1 laukur, smátt saxaður
1 msk söxuð steinselja
2 dl þurrt hvítvín
2 dl rjómi
1 hvítlauksgeiri, smátt saxaður
20 humarhalar
salt, pipar og sítrónusafi eftir smekk
■ Pastaslaufurnar soðnar í 10 mín. í saltvatni með olíu. Soðið síað frá.
■ Humarhalarnir hreinsaðir og teknir úr skelinni.
■ Laukurinn, steinseljan, hvítlaukurinn og hvítvínið sett á pönnu og soðið
niður í tvær til þrjár mínútur. Rjóminn settur út í ásamt humarhölunum og
soðið í tvær mínútur, tekið af hitanum.
■ Pastaslaufurnar settar út í og kryddað með salti, pipar og sítrónusafa.
■ Borið fram með brauði.
Helstu áhöld: Panna
Ódýr □ Erfiður □ Heitur □
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
Opið alla daga vikunnar
Grundarkjör
Stakkahlíð 17, sími 38121
Furugrund 3, sími 46955
Reykjavíkurvegi 72, sími 53100