Vikan


Vikan - 19.10.1989, Page 40

Vikan - 19.10.1989, Page 40
SNYRTING Vehwnæring fyrir hár eg húð sem þú getur útbúið sjáK Kaldir vetrarvindar eru farnir að blása um landið og hafa ill áhrif á líkama og sál, að ekki sé minnst á húð og hár. Hvað er hægt að gera til að hressa upp á útlitið með litlum tilkostnaði? Ýmislegt, ef að er gáð. Hér eru nokkrar uppskriftir að næringu fyrir húð og hár, sem hentar vel á veturna. Það eina sem til þarf-fyrir utan hráefnið - er að gefa sér dálítinn tíma til þess arna. Hefurðu hvort sem er nokkuð skemmtilegra að gera í þessu leiðinda veðri en að vera góð við sjálfa þig? Hunang og egg fyrir húðina Pað er ekki kuldinn einn sem heíur vond áhrif á húðina á veturna heldur einnig raka- skortur; þurrt loft rænir rakan- um úr líkamanum. Til að vinna á móti þessum þurrki er mælt með að setja á sig rakamaska tvisvar í viku: Blandið tveim teskeiðum af hunangi saman við eina eggjarauðu og berið á andlitið. Látið vera á í 20 mín- útur, hreinsið þá af með volgu vatni. Jurtabætt gufumeðferð Til að hreinsa og róa húðina yflr vetrarmánuðina er mælt með „gufutjaldi". Fyllið pott af vatni og látið það sjóða. Setjið lófafylli af kamillu eða jurtatei út í. Takið pottinn af hitanum og látið laufln liggja í fimm mínútur. Setjið þá handklæði yfir höfuðið og pottinn, eins og tjald, og látið gufuna leika um andlitið í 15 mínútur. Að lokum er andlitið skolað upp úr köldu vatni. Mjólk og kálvökvi fyrir mjög þurra húð Sé húðin í andlitinu mjög þurr er mælt með að borin sé nýmjólk á andlitið með bóm- ull - til að hreinsa húðina án þess að fjarlægja um leið nátt- úrulega og verndandi fitu úr henni. Einnig er gott að róa flagnaða vetrarhúð með kæl- andi vökva úr dökkgrænum kálblöðum: Sjóðið blöðin í vatni, látið kólna og síið. Geymið vökvann í ísskápnum og berið hann á með bómull eftir þörfúm. Lýsi á þurru blettina Velgið tvær eða þrjár mat- skeiðar af lýsi eða ólífúolíu, berið þunnt lag á þurra bletti í andlitinu og látið vera á yfir nótt. /f Heimatilbúin sápa Sumum finnst húðin ekki hrein nema hún sé þvegin með sápu en venjuleg sápa þurrkar of mikið og hér er því uppskrift að góðri vetrarsápu: Bræðið, yfir vatnsbaði, tvö stk. af mjög góðri glycerine-sápu, bætið í um 30 grömmum af salvíu (helst ferskri), 8 drop- um af ólífúolíu og 1 matskeið af bran. Hellið blöndunni í tvö pappírsmót fyrir bollakökur og látið þau vera í bollaköku- móti. Látið blönduna harðna. Salvía er náttúrulegur svita- lyktareyðir og dregur húðina saman, bran hjálpar til að hreinsa burt dauðar húðffum- ur. Glansandi hár Gætið þess að nota ekki næringu of oft ef hárið er að- eins Iítillega þurrt eða skemmt. Hafi hárið misst gljá- ann en virkar samt sem áður feitt er gott að greiða sítrónu- safa í það. Gegn feitu hári Það getur aukið á fituna í hársverðinum að vera alltaf með húfú eða hatt. Til að koma í veg fýrir að fitan verði of mikil er mælt með að gera ferskar apríkósur að mauki í blandara, sía safann frá, bera í hársvörðinn og láta vera á í tvær mínútur, hreinsa síðan vel og vandlega. Þetta varnar fitumyndun um leið og það veitir hárrótinni raka. Næring fyrir hárið Mestu vandræðin með hárið á veturna er þurrt hár og raf- magnað hár. Hvort tveggja má leysa með því að binda nátt- úrulega rakann í hárinu. Til að næra hárið og losna við raf- magnið er hálfúm, vel þrosk- uðum og stöppuðum avocado- ávexti blandað saman við nóg af sjampói og vatni til að bera einu sinni í hárið. Síðan er hár- ið þvegið með sjampói á sama hátt og vanalega. Næst er næring sett í hárið sé það mjög þurrt. Annaðhvort er þá notuð næring sem keypt er úti í búð eða heimatilbúin djúpnæring: 1 egg, 1 teskeið hunang og 1 teskeið olía (kók- oshnetu). Þessu er nuddað í hárið og hársvörðinn, látið vera á í 20 mínútur og þá þvegið úr með sjampói. Hiti og olía er annað sem gott er fýrir hárið. Setjið nóg af hreinni grænmetisolíu í hárið; vefjið síðan heitu handklæði (beint úr þurrkaranum) um höfúðið — eða plastþynnu - til að líkamshitinn haldist inni. Hafið á hárinu í 30 mínútur; þvoið síðan úr með sjampói. Ein besta næring, sem til er, sérstaklega fyrir litað hár, er majónes. Blandið saman um 60 grömmum af majónesi og 1 matskeið af ediki og setjið vel yfir allt hárið og nuddið var- lega í hársvörðinn. Setjið filmu yfir hárið og setjist undir hár- þurrku eða notið handþurrku. Látið blönduna vera í hárinu í eina klukkustund ef þið látið það þorna af sjálfsdáðum. Edikið hjálpar þeim efnum að virka í majónesinu sem gera hárið silkimjúkt. Bjór við rafmögnuðu hári Bjór er góður til að slétta rafmagnað og úfið hár. Látið bjórinn standa, hellið honum síðan í úðabrúsa og úðið hon- um yfir nýþvegið hárið á með- an það er enn vott. Þurrkið hárið með lágt stilltum blásara og þá verður það slétt og við- ráðanlegt — og lyktar ekki af bjórnum. Annað ráð við sama vanda er að blanda 1 eggi og 2 te- skeiðum af stöppuðum avo- cado-ávexti eða sesamolíu út í hárnæringuna. Nuddið blönd- unni í hárið, setjið álpappír yfir og látið vera í hálftíma. Þvoið þá úr með sjampói á vanalegan máta. 38 VIKAN 21.TBL. 1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.