Vikan


Vikan - 19.10.1989, Page 44

Vikan - 19.10.1989, Page 44
5NYRTIMC5 Nýjasta kremið í brjóstalín- unni, Multi-Tenseur Buste, sem hefur jafnvel bætandi áhrif á lögun brjóstanna. t • Áburðurinn eru borinn á með sérstökum bursta sem orvar húðina um leið og efn- eru borin á hana. Krem fyrir brjóstin TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR Frá Clarins snyrtivörufyrir- tækinu hefur verið til sér- stakur áburður og efni sem sérstaklega er ætlað brjóstun- um, áburður sem hefur þau áhrif að styrkja, þétta og mýkja húðina á bringu og barmi. Nýverið kom á markaðinn kærkomin viðbót frá Clarins, en það er Multi-Tenseur Buste sem kalla mætti brjóstastyrk- ingaráburð. Áburðurinn er í hlaupformi sem gengur fljótt og vel inn í húðina. Áhrifin sem hlaupið á að hafa eru þau að húðin verður stinnari og styrkari, þannig að hann hefúr bætandi áhrif á lögun brjóst- anna. Auk þess sem áhrifin vara í nokkurn tíma þannig að hlaupið hefur í sér fyrirbyggj- andi verkun og getur því hjálp- að tif við að sporna á móti sigi húðvefjanna sem halda brjóst- unum. Regluleg umhirda húðarinnar á brjóstum og bringu Til að brjóstin haldi fallegri lögun sinni sem allra lengst og barmurinn sé sem fallegastur, þá mæla þeir hjá Clarins með því að hugsað sé jafhvel um þennan líkamshluta og andlit- ið. Tvisvar í viku á að hreinsa húðina á bringunni að höku með sérstöku skrúbb-kremi. Þetta hreinsar burt dauðar húðfrumur, hefúr örvandi áhrif á húðina og býr hana undir að taka betur við áfram- haldandi meðferð. Á morgn- ana er mælt með að borið sé mýkjandi krem á brjóstin, auk nýja Multi-Tenseur Buste. Á kvöldin, áður en lagst er til svefns, er styrkingarkrem bor- ið á brjóstin. Án efa finnst sum- um þetta nokkuð mikil vinna — en er ekki til mikils að vinna? Japanski fatahönnuðurinn Kenzo hefúr fetað í fót- spor margra annarra þekktra hönnuða og búið til eigið ilmvatn. Ilmvatnið nefnir hann Kenzo og segir að það sé fyrir Kenzo-konuna. Kenzo er fæddur í Japan, hann ferðast mikið og starfar í París. Um fatnað hans og tísku hefúr verið sagt að þar megi alltaf sjá gleði, mýkt og bros. Það þótti óumflýjanlegt að hann myndi einn góðan veður- dag skapa sinn eigin ilm en til þess að svo mætti verða varð hann fýrst að þjálfa þefskynið. Vestur- og Austurlandabúar hafa ekki sömu skoðun á því hvemig ilmvatn á að vera og heimsmaðurinn Kenzo þekkir skoðanir beggja. Hann bjó til ilmvatn sem hinn austræni jafnt og hinn vestræni heimur þekkir; blómailm í blóma- flösku - léttan en um leið óræðan ilm með ávaxtakeim. Undirstaða ilmsins er eik- armosi, blandaður vanillu og ilmi hvítra írisa. Bakgrunnur er sedrusviður, gerður sætari með léttum sandalviði, skvettu af ambri og agnarlitlu af mosk- usi. Aðalilmurinn er samruni magnolíu, gardeníu, rósa og jasmín - og það sem kemur á óvart eru ferskjur og sveskjur. Sá ilmur sem finnst fýrstur er ilmur sítrusávaxta ásamt kardi- mommum og koríander- kryddi. Þessi angan blóma, ávaxta og krydds er í ákaflega fínlegri flösku sem að lögun minnir á steinvölu. Hún er úr sandblásnu gleri - líkt og út- hafsöldur hafi leikið um hana. Tappinn er rósaafbrigði - ein útsprungin rós á Eau de Toil- ette, tvær á ilmvatnið sjálft. Henzo - ilmur - sem á við jafnt sumar sem vetur Kenzo ilmvatnið er í sandblásinni flösku og tappinn er blóm — eitt blóm á ilmvatnsflöskunni, tvö blóm á Eau de Toilette. 42 VIKAN 21.TBL. 1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.