Vikan - 23.07.1992, Síða 8
TEXTI: HELGA MÖLLER / LJÓSM.: BINNI
ERIK ER SONUR HELGA TÓMASSONAR:
Kann betur við
SKEMMTANALÍFIÐ
Fyrir nokkru kom Binni,
einn af Ijósmyndurum
Vikunnar, með ungan
mann i heimsókn á skrifstofur
blaðsins. Hann lét þess ekki
getið hver gesturinn væri en
leiddi hann um húsakynnin og
sagði honum hvað þar færi
fram. Þeir töluðu saman á
ensku svo ég spurði gestinn
hvaðan hann væri.
„Frá San Francisco," svar-
aði hann að bragði.
í Ijós kom að pilturinn var á
íslandi til að kynna sér Ijós-
myndun. Það þótti mér skrítið
og spuröi hvers vegna ísland
hefði orðið fyrir valinu.
Skýringin var einföld: Hann er
íslenskur í aðra ættina, á ís-
lenskan föður, og kemur oft
hingað til lands. Svo héldu þeir
ferð sinni áfram, Binni Ijós-
myndari og ungi maðurinn.
Varla eru margir íslenskir
karlmenn búsettir í San
Francisco, hugsaði ég með
mér þegar ég sneri mér aftur
að vinnunni. Um leið vissi ég
hver pilturinn hlaut að vera.
Þetta var sonur stolts okkar ís-
lendinga, Helga Tómassonar,
stjórnanda ballettsins í San
Francisco.
Ég átti kollgátuna. Því þótti
mér tilvalið að sþjalla stuttlega
við Erik Tómasson en svo
heitir ungi maðurinn. Títt-
nefndur Binni Ijósmyndari
smellti líka af honum nokkrum
myndum sem hér fylgja.
Erik Tómasson er tvítugur.
Hann er dökkur á brún og brá
eins og faðir hans. Reyndar er
móðir hans, Marlene, ítölsk,
svo að dökka litaraftið hefur
hann úr báðum ættum. Erik er
hæglátur og virðist allt að því
feiminn. Hann þykir mjög líkur
föður sínum í lund sem og í
útlíti. Hann talar ekki íslensku
en segist skilja svolítið.
Hann fæddist í stórborginni
New York en þar dansaði faðir
hans með New York City
Ballet. Hann á einn bróður,
Kristin, sem er fimm árum eldri
en hann. Þegar Erik var um
það bil tveggja ára gamall flutt-
ist fjölskyldan til Demerest, lít-
ils bæjar í New Jersey.
„Þaðan er bara um hálftíma
akstur til New York,“ segir
Erik. „Þetta er því eins og eitt
úthverfa borgarinnar." Þarna
átti fjölskyldan heimili, laus við
skarkala stórborgarinnar en
þó nógu nærri henni til að
Helgi gæti stundað starf sitt
þar.
Þegar Helgi tók að sér að
stjórna ballettflokknum í San
Francisco fluttist fjölskyldan
þangað. Erik var þrettán ára
en Kristinn bróðir hans átján.
Þar býr fjölskyldan enn og eins
og flestir íslendingar vita hefur
Helgi hlotið mikið lof fyrir störf
sín þar enda hefur hann komið
flokki sínum í röð fremstu
ballettflokka heims.
Móðir Eriks var líka ballett-
dansari en lagði skóna á hill-
una þegar hún gekk með
Kristin. Það liggur því beint við
aö spyrja Erik spurningar sem
hefur sjálfsagt oft verið lögð
fyrir hann: Dansar þú ballett?
„Nei,“ svarar Erik og brosir
hæglátlega. „Ég hef aldrei gert
það.“
Varstu aldrei hvattur til
þess?
„Nei. Foreldrar mínir lögðu
aldrei að mér að læra ballett.
Þeir hafa alltaf viljað að ég
sinnti mínum eigin hugðarefn-
um.“
Hver eru þau?
„Það er til dæmis fótbolti,
ekki amerískur fótbolti heldur
fótbolti eins og fslendingar
þekkja. Ég er mikið fyrir íþróttir
almennt og stunda þær með
vinum mínum. Ég hef vissu-
lega gaman af ballett en mér
nægir að horfa á hann.
Kannski hefur þaö líka haft
áhrif að ég varð oft vitni að
hinni hlið ballettsins, bak-
verkjunum og meiðslunum
sem óneitanlega fylgja
dönsurum. Heimur dansarans
er harður."
Hér á íslandi hefur vægast
sagt gengið treglega aö fá
karlmenn í ballett. Það hefur
þótt kvenlegt að stunda ballett.
Hefur einhvern tíma verið erfitt
að vera sonur karl-ballettdans-
ara? Hefur þér verið stritt?
„Nei, ég man ekki eftir aö
mér hafi nokkurn tímann verið
strítt á því. Ég á bara góðar
endurminningar um starf föður
míns."
Fjölskylda Eriks býr í húsi í
hæðum San Francisco borgar.
Tekur það ekki á taugarnar að
búa þar sem alltaf má búast
við að jarðskjálftar skeki borg-
ina?
„Jú," svarar Erik, „óneitan-
lega - en húsið okkar er úr
timbri og svignar með skjálfta-
bylgjunum. Það er mjög
gamalt og hefur staðist alla
skjálfta hingaö til. Meira að
segja stóra skjálftann 1906
þegar mestöll borgin var lögð í
rúst. Það veitir okkur mikla
öryggistilfinningu."
Erik lauk námi í „high
school" fyrir um það bil tveim-
ur árum. Þaöan lá leiðin í há-
skóla í Malibu í Kaliforníu þar
sem hann var í eitt ár. Þá tók
við nám við háskólann í San
Francisco en siðustu önn tók
hann sér frí. ( haust ætlar Erik
Með Leifi Einkssyni á Skólavörðuholtinu. Þess má til gamans geta
að í San Francisco, heimaborg Eriks, er líka myndarleg stytta af
Leifi.
8 VIKAN 15. TBL.1992