Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 9
Erik Tómasson er sonur Helga Tómas-
sonar ballettdansara. Hér er hann í
félagsskap islenskrar ballerínu, Katrinar
Á. Johnson. Þar sem Erik er íslenskur í
aöra ættina en italskur i hina. þótti okkur
tilvaliö aö klæða hann í rammíslenska
lopapeysu úr Rammagerðinni annars
vegar og i itölsk jakkaföt ur Hanz í
Kringlunni hins vegar.
aö taka upp þráðinn að nýju
og ætlar að veija Ijósmyndun
sem aðalgrein.
„Ég fór á Ijósmyndanám-
skeið síðastliðinn vetur og lík-
aði vel. í sumar hef ég verið
hjá Jóhannesi Long Ijósmynd-
ara til að kynna mér Ijósmynd-
un frekar. Ég aðstoöa hann við
framköllun og þess háttar. Ég
býst við að gera Ijósmyndun
að lífsstarfi mínu en ég er enn
ungur og gæti skipt um
skoðun." Erik brosir. Hann vill
greinilega hafa vaðið fyrir neð-
an sig og ekki fullyrða neitt
sem hann er ekki öruggur um
aö standa viö.
Er þetta i fyrsta sinn sem þú
dvelur hér á landi án fjölskyldu
þinnar?
„Nei, nei. Ég hef áðurverið í
sumarvinnu hérna. Þegar ég
var lítill var ég stundum hjá
ömmu minni á sumrin en hún
dó fyrir tólf árum. Eftir að hún
dó hef ég skipst á að vera hjá
frændfólki mínu þegar ég
kem. Ég hef líka margsinnis
komið hingað með foreldrum
mínum og bróður, síðast þeg-
ar pabbi kom með ballettflokk-
inn sinn hingað. Ég hef heim-
sótt ísland eins lengi og ég
man eftir mér.“
Ertu íslendingur i þér?
„Já, mér þykir mjög vænt
um ísland og finnst gott að
vera hér. Ég er um þaö bil að
fá islenskan ríkisborgararétt
og er mjög ánægður með
þaö.“
Er pabbi þinn ennþá ís-
lenskur ríkisborgari?
„Já, þaö hefur hann alltaf
verið.“
Eins og áður sagði talar Erik
ekki íslensku. Hann langar að
læra hana en segir þaö erfið-
leikum háð því enga kennslu í
íslensku sé að fá í San
Francisco. Hún hlýtur samt að
síast smám saman inn hjá
Erik ef hann heldur áfram að
vera tiður gestur hér. Aftur á
móti hefur Erik sótt námskeið í
ítölsku og seinna i sumar ætl-
ar hann til Ítalíu i málaskóla í
stuttan tíma. Fyrst ætlar hann
að koma við í Sviss þar sem
Kristinn, bróðir hans, er við
nám i bílahönnun.
Aftur til íslands og ég legg
fyrir Erik sígilda spurningu um
þaö hvort íslensk ungmenni
séu frábrugöin bandarískum.
Hann hugsar sig um. „Það
held ég varla. Ætli þau séu
ekki ósköp svipuð. Kannski
má segja að þau láti verr að
stjórn í Ameríku. Það eru aðr-
ar venjur í sambandi við
skemmtanir ungs fóiks á is-
landi en í Ameriku. Hérna fer
fólk á diskótek og krár en úti
eru boð í heimahúsum al-
gengari. Ég kann betur viö
þetta eins og það er hér á
landi og finnst mjög gaman að
fara út að skemmta mér hér.“
Áttu marga vini hérna?
„Ég á náttúrlega fjölskyldu
hér og svo á ég líka vini og
kunningja sem ég fer út að
skemmta mér með.“
Enga sérstaka vinkonu?
Erik hristir höfuðið brosandi.
„Ekki enn.“
Þegar þessar línur birtast
lesendum veröur Erik farinn
frá íslandi en hann kemur aftur
enda römm sú taug ...
15. TBL. 1992 VIKAN 9