Vikan - 23.07.1992, Side 18
skrifstofumálum á islandi um þessar mundir
en á leiö okkar í samræðunum til nútíðar verð-
ur þróunin svolítið að umtalsefni. Einn fulltrúa
þessarar þróunar og samtíðarmaður Ingólfs í
gegnum tiðina er merkileg persóna. Ingólfur
var með fyrsta farþegahóp sinn á sólarströnd í
sama mund og Simon Spies, hinn heimsfrægi
danski ferðafrömuður, steig þar fyrst á land í
sama tilgangi. „Við Simon Spies, sem er nú
dáinn vegna þess að hann drakk miklu meira
en ég og var raunar mun meiri óreglumaður
um ýmsa hluti," segir Ingólfur, sposkur mjög,
áramót að Guöni væri að sigla þessari starf-
semi sinni í strand. Spurningin var bara
hvenær. Ég held nú að flestir hafi þó gert ráð
fyrir að hann myndi hjara af sumarið og að
skellurinn kæmi um haustið eins og algengast
er hjá ferðaskrifstofum vegna þess að veltufé
er mest yfir sumarið. En það dugði ekki til. Ég
tel að óheiðarleiki í viðskiptum komi fólki alltaf
í koll og vitaskuld bitnar hann alltaf á einhverj-
um en hvergi þó með eins áhrifamiklum hætti
og í ferðaþjónustu,“ segir Ingólfur.
Forgangsröðina segir hann misjafna eftir
„Ég fer enga ferð öðruvisi en að hafa reynt alla þjónustuþætti sjálfur áður. Enda eru þessar ferðir
klæðskerasaumaðar fyrir farþegana,“ segir Ingólfur.
„byrjuðum á þessu á svipuðum tíma. En Spies
var ákaflega hugvitssamur og duglegur maður.
Þannig byrjuðum við á sama tíma,“ segir hann
og bætir síðan við að hann vilji svo sem ekki
vera að halda lofræðu um sjálfan sig, hann láti
mönnum eins og Guðna Þórðarsyni það alfarið
eftir. „Það er alltaf betra að lofið komi annars
staðar að ef það er verðskuldað á annað
borð."
GUÐNI SKEMMDI
Flugferðir Sólarflug koma óhjákvæmilega til
tals ásamt fleiri ævintýrum á þessum vettvangi
hér á landi þegar rætt er við Ingólf Guðbrands-
son um ferðamál. Almenningur fyrtist við
ferðaskrifstofur og ferðamálaiðnað almennt
þegar þaö fyrirtæki lagði upp laupana. „Það er
merkjanlegt hér að þessi síðustu gjaldþrot
hafa verkað mjög letjandi á fólk og haft nei-
kvæð áhrif þannig að eðlilega er fólk á verði
varðandi peningana sína. Flverjum er trúandi
fyrir peningum og fyrirframgreiðslum upp í
ferðir nema fólk geti verið alveg fullvisst um
það að ferðin verði farin?
Þetta tjón hefur vissulega haft neikvæð áhrif
á markaðinn. Og ég held að það sé augljóst
mál að það sem Guðni var að gera hefur
skemmt mikið fyrir okkur sem stundum heiðar-
leg viðskipti."
Ingólfur segist hafa séð fyrirframvindu mála
hjá Guðna Þórðarsyni nokkru áður en Ijóst
varð í hvað stefndi. „Með sjálfum mér var ég
alveg sannfærður um það strax um síðustu
mönnum en margir neiti sér um ýmislegt til að
geta síðan gert sér glaðan dag og breytt frá
hversdagsleikanum ákveðinn hluta úrári. Þeg-
ar miklir fjármunir, afrakstur mikils spamaðar,
fari forgörðum hljóti það aö koma illa við
marga.
ENGAR GREIÐSLUR ENN
Þegar Guðni byrjaði með Sunnu var Ingólfur
fyrir á markaðnum, byrjaður í sólarlandaflug-
inu. „Ég er aðeins eldri í bransanum en Guðni
Þórðarson. Flann byrjaði þremur árum á eftir
mér og fór þar með út í samkeppni við mig. Og
hann hefur vissulega gert margt um dagana
sem getur ekki flokkast undir heiðarlega sam-
keppni. Þeirri samkeppni hans lauk með því að
hann varð undir og varð að hætta starfsemi.
Ég flutti mikið af farþegum hans heim á þess-
um tíma, auðvitað gegn loforði um greiðslur
sem hafa ekki komið enn. Þetta var, held ég,
árið 1979,“ segir Ingólfur og lýsir raunar undr-
an sinni á því að Guðni skyldi hafa fengið að
halda rekstri ferðaskrifstofunnar áfram eftir að
hafa gert annað fyrirtæki gjaldþrota, leigu-
flugfélagið Air Viking.
„Síðan reis hann upp í miklum vígamóð og
ég held að margir sem þekktu til fyrri starfsemi
hans hafi ekki haft mikla trú á því sem hann
var að gera. Vissulega ber þó að fagna þvi
þegar menn geta með starfi sínu stuðlað að
því að viðskipti verði hagkvæmari. En það var
ekki fyrir snilli þessa manns að verðið var fært
niður hjá Flugferðum Sóiarflugi heldur byggð-
ist þetta á hreinum blekkingum. Þaö voru tekn-
ir peningar frá öðrum til að borga ferðirnar.
Þetta var gert þannig að fjármagnið sem var
komið fyrirfram upp í ferðir var notað til að
borga upp hallann af því sem verið var að gera
þá stundina.
Mér finnst óviðfelldið þegar menn eru að slá
sig til riddara, þykjast vera einhverjir bjargvætt-
ir en reynast síðan bara vera svindlarar," segir
Ingólfur.
„Enda kom í Ijós að eigið fé fyrirtækisins var
ekki nema hundrað þúsund krónur sem nægir
varla fyrir einum farseðli út í heim,“ bætir Ing-
ólfur við.
TVÖFÖLD TRYGGING
Talið berst nú að fyrirtækjum Ingólfs sjálfs.
Flann vill að það komi skýrt fram að hann hafi
sett lögboðnar tryggingar fyrir rekstrinum og
gott betur. „Ég er með tvöfalda þessa trygg-
ingu í Landsbankanum, peninga sem þar
liggja," segir Ingólfur og aðspurður hvort
venjuleg, einföld slík trygging sé ekki um sex
milljónir króna svarar hann því til að hann sé
með rúmlega tvöfalda þá upphæð inni á
bankareikningum til að tryggja það að farþegar
hans komist hnökralaust í ferðir sínar.
Ingólfur seldi Útsýn á sínum tíma, fyrir alltof
lágt verð að eigin mati. Það gerði hann fyrst og
fremst vegna þess að hann sá fram á samdrátt
og einnig vildi hann fara að draga úr ferðinni
enda búinn að starfa lengi að þessum málum.
„Ég kom ekkert illa út úr því en lenti hins vegar
í persónulegum deilum og leiðindum við kaup-
anda ferðaskrifstofunnar eins og kom fram
síðar. Ástæðan fyrir því að ég er enn að þessu
er sú að ég tel mig hafa mikla reynslu sem get-
ur orðið að gagni. Nú, ég hef enn meira starfs-
þrek en margir ungir menn og ég ætla mér að
nýta það þrátt fyrir að ég sé það vel fjárhags-
lega settur að ég þurfi ekki aö stunda þessi
viðskipti. Mér finnst auk þess sjálfum gaman
að ferðast og ég tel að ég geti enn látið gott af
mér leiða. Og að baki fyrirtækinu standa það
miklar eignir að fjárhagslega er starfsemi
Fleimsklúbbs Ingólfs óvenjulega vel tryggð,"
segir Ingólfur og bætir við að þetta sé honum
alveg óhætt að segja. „Þetta get ég staðið við,
hvenær sem er.“
Veraldargengið virðist því í góðu lagi hjá
Ingólfi samkvæmt þessum orðum. Þetta orð,
veraldargengi, verður þó til þess að minnast
hrakfara ferðaskrifstofunnar Veraldar en þar
var sonur hans, Andri Már, hátt settur auk þess
sem Ingólfur kom nokkuð nærri.
VERALDARGENGI FEÐGA
„Ég vann nokkuð fyrir Veröld, ýmis sérverkefni
og sá um ferðir Fleimsklúbbsins, sem var inn-
an fyrirtækisins, án þess að bera neitt úr
býtum. í fyrra skildi ég klúbbinn reyndar frá
Veröld með þjónustusamningi við fyrirtækið en
farþegar mínir höfðu greitt ferðir sínar til Ver-
aldar. Og það má heita lán að ég skuli hafa
náð að bjarga Heimsklúbbnum frá þessum
skakkaföllum með ákveðnum ráðstöfunum,"
segir Ingólfur og þegar hann er spurður um
það hvort hann hafi séð örlögin fyrir svarar
hann því til að svo hafi verið nema hvað hann
hafi á þeim tíma ekki gert sér grein fyrir því
mýrarfeni sem reksturinn var orðinn. „Ég ótt-
aðist í hvað stefndi án þess að ég gerði mér
Ijóst aö fjármál Svavars Egilssonar væru jafn
hriplek og vonlaus og þau reyndust vera.
18 VIKAN 15.TBL1992