Vikan


Vikan - 23.07.1992, Qupperneq 21

Vikan - 23.07.1992, Qupperneq 21
skemmtanaborgina aftur til lífsins. - Hvaðan kom hugmyndin að þessu ævintýri? „Upphaflega hugmyndin var sú að nálgast listina frá nýju sjónarhorni og skapa ákveöna mótspyrnu við ráðandi hug- myndir um gagnrýni, greiningu og framsetningu í nútímalist. Það er ríkjandi hefð í listum núna, þá sérstaklega í myndlist, að sköpunin á sér stað út frá ákveönum hug- myndafræðilegum og sögu- legum forsendum sem lista- maðurinn er meövitaður um en ekki hinn almenni áhorf- andi. Þetta gerir áhorfandan- um erfitt fyrir við að nálgast verkin og ná sambandi við það sem listamaðurinn er að reyna að segja. Þetta er sérstaklega áberandi hér í Bandaríkjunum en í Evrópu skipar efnið ennþá stórt hlutverk svo hægara er að nálgast listina frá formrænu sjónarmiði og verða fyrir skyn- rænni upplifun. Við erum sem sagt að halda veislu fyrir skynfærin og gefa almenningi kost á að koma hingað til að upplifa listina án þess að verða fyrir þeirri döpru reynslu að hafa ekki forsendur til listrænnar upplifunar. Til að koma í veg fyrir misskilning vil ég taka fram að við erum alls ekki aö hafna list sem byggist á hugmyndafræðilegum grunni. Ég hef eytt miklum tíma og peningum til að verða mér úti um þá þekkingu sem ég hef og mín verk, sem eru oftast tengd sögu og hugmyndum í vís- indaskáldskap, krefjast mikill- ar heimildaöflunar og hug- myndavinnu áður en ég kasta þeim í framkvæmd. Ég er hins vegar viss um að hægt er að nýta sér þessa þekkingu til aö höfða til reynsluheims hins almenna áhorfanda. Það þarf ekki há- menntaðan listrýni til að tengja mín verk við hugmyndir um brjálaða visindamenn og vís- indaskáldskap en það gæti hjálpað að hafa séð Alien- kvikmyndirnar svo ég nefni einfalt dæmi. Þeir listamenn sem eru hér samankomnir eru annaðhvort ennþá í skóla eða nýútskrifaðir og hér eiga þeir kost á að nálgast hinn al- menna áhorfanda og taka þátt í listsköpun úti í þjóðfélaginu." GALLERÍ FJÖLBREYTILEIKANS Það eru málverk á veggjunum, nokkrir skúlptúrar á víð og dreif um salinn og svið með flóknum Ijósabúnaði fyrir tón- listaruppákomur, leikþætti og gjörninga. Sýningartjaldi hefur verið komið fyrir í öðrum enda salarins og þar eru sýnd til- raunamyndbönd, stuttar kvik- myndir og teiknimyndir. Úti í horni hangir um það bil fjög- urra metra há brúöa, ættuð úr götuleikhúsi og í litlum her- bergjum út frá aðalsalnum get- ur að líta ísetningar (installat- ions). Kristrún og félagar hafa málað sýningarsalinn og inn- réttað með gömlum húsgögn- um og við látum fara vel um okkur í gömlum sófa á meðan við spjöllum. Hörundsdökkur náungi með sjónvarp á stærð við sígarettupakka liggur í næsta sófa við hliðina á okkur og rekur öðru hverju upp brjál- æöislegar hlátursrokur. Hann kallar sig Shorty og er heimilis- laus rappari sem asnaðist til að skjóta mann í hausinn þeg- ar hann var sautján ára og er nýkominn úr fangelsi. „Hann mætti hérna og tók sér hamar í hönd þegar við byrjuðum á þessu fyrir rúmum mánuði og hann hefur búið hér síðan,“ segir Kristrún. „Hann hefur verið okkur mjög hjálp- legur því hann þekkir heimilis- leysingjana og gangsterana í götunni svo við höfum alveg verið látin í friði. Það var gott að hafa hann hér þegar óeirð- irnar voru I borginni og verið var að brjótast inn og brenna hús I nágrenninu. Útgöngubannið kom sér mjög illa fyrir okkur því það lenti á helgi og stór hópur lista- manna var búinn að skipu- leggja alls konar uppákomur. Þess vegna er ég núna í við- ræðum við leigusalann til að reyna að fá framlengingu á dvölinni hér. Vandamálið er aö hann er svo peningagráðugur og vill græða sem mest á okkur. Styrkirnir, sem við fengum, hafa hrokkið skammt því þetta er svo stórt fyrirtæki og við höfum ekki viljað krefj- ast aðgangseyris. Ábyrgð hvers listamanns á eigin kynn- ingu er mikil og aðsóknin hefur ráðist af atorku þeirra á þvi sviði. Ábyrgöin hefur annars verið mjög tvístruð. Fljótlega kom upp spurning um val á verkun- um og hver skyldi standa fyrir því. Við Amy drógum enda- laust áð taka ákvörðun um þau mál þannig að á endanum varð það tilviljunarkennt, nokk- urs konar skipulagt kaos. Við leyföum okkur að standa í ákveöinni fjarlægð og horfa á hvernig fólk vann saman og kom og fór á undirbúningstím- I anum. Á endanum stóðu eftir verk þeirra sem tóku þátt af mestri alvöru. Það má segja að við höfum skapað ákveðinn ramma og veitt listamönnunum tækifæri til að gefa honum sitt eigið l(f. Þetta hefði verið dæmt til aö mistakast og í rauninni verið í mótsögn við hugmyndina að þessari tilraun ef við hefðum reynt að koma á framfæri ákveðinni sýn. Það hefur sannað sig I þessu rými að hlutir eiga sitt eigið líf og það dafnar eftir því hvernig með það er farið.“ BJARTSÝNIR GRÆNINGJAR - Hefur þú reynslu I að skipu- leggja svona uppákomur eða verið þátttakandi í samstarfi af þessu tagi áður. „Ég hef enga reynslu af skipulagningu á verkefni í þessum stæröarflokki en ég hef tekið þátt I skipulagningu á hópsamvinnu áður. Þá hefur alltaf verið um miklu minni hópa að ræða, innan við tíu manns. Sýningin, sem við vor- um með í húsnæðinu sem hafði verið billjardstofa á Klapparstígnum, var svipuð þessu verkefni að því leyti að við tókum rými sem hafði sína eigin sögu, breyttum því í sýn- ingarsal og margar listgreinar komu saman undir sama þaki. Þetta pláss er gömul prent- smiðja en húsnæðið er svo- kallað „landmark" eða friðað. Heima er samfélagið miklu smærra, auðveldara að ná at- hygli og miklu minna skrifræði sem þarf að glíma við. Kostn- aðurinn hjá okkur þar var líka í lágmarki og við fengum eigin- lega allt frítt. Allt frá því ég var táningur hefur mér þótt gaman aö fylgj- ast með samvinnuverkefnum á listsrænum vettvangi og fá að vera með, kannski í ein- hverju leikhlutverki eöa að búa til búninga eða eitthvað þess háttar, þó ég hafi ekki verið þátttakandi í skipulagningu. Þá sá maður þetta úr meiri fjar- lægö sem eitthvert ævintýri, eins og til dæmis Svart og syk- urlaust-hópinn. Á þessum tíma varð mér Ijóst að ég ætti kannski eitthvert erindi í að skipuleggja samvinnuverkefni í þessum dúr - þegar ég sá hugmyndir, sem voru að mestu byggðar á bjartsýni og krafti nokkurra einstaklinga, verða að veruleika. Þannig er maður að mörgu leyti óttalega grænn og reynslulaus að fara af stað með þetta verkefni í svona | stórri borg og ég held að \ Viðtal við Kristrúnu Gunnarsdóttur myndlistarkonu sem starfar nú í Los Angeles margir hafi brosaö út í annað og haldið að við værum alveg snarvitlausar, stöllurnar, að leyfa okkur aö detta þetta í hug. Okkur skorti ekki kok- hreystina að mæta til borgar- yfirvalda og lýsa yfir eigin ágæti og bjóða þeim til sam- vinnu. Þaö er kannski það helst sem þarf og í rauninni komu viöbrögð þeirra sem 15. TBL.1992 VIKAN 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.