Vikan - 23.07.1992, Qupperneq 23
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
HUGARÓRAR HALLGERÐAR '
Grillveislan
Það er allt liðið í kasti
hérna á Nesinu vegna
þess að ég í sjálfsvarn-
arskyni seldi nokkrum hér í
götunni aðgang að þessari
snobb grillveislu sem á að
vera hérna í garðinum um
helgina. Gamli gaurinn verður
að fá að sýna nýju gullfiska-
orðuna sína. Glætan. Ég
meina ef það á eitthvað að
reyna að bögga mig meö
svona kjaftæði þá má þetta lið
liðast rólega út af mín vegna.
Gamla ryksugan er gjörsam-
lega að flippa vegna þess að
eina steikin sem er í gangi
núna er af einhverjum gömlum
kusum. Pælið i því, það á að
senda pabba á pallbíl upp í
sveit til að leita að sæmilega
spikuðu nauti fyrir þetta lið.
Skammast maður sín fyrir
svona gengi? Já! Og þá meina
ég. „Ég er í kasti!" Ég fer ekki
í gamla fermingarkjólnum
mínum í grillveislu með snar-
geggjað lið á hælunum og tík-
arspena í hárinu nema að
græða eitthvað smá. Ég
meina ég flyt að heiman fyrir
helgi. Var einhver að segja að
þaö saknaði mín enginn? Er
kannski verið að gefa í skyn
að maður sé eitthvað „noja“
eða eitthvað? Ég sagði bara
við afa á Grandanum þegar
hann nefndi þetta með pyls-
urnar og gosið. „Gott málefni
hefur alltaf forgang. Ég kem í
pylsurnar með það sama ef ég
fæ frímiðann sem þú vannst á
„Iron Maiden" tónleikana í
Japan í sumar. Ég sver það: „I
just love Japanís." Ég meina.
Ég varð að selja inngang í
grillpartíið. Sénsinn. Maður miss-
ir ekki svona meiri háttar tæki-
færi til að græða smá. Ég
bankaði bara upp á hjá þessu
gengi hér í götunni og sagði
frá þessu með gullfiskaorð-
una. Orður eru eitthvað svo
spes. Það borguðu náttúrlega
allir til að fá að sjá gripinn sem
pabbi fékk þegar honum tókst
að bjarga gullfiski frá hægum
dauðdaga þar sem hann lá á
botninum á fiskabúrinu hjá
syni mannsins í næsta húsi.
Ég meina, þó afi gullfisksins
sé ráðherra eða eitthvað þarf
ekki að láta eins og aldrei hafi
neinn bjargað neinum áður.
Fæ ég augngotur? Já. Þetta
eru dónar og rúmlega það.
Það sjá allir. Ég veit vel að ég
seldi nautagrillsneiðina á fimm
þúsund kall og ef fólk keypti
gos bættist tvö þúsund kall
við. Það má segja að þetta hafi
bara veriö meiri háttar smott-
erí. Alla vega gerði ég ekkert
til að græða á þessu gengi.
Það er svo svakalega tauga-
trekkjandi vinna að búa til
svona aðgöngumiða. Það má
segja að það fari hver tíkall í
rosalegan kostnað. Gamla
settið er troppað og segir að
ég sé ógeðslegt, ofdekrað
kvikindi. Eiginlega eigi ég við
alvarleg geðræn vandmál að
stríða. Það sjá allir að ég er
munaðarlaus og rúmlega það.
Við skulum bara athuga þaö að
þegar ég verðlagði og rukkaði
inn fyrir Jóu vinkonu fyrir síð-
ustu grillveislu í garðinum hjá
þeim, þá gekk allt upp með
það sama. Jóa komst bæði til
Frakklands og London. Það er
meira að segja afgangur sem
við ætlum aö nota til að dressa
okkur upp með til að lenda
ekki í afneitun á næstunni.
Nógar eru nú „öskubuskurn-
ar“ samt hérna á Nesinu. Von-
andi verð ég uppgötvuð fljót-
lega. □
Jiársnyrtistoian
Klipphúsid sí.
BlLDSHÖFÐA 18 - 112 REVKJAVÍK
® 672044
hArskerameistarar
KARÓLlNA WALDERHAUG
SIGRÚN R. SKÚLADÖTTIR
Þjáist þú af —
vöðvabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka,
gigt, tognun eða viltu bara grennast.
Trimm-form getur hjálpað.
Bjóðum einn prufutíma.
SNYRTISTOFA ÁRBÆJAR
ROFABÆ 39
SÍMI 68 93 10
HÁRSNYRTISTOfAN
GRAMDAVEGI47 0 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Veitum
10% afslatt
við afhendingu
þessa korts!
Strípur í óllum litum — hárlitur —
pcrmanent fyrir allar hárgerðir.
Úrvals hársnyrtivörur.
Opið á laugardögum.
Hrafnhildur Konráðsdóttir hárgreiðslumeistari
Þuríður liildur flalldórsdóttir hársnyrtir
RA/CARA- éc HÁRqRE/ÐSM?rVFA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVÍK
15. TBL. 1992 VIKAN 23