Vikan


Vikan - 23.07.1992, Síða 24

Vikan - 23.07.1992, Síða 24
TEXTI OG LJÓSM.: JÓHANN GUÐNI REYNISSON Þannig verður dúnninn ti HÚN KÚKAÐIÁ EGGIN! Með osðarfugli fyrir norðan Eins og kreist úr sinneps- flösku sem er aö verða tóm. Æðarkollan dritar duglega yfir eggin sín þegar tvífætlingurinn nálgast hreiðið hennar. Lýsingin á vel við það. Hljóðið, sem verður til við at- höfnina, á margt sammerkt með heldur óviðurkvæmilegri gjörð óttasleginnar kollunnar. Hún kúkaði á eggin! Oj bara! Illu má svo vel venjast að gott þyki. O, svei! Ekki gott, en þolanlegt kannski. Og svo not- ar hún úrganginn líka i hreið- urgerðina. Svakalegt. Skyldi Þarna hefur ein kollan hreiðrað um sig. Annar pokinn er fullur af heyi, dúnninn fer i hinn. engan undra þótt tófunni líki ekki sósan þegar hún hugsar sér gott til glóðarinnar á eggja- hlaðborðinu sem getur innifal- ið allt að níu egg eða þar um bil. Enda gert í þeim tilgangi. Æðurinni er alveg sama þó dúnninn sé tekinn, bara ef eggin fá að vera í friði. Stund- um er sagginn í hreiðrinu orð- inn svo mikill aö hann getur hreinlega skemmt eggin, dúnninn fúlnar og allt í pati. Þá er nú gott fyrir greyin að eiga mannskepnuna að. Þannig verður dúnninn til er yfirskrift þessa ritlings. Sá er þetta ritar átti þess óvænt kost nýverið að leggjast ótal sinn- um á hnén við híbýli æðar- kollna við Húnaflóa. Þar verpa þær nokkrar. Áður en það gerist má segja að þær reisi þak undir sig, öfugt við okkur mannfólkið, hreiðrið. GLOTTULEIT Á GOGGINN Líkt og títt er meðal manna eru einstaklingarnir eins ólíkir og þeir eru margir. Æðarfugl er engin undantekning frá þeirri sköpunarreglu. Sumar kollurnar liggja makindalega og virðulegar allt þar til þeim er strokið blítt um hrygginn. Þá standa þær upp, skvetta úr görn og hlaupa í burtu, kvak- andi eins og þær hlæi að manninum með nefið sem finnur lyktina. Síðan er dúnninn skilinn frá öðru byggingarefni hreiðursins með æfðum handtökum æðarbóndans. Síðan spranga þær úandi í næsta nágrenni. Spígspora reigðar og reistar, stoltar verð- andi mæður, áhyggjufullar um ungviðið í skurninni. Ein rýkur upp af eggjunum er aðkomu- maður nálgast og virðist ætla að strunsa fyrirvaralaust eins hratt og stuttir fætur toga. Hún hikar, hefur greinilega gleymt einhverju. Áttar sig aðeins. Og glottuleit á gogginn þrumar hún duglega yfir eggin sín fjögur. Síðan er hún hlaupin, skellihlæjandi. Eftir situr tví- fætlingurinn á hækjum sér, horfir á súpuna. Hugsar koll- unni þegjandi þörfina. Minni pokinn er ekki langt undan og maðurinn verður að láta í hann. Dúninn líka. Á grænni þúfu er gott að þurrka herlegheitin, ágætis áburður líklegast í leiöinni. Hreiðrið er ríkulega einangrað og það er sko ekkert slor. Þessi bústaður er þurr og ekki annað að gera en tína upp fiðrið í pokann sinn. Hvað er að sjá! Er ekki bara hreiðrið allt á iði? Ferlegt. Hvað er þetta? Fló! Getur hún ekki étið mann? Ekki láta á neinu bera, karlmenni. Hvað ætli nokkrar meinlausar flær geti hámað í sig tugi kílóa á svip- stundu. Góði heili. Sendu nú hægri höndina á mér niður í hreiðið, ef þú vildir vera svo vænn. Þakka þér fyrir. Voða- lega er hlýtt í hreiðrinu. Ekki Búlð er vandlega um eggin i nýumbúnu hreiðrinu með þurru heyi en sum hreiður eru orðin verulega blaut þegar skipt er um i þeim. að undra þó að flíkur úr þessu efni séu vinsælar á vetrum. ÁRSHÁTÍÐ HJÁ FLÓ OG ORMI Og flærnar. Þær taka sem bet- ur fer ekki, ástfóstri við guðs- gaffla dúntekjumanns. Ekki enn að minnsta kosti. Ætli þær séu ekki aö furöa sig á því hvað hafi orðið af kollunni og hvers konar óskapnaður þetta sé eiginlega sem þarna sleng- ist niður í heimkynni þeirra og ormanna. Já, ormarnir! Það eru meiri njálgarnir. Þau eiga aldeilis vel saman, ormurinn og flóin. Ætli sé bara ekki árs- hátíð í hreiðrinu? Kemur dún- tekjumanni ekki við. Ekki var honum boöið. Best að fjar- lægja þetta félagsheimili í heilu lagi. Það verður mikil há- tíð í pokanum þegar öll helstu félagsheimili flóa og orma eru þar saman komin. Eggin láta hvergi á sér kræla meðan skemmtanafíkl- arnir í dúninum eru fjarlægðir með valdi. Sem betur fer ef til vill. Mamman víðs fjarri og engin er dúntekjumaðurinn Ijósmóðir. Hey í staðinn fyrir dún. Eggin ofan á heyið. Næsta hreiður. Kollunni, sem svo skyndilega hafði orðið brátt í fiðri - eða hvað á að kalla það, virðist sem allt sé að færast í eðlilegt horf. Hún úar nokkrum sinnum í viðbót eins og hún sé að segja „je minn“ eða eitthvað á þá leið. Kvart- andi yfir því að'maðurinn skuli koma og taka einangrunina hennar. Hvað ætli honum fyndist, hugsar hún örugglega, ef ég kæmi á hverju ári og hreinsaði einangrunarplastið innan úr húsinu hans? Hún nálgast hreiðrið var- færnislega, sér að vísitölufjöl- skyldan hennar hefur ekki bor- ið neinn skaða af tiltækinu. Hún hagræðir sonum sínum og dætrum svolítið varfærnis- lega, hringar heyið undir þeim og mjakar sér síðan mjúklega yfir þau. Hún lygnir aftur aug- unum og virðist hugsa til fram- tíöar - þegar halarófan fer að fylgja henni hvert fótmál, sundtak eða vængjablak. Þá verður'hún aö passa greyin sín fyrir veiðibjöllunni, mávin- um sem oft kemur flögrandi að þvi allsnægtaborði sem slik halarófa er. Þaö veit þessi kolla sennilega af biturri reynslu, hennar sjálfrar eða vinkonunnar í næsta hreiðri. Bjallan svífur mjúklega inn til lendingar, rétt tyllir niður ann- arri klónni meðan hún grípur ófleygan bjargleysingjann og hefur sig til flugs á ný. En hún flýgur ekki langt. Skammt und- an tyllir hún sér á syllu og sporðrennir greyinu litla í ein- um bita. Hún gleypir hann. Næsti. PASSAÐU ÞIG Á ÖNDUNUM Þetta veit kollan. Og hún ætlar að passa ungana sína fyrir bjöllunni. Það er eitt sem víst er. Alveg eins og hún reynir að 24 VIKAN 15. TBL 1992
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.