Vikan - 23.07.1992, Qupperneq 27
hafi veriö svona upptekió af
því þegar þú tókst ákvörðun
um að hætta við að giftast Ki-
efer Sutherland í júní síðasta
sumar?
„Sumt fólk lifir mjög tilbreyt-
ingarsnauðu lífi. Sumir f lifa
reyndar mjög leiðinlegu lífi og
þess vegna er eina tilbreyting-
in þegar einhver sem það veit
hver ér er að gera eitthvað
sem hægt er að tala um. Ef-
laust hafa margir tekið því illa
þegar ég ákvað að giftast ekki
Kiefer en ég gerði það sem óg
þurfti að gera. Ég get ekki eytt
iífi mínu í að þóknast öðru
fólki. Þetta er mitt lif og ég fæ
að lifa því aðeins einu sinni.
Þetta er ákvöröun sem ég tók
fyrir sjálfa mig og ég sé ekki
eftir henni.“
- Kiefer iét líta út sem þetta
hefði alfarið verið þín ákvörð-
un.
„Ég var nýkomin frá Arizona
þegar ég ákvað að segja Kief-
er að það væri best fyrir okkur
bæði að fresta brúökaupinu.
En það var hann sem hringdi í
mig og spurði hvar ég hefði
verið. Ég spurði hann sömu-
hringdi aftur nokkrum klukku-
stundum síðar og spurði hvort
af giftingunni yrði eða ekki. Ég
sagði honum þá frá því sem
ég hafði ákveðið."
- Það kom því að því að
þið höfðuð bæði samband við
umboðsmenn ykkar og báðuð
um að gefin yrði út yfirlýsing
þess efnis að ekkert brúðkaup
yrði?
„Já, og um leið byrjuðu sög-
urnar, ein og ein í einu en
smám saman magnaðist þetta
og að lokum varð allt brjálað.
Fólk elskar hneyksli og gerir
allt til aö komast til botns í mál-
unum. Persónulega fannst
mér Kiefer setja þetta upp eins
og hann væri eitthvert fórnar-
lamb, að hann heðfi verið skil-
inn einn eftir við altarið. í
hreinskilni sagt held ég að
Kiefer viti að það var okkur
báðum til bóta að ekkert varð
úr brúökaupinu. Hann þarf
ekki að lafa þetta líta út eins
og hann sé fórnarlamb í þess-
ari stöðu með því að koma
þessu yfir á mig. Ég skil bara
ekki hvað maðurinn er að
hugsa.“
- Hvað um spítaiavistina?
Af hverju fórstu á spítaia?
„Ég var mjög þreytt. Ég fékk
mjög slæman hita, rúmlega 40
stig, og einhver pest fylgdi
þessu. Ég var gjörsamlega
búin að vera. Fólk hlýtur að
geta farið á spitala án þess að
allt verði vitlaust."
- Áttir þú við eiturlyfja-
vandamái að stríða?
„Nei, ég hef aldrei átt við eit-
urlyfjavandamál að stríða.
Þetta er alveg dæmigert, ég
þarf að útskýra eitthvað sem
hefur aldrei verið vandamál
eða partur af mínu lífi. En ég
er tilneydd vegna þess að
annað hvert blað í landinu hef-
ur haldið því fram að ég sé
vímuefnaneytandi. Ég hef
aldrei notað eiturlyf og það er
ekki á stefnuskránni."
- Hvað um þær sögusagnir
að þú hafir verið rekin við
upptökur á kvikmyndinni
Hook?
„Þetta var eingöngu ódýr
blaðamatur og ósannindi.
Þetta kom aldrei til tals og þvi
var dálítið skrýtið að sjá þetta í
blöðunum - sérstaklega þegar
ég var að lesa blöðin í vinn-
unni. Það eina sem gerðist var
að fyrsta daginn minn í hlut-
verki Tinkerbell varð ég veik,
eins og kom fram, og ég varð
að fara á spítala."
- Þú hafðir á orði að ef ég
hefði talað við þig fyrir sex
mánuðum hefði ég verið að
tala við allt aðra persónu.
„Ég er mun hamingjusamari
núna en ég var og reyndar
held ég að ég hafi aldrei verið
hamingjusamari. Ég hef lært
af öllu þessu rugli í sumar og
stend uppi þroskaðri og heil-
brigðari en nokkru sinni fyrr.“
- Er Jason Patric partur af
þessari hamingju?
„Já.“
- Hvenær varð hann mikil-
vægur I iífi þínu?
„Á þessari stundu kýs ég að
ræða ekki um Jason, einfald-
lega vegna þess að ég met
samband okkar meira en það
að fólk geti japlað á þessu f
matartímunum."
- Það er sagt að guðirnir
brosi við sumu fólki í einhvern
ákveðinn tíma. Árið 1991 hef-
ur greinilega verið þitt ár, þú
ATIMAMOTUM
Á góðri stund með Garry
Marshall leikstjóra.
leiðis því ég vissi ekkert hvar
hann hafði haldið sig. Áður en
ég vissi var hann farinn að tala
um brúðkaupið og að hann
teldi best að við létum það
vera að gifta okkur. Hann var
hranalegur í símann og var
mjög viss í sinni sök.“
- Hvar var hann?
„Hann var í Los Angeles en
enginn vissi hvar. Hann hafði
horfið. Ég var nokkuð hissa á
að hann skyldi nefna þetta á
undan mér svo ég sagði ekki
orð. Því næs skellti hann á og
Óvæntur sundsprettur getur
kratist skjótra viðbragða og hér
hefur Julia brugðið sér í
karlmanns nærbuxur.
ert orðin stórstjarna. En ef þú
værir bara eins og hver önnur
leikkona í Hollywood árið
1992, væri það nógu gott fyrir
Þig?
„Já, en ég lít ekki á mig sem
stórstjörnu og hef aldrei sett
það sem markmið. Ég verð
hér í Hollywood að vinna á
þessu ári alveg eins og ég hef
verið aö gera undanfarið. Allt
sem ég hef verið að gera hefur
haft sinn tilgang og ég hef
reynt að gera allt eins vel og
ég get - með mikilli ástríðu og
ákveðni. Kannski er þetta ekki
rétta leiðin og ekki sú auðveld-
asta. Þetta er samt eina leiðin
sem ég kann.“ □
Leikkonan ásamt bróður
sinum, Eric Roberts.
15. TBL. 1992 VIKAN 27