Vikan - 23.07.1992, Side 51
HVORT ÁSTIN fR KULNUÐ?
Endir ástarsambands getur verið sorgleg-
ur og dularfullur. Sameiginlegt einkenni
sambandsslita er að þau eru svo niður-
drepandi. Til að byrja með heldur maður að
þetta sé hin eina sanna ást, að sambandið vari
að eilífu. Svo reynist ekki vera.
Kannski gerist þetta snögglega en þaö er
venjulega einn einstakur atburður sem segir
manni að ástin sé kulnuð og ekki verði aftur
snúið. Lítum á nokkur dæmi:
Þú veist að hann elskar þig ekki lengur:
■ Þegar hann heldur áfram að spyrja þig um
skilmálana í erfðaskránni þinni.
■ Þegar hann segir að hann sé hræddur um
að hann „sé ekki sá rétti fyrir þig“. Hann er í
raun og veru að segja að þú sért ekki sú rétta
fyrir hann.
■ Þegar hann getur farið í partí án þín eða
farið í ferðalag án þess að sakna þín.
■ Þegar hann virðist ánægðari með vinum
sinum heldur en með þér.
■ Þegar hann hættir að kalla þig elskulegum
nöfnum.
■ Þegar þaö hljómar ósannfærandi þegar
hann kallar þig „elskuna sína".
■ Þegar hann hættir að hlusta á þig.
■ Þegar hann breytir um rödd er hann ávarp-
ar þig fyrir framan einkaritarann sinn.
■ Þegar vinir hans kalla þig röngu nafni.
■ Þegar hann er ósnortinn af skemmtileg-
asta tali þínu.
■ Þegar náinn vinur hans hefur aldrei heyrt
þín getið.
■ Þegar þið hættið að vaka fram til þrjú eða
fjögur að nóttu, bara til að tala saman.
■ Þegar hann hættir að reyna að líta sem
best út fyrir þig.
■ Þegar honum hættir að finnast ópera
skemmtileg veistu að hann er hættur að þykj-
ast og það merkir að honum er alveg sama.
■ Þegar þú býðst til að færa þig nær honum
til að halda nánu sambandi og hann afþakkar
kurteislega án þess að gefa skýringu.
■ Þegar hann reynir að bæta upp áhugaleysi
með því að kaupa „dót“ handa þér.
■ Ef hann er kvæntur og neitar að skilja við
eiginkonuna vegna allra peninganna sem
hann mundi missa ef hann kysi þig frekar.
■ Þegar viðhorf vina hans breytist gagnvart
þér.
■ Þegar ástarorð hans verða vanabundin.
■ Daginn sem konan hans hringir.
■ Þegar þú hringir í hann og hann talar við
þig eins og þú værir „einn af strákunum".
■ Þegar þú segist koma heim klukkan sjö en
kemst ekki fyrr en klukkan níu og hann er af-
slappaður fyrir framan sjónvarpið.
■ Þegar allt sem þú gerir pirrar hann.
■ Þegar ykkur kemur einfaldlega ekki
saman.
■ Þegar síminn hringir ekki.
■ Þegar hann hefur ekki lengur áhyggjur af
því hvort þú erf of grönn (eða of feit).
■ Þegar hann hefur ekki lengur áhuga á því
að reyna að leysa ágreiningsmál ykkar.
■ Þegar þú uppgötvar að hann vill frekar
vera með einhverri annarri.
Þú veist að þú elskar hann ekki lengur:
■ Þegar allt sem hann gerir pirrar þig. Allt!
Kímnigáfa hans, fólkið sem hann er með, það
sem hann gerir og boðin sem hann er boöinn í.
■ Þegar ykkur semur einfaldlega ekki.
■ Þegar neistinn, sem þú fannst einu sinni
með honum, kviknar með einhverjum öðrum.
■ Þegar hann særir þig svo oft aö næst þeg-
ar eitthvað ferlegt gerist endarðu með því að
hlæja af eintómri þreytu - nokkurs konar
móðursýkishlátri. Þú veist að þú getur ekki þol-
að þetta lengur. Þú hefur ekki krafta til að ráða
við munstrið „haltu mér, slepptu mér“. Ákafinn
er farinn. Þú hefur ekki krafta til aö halda þessu
áfram.
■ Þegar þú gerir þér grein fyrir að þér væri
sama þótt þú sæir hann aldrei aftur.
■ Þegar þú hættir að hugsa um hann allan
daginn.
■ Þegar þú hættir að lesa um stjörnumerkið
HANS ásamt þínu eigin.
■ Þegar síminn hringir ekki og í stað þess að
örvænta, verða reið eða láta hugfallast er þér
alveg sama.
■ Þegar þið rífist eitt kvöld og þú vilt ekki taka
fyrsta skrefið til sátta.
■ Þegar hörð hans særa þig ekki lengur.
■ Þegar þú lítur á hann og tekur eftir því að
tennur hans eru skemmdar.
■ Þegar þú hefur ekki lengur áhyggjur af því
að hann er horaður, þér finnst það bara „ekki
sexí“.
■ Þegar þér er alveg sama hvort ÞETTA bréf
komi í póstinum einhvern daginn.
■ Þegar þú hefur ekki orku til að skrifa hon-
um á hverjum degi.
■ Þegar þú missir von og þrótt við að reyna
að leysa vandamál.
■ Þegar hnyttnu oröin, sem voru einu sinni
svo ögrandi, eru ekki lengur örvandi.
■ Þegar minningarnar um alla þá særandi
hluti sem hann hefur gert þér koma,aftur og
aftur upp í hugann og það verður allta'f erfiðara
aö fyrirgefa (og gleyma).
■ Þegar þú hlærð (innra með þér) í hvert
sinn sem hann býr til afsökun fyrir að hitta þig
ekki.
■ Þegar þú uppgötvar að þú vilt frekar vera
með einhverjum öðrum.
■ Þegar þér er alveg sama hvernig hár þitt
lítur út í návist hans.
■ Þegar hjartað hættir að taka kipp þegar þú
sérð hann.
■ Þegar þú óskar eftir því að hann verði
hamingjusamur - með einhverri annarri.
■ Þegar þér er alveg sama þótt þú hafir ekki
afmælisgjöf handa honum.
■ Þegar það skiptir þig meira máli að hann
sé góður dansari en að vera í fanginu á
honum.
■ Þegar hann kemur heim síðdegis á sunn-
udegi og þú vildir að hann hefði ekki komið.
■ Þegar það skiptir ekki lengur máli hvort
hann er þarna eða ekki.
■ Þegar friður og einvera skiptir þig meira
máli en nærvera hans.
■ Þegar þú vilt frekar búa til matinn en aö
hlusta á hann.
■ Þegar þú vilt frekar skemmta þér en að
vera með honum.
■ Þegar þögnin er ekki lengur þægileg.
■ Þegar símhringingar seint á kvöldin pirra
þig i staöinn fyrir að gera þig spennta.
■ Þegar hann talar um vandamál þín við vin
sinn og þú getur ekki þolaö slíkt ótrygglyndi.
■ Þegar þú hættir að vilja vera sálfræðingur
hans þannig aö áhugamál þín og þarfir verða
útundan.
■ Þegar þú ferð út að versla og dettur ekki
einu sinni í hug að kaupa eitthvað handa hon-
um.
■ Þegar hann er ekki lengur fyrsta hugsun
þín þegar þú vaknar.
■ Þegar þetta er allt saman einfaldlega of
þreytandi.
■ Þegar fjarvera hans hættir að hafa þau
áhrif á þig aö þér finnst allt tómlegt.
■ Þegar þér finnst hann ekki lengur athygl-
isverður.
■ Þegar þú hefur ekki lengur áhuga á ÖLLU
sem hann segir.
■ Þegar þú hefur ekki lengur áhuga á neinu
sem hann segir.
15. TBL.1992 VIKAN 51