Vikan - 23.07.1992, Page 55
■ Sigga litla er að fara með
kvöldbænina sína:
„Góði guð, gerðu mig góða.
Ekki samt voða, voöa góða. Bara
svo góða að ég verði aldrei
flengd."
■ Ríkið er eins og smábarn.
Það vill eignast allt sem það
kemur auga á.
■ Móðir ungu brúðarinnar var
dálítið gamaldags í sér og hafði
ýmiss konar einkennilega afstöðu
til hjónabandsins. Áður en brúð-
hjónin fóru í kirkjuna sagði móðir-
in við dóttur sína að hún mætti
aldrei láta manninn sinn sjá sig
nakta. Hún yrði alltaf að vera í
einhverju.
Nokkrum vikum eftir brúðkaup-
ið segir eiginmaðurinn við konu
sína:
- Er eitthvað að þér eða eru
þetta einhverjir einkennilegir siðir
í fjölskyldunni. Nú höfum við verið
gift í nokkrar vikur og á hverri ein-
ustu nóttu hefur þú haft hattinn á
höfðinu.
■ Og svona er konan.
í bænum Houston í Banda-
ríkjunum var strætisvagn að
beygja fyrir götuhorn í mikilli
umferð þegar ung stúlka ók í
veg fyrir hann, að því er virtist
án þess að hún tæki eftir
strætisvagninum. Vagnstjórinn
blístraði hátt og hvellt, og
stúlkan stöðvaði bílinn og leit
við en strætisvagnstjórinn
sætti lagi og smeygði sér
framhjá bílnum hennar.
Einn farþeganna spurði bíl-
stjórann af hverju hann hefði
ekki notað flautuna í stað þess
að blístra. „Kvenfólk sem ekur
bílum,“ sagði hann, „tekur yfir-
leitt ekki eftir þó að flautað sé á
það. En sá kvenmaður er ekki
til í Houston sem ekki nemur
staðar ef hún heyrir mann
blístra."
Houston Post.
■ Úr bréfi: - Ástin mín þú veist
að fyrir þig gæti ég vaðið gegnum
eld og vatn ...
Á morgun kem ég og heimsæki
þig, ef ekki rignir.
FINNDU 6 VILLUR
©1991 by King Features Syndicate, Inc. y
Finniö sex villur eöa fleiri á milli mynda
ainu|U)|æ| b(h ejjæq
jð Q|)|Bqi9is 'ujnu6u||)|n!s jæu Jð uujduiei ‘isAajq jnjeq uu;sn;>|e>) ‘uu|u>|æ|
9 jbjuba BSBAisoúq ‘Q]a qæq QU8A jnjeq dB>|SB|B[>|g ‘Bjjæjs Jð |U|0iJi>|g
STJ'ÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Ágreiningur við ástvin gæti
komið upp I lok júlí og líklega
leysist hann ekki fyrr en undir
miðjan ágúst. Að öðru leyti dregur
úr tilfinningalegri spennu. Mán-
aðamótin verða lífleg og athafn-
aorka þín er aö komast í rétt horf.
Þér finnst þú hafa nægan tíma af-
lögu fyrir þína nánustu.
NAUTIÐ
vj) 20. april - 20. mai
w Síðustu dagar júlímánað-
ar verða þér fremur þungir en að-
stæðurnar gjörbreytast eftir mán-
aðamót. Það er samheldni milli
þín og ástvinar þíns svo að breyt-
ingunum verður vel tekið. Fjár-
málin verða þó I brennidepli enda
líklegt að spennandi tilboð liggi í
loftinu. Hvíldartímar verða af
skornum skammti.
TVÍBURARNIR
21. maí - 21. júní
Nú ferðu loksins að finna
fyrir endurnýjuðum lífskrafti sem
virkar smitandi á aðra. Þetta eyk-
ur þér bjartsýni en þó er ekki
runninn upp rétti tíminn til að
hrinda nýjum hugmyndum í
framkvæmd. Deildu frekar vellíð-
an þinni með kunningjum eða ást-
vini því að nú er tími til að njóta
lífsins.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Líklega hefurðu áhyggjur
af fjármálum út allan júlímánuð
en í ágústbyrjun virðist heppnin
vera með þér. Þá geturðu farið að
efna skyldur þínar við aðra og
efna gömul loforð. Gerðu það þótt
það geti tekið sinn toll. Það kemur
sér vel síðar. Gefðu þér góðan
tíma til útiveru.
UÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Vertu varkár fram að
mánaðamótum og reyndu að
draga úr öllum vandamálum
þínum. Ágústmánuður byrjar hins
vegar vel þótt þú verðir enn um
sinn að gæta þín á að ofgera þér
ekki. Gakktu því hægt um gleð-
innar dyr og kvíddu engu vegna
þess að dagar ágústmánaðar
fara stigbatnandi.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Síðasta vika júlímánaðar
verður fremur hversdagsleg þartil
tunglið verður nýtt, 29. júlí. Eftir
mánaðamótin verða töluverðar
breytingar á þessu og þú ert vís til
að sýna framfarir í starfi. Taktu
litlu vandamálunum með stillingu
þótt þau virðist tefja fyrir þér um
sinn.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Hægfara breytingar liggja
loftinu og þú ættir að fara að
huga að framtíðinni. Þú átt nokkr-
ar ánægjulegar stundir I vændum
dagana 30. júlí til 2. ágúst. Næstu
þrír dagar verða fremur hvers-
dagslegir en ekkert slæmir. Þá
færðu líklega þörf fyrir að vera út
af fyrir þig.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21. nóv.
Þú átt í vændum tvær
friðsælar vikur. Eftir mánaðamót
þarftu ef til vill að sinna einhvers
konar viðskiptasamkomulagi og
huga að lagalegri stöðu þinni en
þar fyrir utan virðist hugur þinn af-
slappaður og þú nýtur samræmis
daganna. Mannleg samskipti
verða afslöppuð og rómantíkin
treður þér svo sem ekkert um tær.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Þú virðist vera næmur fyr-
ir illmælgi síðustu daga júlímán-
aðar en trúðu ekki öllu sem þú
heyrir. Eftir mánaðamót finnst þér
fjárhagur þinn ekki eins stöðugur
og þú hafðir reiknað með og þú
kryfur málin til mergjar. Hvíldar-
tíminn er liðinn og þú hefur I nógu
að snúast.
STEINGEITIN
22. des. -19. janúar
Starfsskyldurnar hindra
æskileg samskipti þín við kunn-
ingja eða ástvin. Þú vilt kannski
hafa það öðruvísi en þú kemst
ekki hjá þessum skyldum. Það
verður lítið um hvíld um og eftir
mánaðamót en þú átt góðan sess
hugum vina þinna. Gríptu því gott
tækifæri til upplyftingar 1. ágúst.
VATNSBERINN
20. janúar - 18. febrúar
Það virðist vera í þér ein-
hver spenna sem þú átt erfitt með
að losa þig við. Kannski krefstu of
mikils af ástvini þínum eða þlnum
nánustu. Stutt ferðalag eftir mán-
aöamót gæti gert gæfumuninn ef
þú undirbýrð það með jákvæðum
huga. Farðu þó að engu óðslega í
fjárútlátum.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Ýmsar blikur eru á lofti
varðandi heimilislífið I lok júlí og
sambandið við ástvin á við-
kvæmu stigi. Þetta breytist ekki
fyrr en um eða eftir 4. ágúst. Slak
aðu á. Samskipti þín við fólk
verða samt með mesta móti um
mánaðamótin og þú kemst í sam
bönd sem skipta þig miklu máli.
15 TBL 1992 VIKAN 55